Fréttablaðið - 05.01.2019, Page 74
Þetta hefur verið vinsælt hjá
okkur,“ segir hann og bætir við að
aðstaða sé öll hin besta fyrir þess
konar ráðstefnu. „Við erum stutt
frá höfuðborginni og hér eru næg
bílastæði fyrir stóra hópa. Árið
er þegar þétt bókað hjá okkur en
stærri viðburðir eru skipulagðir
með löngum fyrirvara. Sérstaða
okkar liggur í góðri þjónustu og
stóru og góðu hóteli með nýupp-
gerðum glæsilegum sölum. Hér fær
fólk allt á einum stað til að gera
góðan fund,“ segir Jakob.
„Við vorum til dæmis með mjög
vel heppnað Samorku-þing hér í
fyrrasumar þar sem var sýning að
auki. Hér er stórt og gott útisvæði
sem var nýtt með því að setja upp
tjöld,“ segir hann.
„Starfsfólk Hótel Arkar er ávallt
tilbúið til að aðstoða fyrirtæki
við að skipuleggja hvers konar
ráðstefnur eða viðburði. Sömu-
leiðis aðstoðar starfsfólk þá sem
vilja halda árshátíð, brúðkaup,
fermingu eða aðrar veislur í sölum
hótelsins. Öll herbergi hótelsins
Stærsti salurinn
á Hótel Örk
nefnist Aðal-
gerði og getur
tekið allt að 300
manns.
HVER er frábær veitingastaður fyrir alla fjölskylduna sem var gerður upp samhliða öðrum endurbótum á hótelinu.
Falleg svíta á hótelinu þar sem fólk getur notið lífsins.
Önnur svíta þar sem fallegt umhverfið er allt um kring.
Herbergin eru búin öllum nútímalegum þægindum.
Væri ekki notalegt að slappa af og
njóta þess sem Hótel Örk hefur upp
á að bjóða? Afslöppun og dekur.
Gestir hafa tekið breyting-unum vel að sögn Jakobs Arnarsonar, hótelstjóra
á Hótel Örk. Hann segir að eftir
stækkun séu 157 herbergi á hótel-
inu. Núna bjóði Hótel Örk upp á
stærsta funda- og ráðstefnuhótel
utan höfuðborgarsvæðisins. Í boði
er fyrsta flokks þjónusta fyrir fólk
í viðskiptaerindum, ráðstefnu-
gesti, árshátíðargesti eða þá sem
vilja eiga notalega stund í fallegu
umhverfi.
Sjö mismunandi stórir salir eru
á Hótel Örk sem henta flestum
gerðum funda eða ráðstefna.
Stærsti salurinn, Aðalgerði, getur
tekið allt að 300 manns. Þetta
er bjartur og fallegur salur sem
hægt er að nýta á margvíslegan
hátt. Gott svið er fyrir ræðuhöld,
leiksýningar eða aðra stærri við-
burði, þráðlaust net, myndvarpi,
sýningartjald, fullkomið hljóðkerfi
og ræðupúlt.
Glæsigerði er sömuleiðis fallegur
salur fyrir 60-100 manns. Hann
nýtist vel fyrir stórar sem smáar
veislur, fundi og fyrirlestra. Boðið
er upp á flatskjá, tölvutengingu og
þráðlaust net.
Stjörnugerði er vinsæll salur
fyrir veislur og minni móttökur en
hann tekur um 40-120 gesti eftir
því hvert tilefnið er. Aðrir salir hót-
elsins nefnast Þinggerði, Stjórnar-
gerði, Ráðagerði og Sáttagerði.
Allir geta fundið hentugan sal fyrir
hvers kyns mannfagnaði. Salirnir
eru glæsilegir og vel búnir.
Jakob segir að margir kjósi að
dvelja á hótelinu yfir nótt. „Þá eru
þeir með ráðstefnu að deginum
en bjóða upp á hátíðarkvöld-
verð og gistingu. Morguninn eftir
heldur ráðstefnan síðan áfram.
Fullkominn tæknibúnaður í
fundarsölum á Hótel Örk
Eftir gagngerar breytingar á Hótel Örk í Hveragerði er öll aðstaða hin glæsilegasta fyrir hvers kyns
viðburði. Fundar- og veislusalir hótelsins eru búnir afar fullkomnu fundar- og hljóðkerfi. Veitinga-
staður með frábærri íslenskri matargerð. Öll aðstaða á hótelinu er til mikillar fyrirmyndar.
eru búin bestu nútímalegum
þægindum.“
Þjónusta hótelsins er fagleg og
lögð er áhersla á metnað og góðar
veitingar fyrir hvers kyns viðburði.
HVER nefnist nýr veitingastaður
á Hótel Örk þar sem boðið er upp
á alls kyns veisluþjónustu, hvort
sem um er að ræða hlaðborð eða
mat af matseðli, à la carte. Einnig
eru tvenns konar hópmatseðlar
í boði. HVER er frábær veitinga-
staður fyrir alla fjölskylduna
sem var gerður upp samhliða
öðrum endurbótum á hótelinu.
Frábærir matreiðslumenn reiða
fram íslenska matargerð úr úrvals
hráefni.
Veitingastaðurinn HVER er opn-
aður kl. 11.30 og er opinn til 22. Bar
hótelsins er opinn virka daga til 23
en eitt eftir miðnætti um helgar.
Hægt er að kynna sér þjónust-
una betur á heimasíðu hótelsins
hotelork.is eða í síma 483 4700.
Hótel Örk er einnig á Facebook þar
sem hægt er að kynna sér alls kyns
viðburði sem þar fara fram.
KYNNINGARBLAÐ 5 L AU G A R DAG U R 5 . JA N ÚA R 2 0 1 9 RÁÐSTEFNUR OG VIÐBURÐIR