Fréttablaðið - 05.01.2019, Page 101
Lífið í
vikunni
30.12.18-
05.01.19
SÍMAR AUGLÝSINGADEILDIR – AUGLÝSINGASTJÓRI: Jóhanna Helga Viðardóttir johannahelga@frettabladid.is ALMENNAR AUGLÝSINGAR: SÍMI 550 5050:
Gústaf Bjarnason gustaf@frettabladid.is, Hjördís Zoëga hjordis@frettabladid.is, Sigfús Örn Einarsson sigfus@frettabladid.is, Valdimar Birgisson valdimar@frettabladid.is
Örn Geirsson orn.geirsson@frettabladid.is FÓLK/SÉRBLÖÐ SÍMI 550 5077: Atli Bergmann atli@frettabladid.is, Arnar Magnússon arnarm@frettabladid.is, Jón Ívar
Vilhelmsson jonivar@frettabladid.is, Ruth Bergsdóttir ruth@frettabladid.is. FÓLK OG SÉRBLÖÐ EFNI: Elín Albertsdóttir elin@frettabladid.is og Ragnheiður Tryggvadóttir
heida@frettabladid.is RAÐAUGLÝSINGAR /FASTEIGNIR SÍMI 550 5056: Hrannar Helgason hrannar@frettabladid.is, Viðar Ingi Pétursson vip@frettabladid.is
ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR SÍMI 550-5055: Arna Rut Kristinsdóttir arnarut@frettabladid.is, Guðrún Inga Grétarsdóttir gudruninga@frettabladid.is
FAXAFENI 5
Reykjavík
588 8477
DALSBRAUT 1
Akureyri
588 1100
SKEIÐI 1
Ísafirði
456 4566
STILLANLEG RÚM • HEILSURÚM OG -DÝNUR • GAFLAR • SÆNGUR • KODDAR • SVEFNSÓFAR • STÓLAR • SÆNGURFÖT, O.FL.
60%A F S L ÁT T U R
A L LT A Ð
ÚTSALA
VEFVERSLUN
www.betrabak.is
OPIN ALLAN SÓLARHRINGINN
VÖLVUSPÁIN
Völvan spáði ýmsu óvæntu eins
og því að það myndi fjara undan
Facebook, átökum á vinnumarkaði,
áframhaldi #metoo-byltingarinnar
og ákveðnum væringum í borgar-
málunum. Ótrúlegt innsæi.
NÝJASTA VIÐBÓTIN Í
LISTAFLÓRU LANDSINS
Postprent er vef-
síða þar sem ís-
lenskir listamenn
geta selt prent af
verkunum sínum
á auðveldan hátt.
Bak við verkefnið
eru þeir Viktor
Weisshappel
Vilhjálmsson
og Þórður Hans
Baldursson en þeir eru báðir lista-
menn auk þess sem Þórður er
forritari. Svokallað „match made in
heaven“.
LOTTA FER Á NAGLADEKK
Leikhópurinn Lotta er á faraldsfæti
um þessar mundir og sýnir leikrit
sitt Rauðhettu um allt land langt
fram í mars. Nagladekkin verða því
undir Lottu-bílnum næstu mánuð-
ina sýnist okkur hér á Lífinu.
ÆVINTÝRALAND
HJALTALÍN SNÝR AFTUR
Ofurgrúppan Hjaltalín snýr aftur
með miklum látum. Nýju lagi með
ægifögru nýju myndbandi var
sleppt í hendurnar á þjóðinni auk
þess sem miðasala hófst á stærðar-
innar tónleika
í Eldborg.
Mögulega
er svo
plata á
leiðinni …
Þarna var leiklistardraum-urinn að byrja,“ segir Hilmir Snær Guðnason sem lék aðalhlutverkið í verkinu Tóm ást fyrir 30 árum sem Herranótt,
leikfélag MR, setti upp.
Verkið gerist í fjarlægri framtíð, í
Reykjavík árið 2019. Þá lendir ungur
geimprins hér í borg og leitar að
ástinni. Til að gera langa sögu stutta
finnur hann sína heittelskuðu á jap-
önskum veitingastað, svokölluðum
sushi-stað. Leikurinn berst síðan frá
sólkerfi til sólkerfis, vetrarbraut til
vetrarbrautar en fer þó aldrei lengra
en í 23. víddina.
Þetta var fyrsta leikritið sem Sjón
skrifaði. Síðan hefur töluvert vatn
runnið til sjávar og mörg verðlaun
fallið í hans skaut. Leikstjóri var Kol-
brún Halldórsdóttir og Hilmir Snær
í aðalhlutverki. Kári Schram kvik-
myndagerðarmaður sá um tæknilega
hlutann og búningarnir og gervin
sem Dominique Poulain sá um vöktu
sérstaka athygli. Tónlistina gerði Þór
Eldon.
„Ég man að þetta var skemmtilegt
verk og gekk töluvert lengi. Ég man
að það komu krakkar úr öðrum
skólum til að kíkja á okkur. Þetta sló
alveg í gegn,“ segir Hilmir. „Prinsinn
gekk um með hjartsláttarmæli til að
finna ástina. Það væri gaman að sjá
þetta aftur,“ segir Hilmir en hann
gegndi formannsembættinu hjá leik-
félaginu það árið.
benediktboas@frettabladid.is
Nútíminn með augum
Sjóns árið 1989
Fyrir 30 árum frumsýndi leikfélag MR verkið Tóm ást eftir Sjón.
Verkið gerðist í fjarlægri framtíð, nánar tiltekið árið 2019, og fjallar
um ungan geimprins sem lendir hér í borg og leitar að ástinni.
Hilmir Snær leikari var formaður leikfélags MR þegar verkið Tóm ást var sett upp fyrir 30 árum. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR
Kolbrún
Halldórs-
dóttir
leikstýrði
verkinu.
Úr dómi um
sýninguna
Það er óhætt að segja að Sjón
hafi með þessu verki sínu hitt
menntaskólanemana í hjarta-
stað. Gáskinn og húmorinn
féllu þarna í frjóan jarðveg
og þótt áhorfendur hafi
skemmt sér vel, þá held ég
að leikararnir hafi skemmt
sér enn betur. Sjálfsagt má
ýmislegt finna að útfærslu
leiksins, og kannski helst það
að hrollurinn og lífsháskinn á
óræðum brautum ástarinnar
hefði mátt vera meiri. En
margt var stórsnjallt og
hugmyndaríkt í notkun
ljósa, skyggni-
lýsingar og
kvikmynda, og
furðuverurnar
í verkinu voru
einfaldlega
frábærar.
Úr dómi Ólafs
Gíslasonar fyrir
Þjóðviljann 1989
Um sýninguna
Leikritið ber heitið „Tóm ást“ og
hefst árið 2019 í Reykjavík. Ungur
og glæsilegur geimprins leggur upp
í leit að kvonfangi. Hann finnur
konuna á japönsku veitinga-
húsi í Reykjavík þar sem
hún vinnur sem gengil-
beina. Meginefni sögu-
þráðarins má segja mjög
sígilt. Prinsinn tapar sinni
heittelskuðu fljótlega, leitar
hennar ákaft og að lokum
ná þau saman á ný eins
og vera ber í sígildum
ástarsögum. Leitin ber
hann vetrarbrauta á
milli, sólkerfi úr
sólkerfi, allt til
23. víddarinnar.
Sjón gerði sitt fyrsta leikverk þar sem
umfjöllunarefnið var Reykjavík árið 2019.
5 . J A N Ú A R 2 0 1 9 L A U G A R D A G U R52 L Í F I Ð ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð