Fréttablaðið - 05.01.2019, Page 105
Dreifing dreifing@postdreifing.is
Ef blaðið berst ekki 800 1177
Við segjum fréttir Smáauglýsingasíminn og skiptiborð 550 5000
Ritstjórn 550 5070 ritstjorn@frettabladid.is Auglýsingadeild 550 5050 auglysingar@frettabladid.is Prentun Ísafoldarprentsmiðja
mest lesna dagblað landsins.
ÞÚ GETUR NÁLGAST FRÍTT EINTAK AF
FRÉTTABLAÐINU VÍÐSVEGAR UM LANDIÐ.
Óskir þú eftir því að fá blaðið í áskrift, hafðu samband við Póstdreifingu.
Óttars
Guðmundssonar
BAKÞANKAR
Stærstur hluti þjóðarinnar er tengdur einhverjum samskipta-forritum á netinu. Sömu upp-
lýsingar fara með ofurhraða inná
hvert einasta heimili. Skoðanir og
álit fólks verður fyrir vikið einsleitt
sakir áhrifamáttar þessarar fjölmiðl-
unar. Netið stuðlar að pólitískri rétt-
hugsun þar sem ákveðnar skoðanir
og álit verða ráðandi. Með samstilltu
átaki netverja reynist auðvelt að
berja niður alla sem leyfa sér að
synda gegn straumnum. Sleggju-
dómar og stóryrtar yfirlýsingar
fara um netið hratt sem sinueldur.
Stjórnmálamenn eru lafhræddir
við hópefli netsins og óttast ekkert
meira en að verða dregnir fyrir dóm-
stól alþýðunnar í kommentakerfinu.
Almannarómur hefur um aldir
skemmt sér við að eyðileggja
mannorð ákveðinna einstaklinga.
Pólitísk rétthugsun hefur alltaf verið
við lýði. Fjölmargt ágætt fólk hefur á
liðnum öldum bakað sér reiði sam-
borgara sinna vegna skoðana sem
ekki þóttu pólitískt réttlætanlegar.
Má nefna Hallgrím Pétursson, Jónas
Hallgrímsson, Sigurð Breiðfjörð,
Skáld-Rósu, Hallgerði langbrók og
fleiri. Þetta fólk var allt hrakyrt af
samtíð sinni en fékk smám saman
fulla uppreisn æru. Sagan sýknar
venjulega þá sem sæta samstilltu
aðkasti frá hendi þjóðar sinnar.
Hallgerður var um aldir hataðasta
kona Íslandssögunnar en er nú
fyrirmynd annarra kvenna. Gunnar
Hámundarson var ofbeldismaður
á heimili og viðbrögð Hallgerðar
fyllilega réttlætanleg. Fordæming
sögunnar á frú Hallgerði var byggð á
misskilningi og karlrembu álitsgjaf-
anna. Flest upphlaupin á netinu eru
af sama toga og galdraofsóknir 17du
aldar. Smám saman átta menn sig á
því að sakarefnin eru smávægileg og
oft á tíðum hugarfóstur þeirra sem
hæst láta. Það bylur nefnilega hæst í
tómum tölvum, eins og Hallgrímur
Pétursson heyrðist segja á miðils-
fundi fyrir skemmstu.
Pólitísk
rétthugsun
FYRIR SVANGA
FERÐALANGA
*0,5 l gos í plasti frá Ölgerðinni.
Tilbúin vara, ekki hægt að breyta.
TORTILLA
OG GOS*
COMBO VERÐ:
499KR
Stendur undir nafni