Fréttablaðið - 29.11.2019, Síða 12

Fréttablaðið - 29.11.2019, Síða 12
REYKJAVÍK Aron Leví Beck, vara- borgarfulltrúi Samfylkingarinnar, krefur Vigdísi Hauksdóttur, odd- vita Miðflokksins í Reykjavík, um afsökunarbeiðni og yfirlýsingu um bætta hegðun. Í bréfi sem Páll Berg- þórsson, lögmaður Arons Levís, sendi á Vigdísi í síðustu viku er henni veittur þriggja daga frestur til að verða við kröfunni. Kemur fram í bréfinu að orðræða Vigdísar gegn Aroni Leví feli í sér refsiverðar aðdróttanir samkvæmt hegningar- lögum. Samkvæmt refsiramman- um er þyngsta refsing vegna meið- yrða tveggja ára fangelsi. Málið snýst um ummæli Vigdísar á borgarstjórnarfundi 19. nóvem- ber síðastliðinn þar sem Vigdís sak- aði Aron Leví um spillingu vegna tengsla hans við fyrirhugaða bygg- ingu Aldin Biodome við Stekkjar- bakka í útjaðri Elliðaárdalsins. Fram kemur í bréfinu að Aron Leví hafi árið 2015 sem nemandi í skipulagsfræðum tekið þátt í rannsókn á nýtingarmöguleikum affallsvatns úr Laugardalslaug við upphitun gróðurhvelfinganna, en á þeim tíma voru uppi hugmyndir um að reisa gróðurhvelfingarnar í Laugardal. Athugasemdir eru gerðar við að Vigdís skuli á borgarstjórnarfund- inum hafa lesið upp viðtal við Aron Leví frá árinu 2015 og sagt í kjölfar- ið: „Svona er spillingin í Reykjavík.“ Þá ýjaði hún að því að Aron Leví hefði „keyrt verkefnið áfram“ og „látið annarlega“. Einnig að hann hefði gengið í Samfylkinguna til að tryggja framgang verkefnisins. „Bio Dome í Elliðaárdal er keyrt áfram með offorsi af meirihlut- anum. Nú eru komnar skýringar á því. Einn borgarfulltrúi Samfylk- ingarinnar ber kápuna á báðum öxlum,“ segir í bókun Vigdísar. Einnig að með því að víkja af fund- um þar sem málið var til umræðu hafi hann gengist við því að tengj- ast verkefninu. Þar að auki vekur hún athygli á því að Aron Leví var í varastjórn Hollvinasamtaka Ell- iðaárdalsins á tímabili og beitti sér fyrir því að Elliðaárdalur yrði ekki friðlýstur. Sambærileg ummæli má finna í útvarpsviðtölum við Vigdísi í síðustu viku. Lögmaður Arons segir að í stað þess að gagnrýna verkefnið sé Vigdís að draga persónu Arons Levís inn í umræðuna að ósekju. „Þau ummæli sem eru rakin hér að framan beinast að persónu umbjóðanda míns og fara langt yfir öll velsæmismörk. Langsóttar full- yrðingar um tengsl umbjóðanda míns við milljarðauppbyggingu, dylgjur um spillingu og einhvers konar áframkeyrslu verkefnisins innan borgarstjórnar eru augljós- lega til þess fallnar að rýra orð- spor umbjóðanda míns og vega að starfsheiðri hans,“ segir í bréfinu til Vigdísar. „Umbjóðandi minn ætlar ekki að sitja undir orðræðu þinni, enda felur hún í sér ólög- mæta meingerð og atvinnuróg sem enginn þarf að sæta á opinberum vettvangi, hvorki kjörnir fulltrúar né aðrar opinberar persónur.“ Bréfið er dagsett 21. nóvember síðastliðinn. Hafði hún til 24. nóv- ember til að verða við kröfu um afsökunarbeiðni. „Að öðrum kosti má búast við því að gripið verði til frekari aðgerða til að rétta hlut umbjóðanda míns, eftir atvikum með atbeina sýslumanns. Í því samhengi er áskilinn réttur til að auka við kröfur, breyta þeim og bæta við málsástæður, allt eftir því sem lög leyfa og umbjóðanda mínum hentar hverju sinni.“ Vigdís segist í samtali við Frétta- blaðið ekki ætla að biðjast afsökun- ar. „Mitt svar við þessum ofsóknum skrifstofu borgarstjóra og borgar- ritara hefur alltaf verið – stefniði mér þá. Þau eru búin að elta mig á siðareglunum og ekkert gengur að ala mig upp,“ segir Vigdís og hlær. „See you in court! Þetta er þannig mál.“ Ekki hefur tíðkast að stjórnmála- menn á Íslandi stefni hverjir öðrum fyrir meiðyrði. Guðmundur Hálf- dánarson, prófessor í sagnfræði við Háskóla Íslands, man ekki eftir slíku dæmi í seinni tíð. „Það voru heilmikil læti á fjórða áratugnum þar sem menn voru ásakaðir um geðveiki og annað slíkt, en það er ekkert sem ég man eftir nýlega þar sem leitað er til lögmanns,“ segir Guðmundur. Nærtækasta dæmið væri úrskurður siðanefndar Alþingis í máli Þórhildar Sunnu Ævarsdóttur, þingmanns Pírata, og Ásmundar Friðrikssonar, þing- manns Sjálfstæðisflokksins. Guðmundur segir að síðustu ára- tugi hafi stjórnmálaumræðan að mestu verið laus við persónuárásir líkt og tíðkaðist á tímum persónu- kjörs. Vísar hann þá í Jónas frá Hrif lu sem eigi það sameiginlegt með Vigdísi að geta umturnað geð- prúðustu mönnum. „Jónas hafði þessi áhrif alls staðar, geðprúðustu menn hreinlega umturnuðust. Vig- dís er þannig líka. Mér skilst að það sé erfitt að vera í Ráðhúsinu því að samskiptin séu svo eitruð. Þannig að þetta kemur ekki á óvart.“ arib@frettabladid.is Krefur Vigdísi um afsökunarbeiðni Vigdís Hauksdóttir, oddviti Miðflokksins í Reykjavík, skorar á Aron Leví að stefna henni. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON BRINK Varaborgarfulltrúi Samfylkingarinnar fer fram á að Vigdís Hauks- dóttir, borgarfulltrúi Miðflokksins, biðjist afsökunar á ásökunum um spillingu. Í bréfi lög- manns er Vigdísi hótað aðgerðum. Prófessor í sagnfræði man varla eftir öðru eins. Jónas hafði þessi áhrif alls staðar, geðprúðustu menn hrein- lega umturnuðust. Vigdís er þannig líka. Mér skilst að það sé erfitt að vera í Ráð- húsinu því að samskiptin séu svo eitruð. Þannig að þetta kemur ekki á óvart. Guðmundur Hálfdánarson, prófessor í sagnfræði við Háskóla Íslands VIÐSKIPTI Að mörgu þarf að huga við móttöku kínverskra ferða- manna því að menningarmunur- inn getur verið mikill. Af því til- efni mun Íslandsstofa standa fyrir fræðslufundi þann 22. janúar í samvinnu við Ferðamálastofu, kín- verska sendiráðið, Samtök versl- unar og þjónustu, Samtök ferða- þjónustu og Íslenska-kínverska verslunarráðið. Kínverskum ferðamönnum fjölg- ar sífellt á Íslandi. Þannig hafa tæp- lega 100 þúsund Kínverjar heim- sótt landið undanfarna tólf mánuði sem er aukning um 14 prósent. Að öllum líkindum munu þessar tölur hækka á næstunni. Eins og Fréttablaðið greindi frá í vikunni mun kínverska flugfélagið Juneyao Air hefja áætlunarflug til Íslands tvisvar í viku næsta vor og f leiri þarlend f lugfélög eru með Ísland í skoðun sem áfangastað. Fljótlega á næsta ári verða svo kín- verskir raunveruleikaþættir, þar sem Ísland er í stóru hlutverki, sýndir sem verður mikil landkynning. Að sögn Þorleifs Þórs Jónssonar, verkefnastjóra hjá Íslandsstofu, er áðurnefndur fræðslufundur löngu tímabær. „Megináhersla fundarins verður sú að kynna fyrir framvarð- arsveit íslenskrar ferðaþjónustu, til dæmis starfsfólki í móttöku gisti- staða, rútubílstjórum og leiðsögu- fólki, ýmis atriði sem geta bætt upplifun kínverskra ferðamanna. Það er talsverður menningarmun- ur milli þeirra og vestrænna ferða- manna og mikilvægt að upplýsa starfsfólk um þankagang þessara ferðamanna. Það gerir reynslu allra betri,“ segir Þorleifur. Hann nefnir sem dæmi það sem slegið er hér upp í fyrirsögn. Kínverskir ferðamenn vilja gott aðgengi að heitu vatni því það kjósa þeir helst að drekka, heils- unnar vegna. Undirbúningur fyrir f jölgun kínverskra ferðamanna er líka í gangi hjá Isavia. Að sögn Guðjóns Helgasonar, upplýsingafulltrúa Isavia, hefur fyrirtækið á síðustu misserum lagt áherslu á að ná til kínverskra farþega. „Þannig er þegar hægt að greiða fyrir vörur og þjónustu á Kef la- víkur f lug velli með Alipay og WeChat Pay sem eru meðal vin- sælustu greiðslulausna í Kína. Þá er Kef lavíkurf lugvöllur á WeC- hat og DianPing sem eru mikið notaðir samfélagsmiðlar í Kína,“ segir Guðjón. Þar finni kínverskir ferðalangar helstu þjónustuupp- lýsingar fyrir Kef lavíkurf lugvöll. Hann segir einnig að Isavia muni halda áfram að þróa þjónustu fyrir Kínverja í samstarfi við sendiráð landsins. – bþ Búa sig undir fjölgun kínverskra ferðamanna með fræðslufundi Það er talsverður menningarmunur milli þeirra og vestrænna ferðamanna og mikilvægt að upplýsa starfsfólk um þankagang þessara ferða- manna. Það gerir reynslu allra betri Þorleifur Þór Jónsson, verkefna- stjóra hjá Íslands- stofu Kínverskir ferðamenn eyða mest allra þeirra sem sækja Ísland heim 2 9 . N Ó V E M B E R 2 0 1 9 F Ö S T U D A G U R10 F R É T T I R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð 2 9 -1 1 -2 0 1 9 0 5 :3 5 F B 0 9 6 s _ P 0 9 2 K .p 1 .p d f F B 0 9 6 s _ P 0 8 5 K .p 1 .p d f F B 0 9 6 s _ P 0 0 5 K .p 1 .p d f F B 0 9 6 s _ P 0 1 2 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 2 4 5 F -3 6 B 4 2 4 5 F -3 5 7 8 2 4 5 F -3 4 3 C 2 4 5 F -3 3 0 0 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 5 A F B 0 9 6 s _ 2 8 _ 1 1 _ 2 0 1 C M Y K
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.