Fréttablaðið - 05.01.2019, Qupperneq 79
Hann er vistaður í Lledoners-fang-
elsinu. Amnesty International og
skrifstofa mannréttindastjóra Sam-
einuðu þjóðanna eru á meðal þeirra
sem hafa gagnrýnt fangelsun hans
og annarra katalónskra aðgerða-
sinna og stjórnmálamanna. Hér á
Íslandi hefur svo forseti Alþingis lýst
yfir áhyggjum af fangelsun Carme
Forcadell, fyrrverandi forseta kata-
lónska héraðsþingsins.
Hneyksli fyrir Evrópu
Ríkissaksóknari Spánar sakar Cuix-
art um að hafa hvatt fólk til þátt-
töku í atkvæðagreiðslunni sem fór
fram þann 1. október 2017, að því er
Cuixart sjálfur segir frá.
„Við erum að tala um grund-
vallarréttindi í lýðræðisríki. Tján-
ingarfrelsið, frelsið til að mótmæla,
til að greiða atkvæði. Þannig að
saksóknarinn sakar mig fyrst um
uppreisn og fer fram á sautján ára
fangelsisdóm. Hin raunverulega
ástæða þess að ég er í fangelsi er sú
að ég er forseti Òmnium Cultural,
samtaka sem telja rúmlega 130.000
meðlimi og einbeita sér að því að
verja katalónska tungu, menningu
og samheldni. Þau hafa verið virk
í þessari hreyfingu sem snýst um
sjálfsákvörðunarrétt Katalóna,“
segir Cuixart og bætir við:
„Ég er pólitískur fangi á Spáni á
21. öldinni. Það er hneyksli fyrir
alla Evrópu.“
Franco lifi enn
Cuixart fékk birta grein í Frétta-
blaðinu í lok október. Þar líkti hann
spænskum stjórnvöldum við ógnar-
stjórn einræðisherrans Franciscos
Franco á Spáni á síðustu öld. En í
hverju felast þessi líkindi?
„Þegar Franco dó ákvað Spánn að
gera ekki greinarmun á milli ger-
enda og þolenda. Francoisminn,
ólíkt nasismanum í Þýskalandi eða
stjórn Mussolini á Ítalíu, hefur aldr-
ei farið fyrir dóm. Þetta þýðir að
lögreglumenn sem pyntuðu fanga
héldu starfi sínu, ráðherrar sem
kvittuðu upp á dauðadóma héldu
áfram í stjórnmálum og dómarar
Francos héldu áfram að fella dóma.“
Þrátt fyrir að Franco sé látinn lifir
stjórn hans sum sé enn, heldur Cuix-
art fram. Þannig hefur Francoisminn
ítök í stjórnkerfinu, sérstaklega
dómskerfinu. „Eins og hefur verið
greint frá í skýrslum GRECO tryggja
stjórnvöld ekki sjálfstæði dómstóla.
Stofnun Francos er lögleg á Spáni í
dag en grínistar mega ekki draga dár
að fánanum eða samheldni Spánar.“
Ný stjórn
Frá því Cuixart var handtekinn
hefur stjórn Lýðflokksins undir for-
sæti Marianos Rajoy vikið fyrir Sósí-
al istaflokknum og Pedro Sán chez.
Cuixart segir helsta muninn þann
að sósíalistarnir séu almennilegri en
grundvallaratriðin séu þó þau sömu.
„Ríkisstjórn sósíalista reynir að
nota vinsamlegri tón í viðræðum en
leggur ekki fram neinar alvarlegar
tillögur fyrir Katalóníu. Það er ekk-
ert boð um raunverulegar viðræður
og þaðan af síður um umbætur á
stjórnarskránni. Ekkert skref í átt að
ríkjasambandi, enginn raunveruleg-
ur samræðuvilji og engin viðleitni til
þess að binda enda á þetta hneyksli
sem felst í því að læsa okkur inni,
áður en mál okkar fara fyrir dóm, í
rúmt ár.“
Óréttlætanlegt
Aðspurður um lífið í fangelsinu
segir Cuixart að komið sé fram við
sig eins og alla hina fangana. Lífið í
fangelsinu sé ekki sérstaklega erfitt
og að hann njóti þess að stunda hug-
leiðslu, lesa og skrifa. „Um þessar
mundir sæki ég keramikvinnustofu
og þegar við vorum í Madríd fékk
ég að mála. Svo held ég líka áfram
að sinna skyldum mínum sem for-
seti Òmnium Cultural í fangelsinu
þannig að ég hef nóg að gera. Það
sem skiptir máli er hvernig maður
tekst á við þessa takmörkun á líkam-
legu frelsi. Frelsi er hugarástand og
mér líður eins og ég sé frjáls,“ segir
Cuixart.
Að sögn Katalónans þjást
aðstandendur hans þó meira. „Ég á
son sem er eins árs og sjö mánaða
gamall. Ég var sendur í fangelsi
þegar hann var hálfs árs. Síðustu
410 daga hef ég fengið að vera með
honum í samtals þrjá og hálfan dag.
Það er óréttlætanlegt hneyksli. Ég fæ
að hámarki að hringja sex símtöl í
átta mínútur í hverri viku og fæ tvær
heimsóknir á mánuði.“
Stuðningur
Stuðningurinn sem Cuixart fær frá
katalónskum aðskilnaðarsinnum
hjálpar. „Þessi mikli stuðningur
sem við, pólitísku fangarnir, höfum
fengið er svakalegur. Þetta er kær-
leikur sem við munum aldrei geta
endurgoldið. Ég fæ hundruð dýr-
mætra bréfa á hverjum einasta
degi. Og á hverjum sunnudegi safn-
ast þúsundir saman við fangelsið
og syngja. Aðrir hittast einnig um
gjörvalla Katalóníu,“ segir Cuixart.
Ríkisstjórn Íslands ætti ekki að leyfa Spán-verjum að brjóta á mannréttindum kata-lónskra sjálfstæðis-sinna og annarra borg-
ara. Þetta segir hinn 43 ára gamli
Jordi Cuixart, forseti menningar-
samtakanna Òmnium Cultural og
einn níu Katalóna sem vistaðir eru
í fangelsi vegna atburðanna haustið
2017 er stjórnvöld í Katalóníu boð-
uðu til ólöglegrar atkvæðagreiðslu
um sjálfstæði og gáfu svo út sjálf-
stæðisyfirlýsingu skömmu síðar.
Nokkur til viðbótar eru svo ákærð
en á flótta utan Spánar. Til dæmis
Carles Puigdemont, fyrrverandi
héraðsforseti.
Cuixart hefur verið ákærður fyrir
uppreisnaráróður. Áður en ákæra
var gefin út í máli hans sagði dómari
að Cuixart hefði klifrað upp á lög-
reglubíl þann 20. september 2017 í
mótmælum í aðdraganda atkvæða-
greiðslunnar. Dómarinn sagði að
Cuixart og annar ákærður, Jordi
Sanchez, hefðu sagt mótmælendum
að fara ekki heim, löng nótt væri í
vændum. Á myndbandi sem var
birt sést hins vegar hvar Cuixart og
Sanchez biðja mótmælendur um að
halda heim er þeir stóðu á bílnum.
Amnesty International og Mannréttindaskrifstofa Sameinuðu þjóðanna hafa gagnrýnt fangelsun Jordi Cuixart og annarra katalónskra aðgerðasinna. MYND/ÒMNIUM CULTURAL
Þórgnýr Einar
Albertsson
thorgnyr@frettabladid.is
ÉG ER PÓLITÍSKUR FANGI Á
SPÁNI Á 21. ÖLDINNI. ÞAÐ
ER HNEYKSLI FYRIR ALLA
EVRÓPU.
Katalónskur
fangi biðlar
til Íslendinga
Jordi Cuixart er
einn þeirra Katalóna
sem voru ákærðir
og fangelsaðir
vegna sjálfstæðis
atkvæðagreiðslu
og yfirlýsingar árið
2017. Í ítarlegu viðtali
við Fréttablaðið segir
hann stjórnarhætti
Francos enn við lýði
og að málið sé regin
hneyksli fyrir alla
Evrópu.
5 . J A N Ú A R 2 0 1 9 L A U G A R D A G U R30 H E L G I N ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð