Fréttablaðið - 29.11.2019, Side 3
SJÁVARÚTVEGUR Bláa hagkerfið,
eða öll starfsemi sem við kemur
hafinu í kringum Ísland, getur þre-
faldast að umfangi á næstu tveimur
áratugum. Í dag byggir bláa hag-
kerfið að mestu á hefðbundnum
sjávarútvegi en innan 20 ára mun
allt að helmingur veltu byggjast á
nýjum atvinnugreinum sem nýta
auðlindir hafsins.
Þetta er meðal annars það sem
kemur fram í nýju riti Íslenska
sjávarklasans sem nefnist „Bak
við yztu sjónarrönd“ og kemur út
innan tíðar.
„Hér felast því mörg tækifæri
til að skapa verðmæti og áhuga-
verð störf til framtíðar,“ segir Þór
Sigfússon, annar höfunda ritsins.
Hann segir mikinn vöxt geta orðið
áfram í tæknifyrirtækjum sem
tengjast hafinu, fiskeldi, líftækni
og fullvinnslu, þara og þörungum
svo eitthvað sé nefnt. „Ef svo fer
þá kann sjávarútvegur að verða
einungis helmingur af veltu haf-
tengdra greina hérlendis innan 20
ára. Það þýðir að bláa hagkerfið
gæti farið úr tæplega 400 milljarða
veltu í rösklega 1.300 milljarða,“
segir Þór. – ds / sjá síðu 18
— M E S T L E S N A DAG B L A Ð Á Í S L A N D I * —2 7 9 . T Ö L U B L A Ð 1 9 . Á R G A N G U R F Ö S T U D A G U R 2 9 . N Ó V E M B E R 2 0 1 9
20%
afsláttur
Allt að
fimmtudag, föstudag
og laugardag
Kringlunni - michelsen.is
BLACK
FRIDAY
BLACK FRIDAY BLACK FRIDAY BLACK FRIDAY BLACK FRIDAY BLACK FRIDAY BLACK FRIDAY
BLACK FRIDAY BLACK FRIDAY BLACK FRIDAY BLACK FRIDAY BLACK FRIDAY BLACK FRIDAY
HEILBRIGÐISMÁL Mikil óánægja
er meðal fagfólks sem starfar á
Barna- og unglingageðdeild Land-
spítalans. Starfsmannaveltan hefur
verið í kringum 45 prósent síðustu
ár meðal fagfólks.
„Vel þjálfaðir starfsmenn eru að
hverfa til annarra betur launaðra
starfa þar sem BUGL þykir ekki
samkeppnishæfur vettvangur eða
eftirsóknarverður vegna umtals-
vert lakari kjara en annars staðar
hjá ríki og sveitarfélögum,“ segir
Ingibjörg Karlsdóttir, félagsráðgjafi
hjá BUGL.
Dæmi eru um að fagfólki hafi
verið boðin einfaldari störf hjá
heilsugæslustöðvum og félags-
þjónustu sveitarfélaga með launa-
hækkun upp á 150 til 200 þúsund
krónur á mánuði.
Í dag eru 510 börn í þjónustu hjá
BUGL, um er að ræða viðkvæman
hóp barna með fjölþættan vanda.
Komum á göngudeild hefur fjölgað
töluvert á milli ára. Árið 2018
fjölgaði komum um 16 prósent.
Guðrún Bryndís Guðmundsdóttir,
yfirlæknir á BUGL, segir að útlit sé
fyrir að þeim haldi áfram að fjölga
á þessu ári um tæplega 15 prósent.
Í dag er 101 barn á biðlista eftir
þjónustu. – ab / sjá síðu 20
Mikil óánægja á BUGL
Mikil starfsmannavelta lengir biðina eftir þjónustu Barna- og unglingageð-
deildar Landspítalans. Meira en hundrað börn bíða nú eftir þjónustu á BUGL.
Hafsjór tækifæra
Hrímið gefur sölnuðum gróðri frá liðnu sumri ævintýralegan og hátíðlegan blæ. Undanfarna daga hefur verið kalt og stillt í höfuðborginni. Það eru kjöraðstæður fyrir hrímið sem leggst
yfir allt. Búast má þó við hlýnandi veðri í borginni næstu daga með hita og rigningu, hiti gæti farið í átta gráður á mánudag. Myndin var tekin við Elliðaárnar í gær. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON BRINK
Ef svo fer þá kann
sjávarútvegur að
verða einungis helmingur af
veltu haftengdra
greina hér-
lendis innan
20 ára.
Þór Sigfússon,
forstöðumaður
Sjávarklasans
REYKJAVÍK Aron Leví Beck, vara-
borgarfulltrúi Samfylkingarinnar,
krefur Vigdísi Hauksdóttur, odd-
vita Miðflokksins í Reykjavík, um
yfirlýsingu um bætta hegðun ásamt
afsökunarbeiðni vegna ásakana um
spillingu í garð Arons. Í bréfi sem
Vigdísi barst frá lögmanni Arons er
henni hótað aðgerðum. Prófessor
í sagnfræði segist ekki muna eftir
álíka dæmi í seinni tíð.
Málið snýst um ummæli sem Vig-
dís lét falla á borgarstjórnarfundi
19. nóvember þar sem hún sakaði
Aron Leví um spillingu vegna tengsla
hans við fyrirhugaða byggingu Bio-
dome í Elliðaárdal. – ab / sjá síðu 10
Hótar að stefna
Vigdísi Hauks
VIÐSKIPTI Íslandspóstur hefur þróað
örugga lausn fyrir dreifingu á áfengi
komi til þess að lagaramminn um
netverslun með áfengi breytist á
næsta ári. Þetta segir Birgir Jónsson,
forstjóri Íslandspósts, í samtali við
Fréttablaðið. Tryggt verður að viðtak-
andi sé sá sami og sá sem pantar og
að hann hafi aldur til kaupa á áfengi.
Dómsmálaráðherra hyggst leggja
fyrir frumvarp á Alþingi í mars sem
heimilar kaup á áfengi í netverslun án
aðkomu Áfengis- og tóbaksverslunar
ríkisins. – þfh / sjá síðu 4
Með lausn fyrir
dreifingu á áfengi
Aron Leví Beck,
varaborgarfull-
trúi Samfylk-
ingarinnar.
2
9
-1
1
-2
0
1
9
0
5
:3
5
F
B
0
9
6
s
_
P
0
9
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
9
6
s
_
P
0
8
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
9
6
s
_
P
0
0
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
9
6
s
_
P
0
1
4
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 2
4
5
F
-2
2
F
4
2
4
5
F
-2
1
B
8
2
4
5
F
-2
0
7
C
2
4
5
F
-1
F
4
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
3
A
F
B
0
9
6
s
_
2
8
_
1
1
_
2
0
1
C
M
Y
K