Fréttablaðið - 05.01.2019, Page 76
Starfs-
mennirnir
eru okkar
gullnáma
og flestir
hafa ára-
langa
reynslu af,
viðburð-
um, tón-
leikum og
sjónvarpi.
Við sérhæfum okkur í leigu og sölu á búnaði sem tengist viðburðum af öllu tagi. Bæði
stórviðburðum á borð við tónleika,
ráðstefnur og árshátíðir og smærri
tilefni eins og brúðkaup, fermingar
og afmæli,“ segir Ingólfur Magnús-
son, framkvæmdastjóri leigusviðs
Exton.
Innan veggja Exton er að finna
óviðjafnanlega þekkingu á öllum
þeim búnaði sem þarf til viðburða-
halds og notkunarmöguleikum
hans. „Starfsmennirnir eru okkar
gullnáma og flestir hafa áralanga
reynslu úr leikhúsum, viðburðum,
tónleikum og sjónvarpi,“ segir
Ingólfur og bætir við að Exton leggi
áherslu á að senda starfsmenn sína
reglulega á námskeið erlendis til
að læra allt það nýjasta í greininni.
„Okkur er kappsmál að vera með
sérhæfðan mannskap með mikla
reynslu enda fylgir því mikil
ábyrgð að hengja upp þungan
ljósabúnað fyrir ofan stóran hóp
af fólki.“
Stór hluti starfsmanna Exton
hefur reynslu bæði innan og utan
landsteinanna. „Margir af okkar
tæknimönnum hafa túrað með
heimsfrægum hljómsveitum, bæði
erlendum og íslenskum. Þar má
nefna Of Monsters and Men, Björk,
Placebo, Massive Attack, Sigur Rós
og margar fleiri. Exton sér alfarið
um svið og tækjabúnað ásamt
tæknivinnu á G! Festival í Fær-
eyjum árlega. Síðan má nefna að þó
nokkrir á okkar vegum hafa farið
í vinnu árlega á Hróarskeldu og
fleiri hátíðir utan landsteinanna og
koma þá heim reynslunni ríkari.“
Bjóða gæðabúnað
Söludeild Exton er með umboð
fyrir búnað frá gæðamerkjum
og leigusviðið notar mest þann
búnað. „Við erum afar stolt af
þessum merkjum,“ segir Ingólfur.
Exton er til dæmis með umboð
fyrir hljóðkerfi frá Meyer, NEXO og
RCF, hljóðmixera frá Allen & Heath
og Midas. Einnig ljósabúnað frá
Clay paky og ljósaborð frá Grand
MA light.
Hjá Exton er mjög algengt að
leigja hljóðbúnað, ljósabúnað,
vídeóbúnað, svið, túlka- og ráð-
stefnubúnað og hljóðfæri. „Einnig
erum við með tjaldaleigu og
hoppukastalaleigu. Tjaldaleiguna
eignuðumst við fyrir tveimur
árum og má segja að hún hafi verið
punkturinn yfir i-ið hjá okkur. Nú
getum við boðið viðskiptavinum
að leigja allan pakkann hjá okkur.
Til dæmis hefur verið vinsælt að
búa til viðburði einhvers staðar úti
í náttúrunni, þá tekur viðskipta-
vinurinn hjá okkur til dæmis tjald,
rafstöð, svið, ljósa- og hljóðbúnað.“
Þjónusta um allt land
Exton er með starfsstöðvar í Kópa-
vogi og á Akureyri en sinnir verk-
efnum um allt land. „Það er mjög
algengt að við sendum búnað út á
land fyrir allar tegundir og stærðar-
gráður af verkefnum.“
Ingólfur segir nóg að gera hjá
Exton. Áður hafi verkefnin hlaðist
upp mest á vissa árstíma en nú séu
þau að jafnast töluvert yfir árið.
Ráðstefnur eru einnig að verða æ
stærri hluti af verkefnunum. „Við
erum með afar handhægan túlka-
og ráðstefnubúnað sem er mjög
þægilegt að flytja á milli staða.“
Leigja út hljóðfæri
Exton rekur hljóðfæraleigu þar
sem hægt er að leigja trommusett,
gítarmagnara, hljómborð, bassam-
agnara og ýmislegt fleira. „Við erum
með mjög gott úrval og náum til
dæmis að þjónusta Airwaves með á
annan tug trommu setta, bassam-
agnara, gítarmagnara og fleira.
Lausnir sniðnar eftir þörfum
Á leigusviði Exton starfa verk-
efnastjórar og ráðgjafar. „Þeir
stýra stærri verkefnum og geta
Klæðskerasniðin þjónusta
Exton leigir út og selur gæðabúnað fyrir viðburði af öllum stærðargráðum. Starfsmenn fyrirtækis-
ins búa yfir mikilli þekkingu og reynslu og geta sniðið lausnir að þörfum viðskiptavina sinna.
Frá stórtónleikum Páls Óskars í Laugardalshöll.
sniðið lausnir fyrir fólk eftir þeirra
þörfum. Viðskiptavinurinn getur
þannig komið til ráðgjafans, sagt
honum hvað hann langar að gera
og fyrir ákveðna upphæð, og við
finnum lausn sem allir eru sáttir
við.“
Ingólfur segir útfærslurnar
afar fjölbreyttar. „Fólk getur leigt
búnaðinn með allri þjónustu, það
er uppsetningu, yfirsetu og saman-
tekt. Síðan er líka í boði að leigja
búnað sem viðskiptavinurinn sækir
sjálfur og skilar aftur.“
Nánari upplýsingar má nálgast á
www.exton.is.
KYNNINGARBLAÐ 7 L AU G A R DAG U R 5 . JA N ÚA R 2 0 1 9 RÁÐSTEFNUR OG VIÐBURÐIR
Frá Söngva-
keppni RÚV
2018.