Fréttablaðið - 29.11.2019, Síða 14
MENNTAMÁL „Skólastarfið er þró-
unarstarf og við erum sífellt að leita
leiða til að auka árangur nemenda
okkar,“ segir Lovísa Guðrún Ólafs-
dóttir, aðstoðarskólastjóri í Hóla-
brekkuskóla.
Skólinn skrifaði nýlega undir
starfs samning um innleiðingu
nýrrar kennsluaðferðar í lestri
ásamt fjórum öðrum grunn skólum
hverfisins, Ölduselsskóla, Fella-
skóla, Selja skóla og Breið holts skóla.
Aðferðin, PALS, hentar að sögn
Lovísu Guðrúnar vel í kennslu fjöl-
breyttra nemendahópa.
„Nemendur v inna saman í
pörum og eru paraðir saman út frá
lestrarfærni þannig að allir fá les-
efni við hæfi sem er lykilforsenda
þess að árangur náist,“ segir Lovísa.
„Nemendur vinna tveir og tveir
saman eftir fyrirfram ákveðnu
ferli. PALS-aðferðin eða Pör að læra
saman, einkennist af skýrri upp-
byggingu kennslustunda þar sem
áhersla er á virkni nemenda allan
tímann,“ segir hún og bætir við
að aðferðin geti veitt nemendum
öryggi því hún felur í sér að börnin
viti hvernig kennslustundin er upp-
byggð.
„Nemendur vita alltaf hvað
kemur næst í vinnuferlinu. Það að
vita ekki hvað á að gera næst getur
orsakað óöryggi hjá sumum nem-
endum,“ segir hún.
Kennslan fer þannig fram að þeir
nemendur sem paraðir eru saman
lesa til skiptis upp hvor fyrir annan
og eru leiðréttir af félaga sínum ef
þeir lesa rangt orð eða hljóð. Reglu-
legt hrós er einnig hluti af aðferð-
inni og er gefið samhliða lestrinum
til að hvetja nemendur áfram.
Hulda Karen Daníelsdóttir átti
frumkvæði að innleiðingu PALS
á Íslandi og segir hún rannsóknir
Fáðu fréttablað dagsins í
tölvupósti kl. 3.00 á morgnana.
Skráðu þig á póstlista blaðsins á
www.frettabladid.is#nyskraning
Það kostar ekkert.
Vertu fyrst/ur
að lesa blaðið
PALS einkennist af
skýrri uppbyggingu
kennslustunda.
Lovísa Guðrún Ólafsdóttir,
aðstoðarskólastjóri
Hólabrekkuskóla
UMHVERFISMÁL Björk Brynjarsdótt-
ir, einn af stofnendum Jarðgerðar-
félagsins, hefur staðið í ströngu
síðustu mánuði við að kynna og
kenna jarðgerðaraðferð sem nefnist
Bokashi. „Þetta er frekar auðveld og
notendavæn leið til að minnka kol-
efnissporið heiman frá,“ segir Björk
í samtali við Fréttablaðið. Aðferðin
er þó ekki aðeins þægileg fyrir not-
endur heldur einnig ein umhverfis-
vænasta leiðin til að farga úrgangi.
Það sem aðgreinir Bokashi frá
öðrum aðferðum er sjálf bærnin
að mati Bjarkar. Lífrænn úrgangur
verður ekki að metangasi, líkt og í
landfyllingum, og þar sem úrgang-
urinn er gerjaður við loftfirrtar
aðstæður leysir úrgangurinn hvorki
kolefni né nitur út í andrúmsloftið
líkt og gerist í hefðbundinni moltu-
gerð.
Skref fyrir skref er ferlið nokkuð
einfalt. „Fyrst er lífrænn úrgangur
settur í Bokashi-tunnu og við hann
er blandað örveruklíði. Eftir tvær
vikur er úrgangurinn gerjaður
og honum blandað við venjulega
mold. Tveimur vikum seinna er
síðan orðin til kolefnisrík mold
sem hægt er að nýta,“ segir Björk og
bætir við að leifar af mat geti enn þá
sést. „Sem er allt í lagi því að plönt-
unum okkar er alveg sama þó þær
nýti næringarefni úr einhverju sem
lítur smá út eins og banani.“
Drulla af guðs náð
Daglega fer mikið af kolefnum úr
moldinni út í andrúmsloftið. „Þess
vegna er alger snilld að það sé hægt
Skila kolefnunum aftur í jarðveginn
PALS-lestrartæknin hentar einkar vel þar sem er fjölbreyttur hópur nemenda.
Kenna lestur með nýrri tækni
í grunnskólunum í Breiðholti
Nú í haust tóku allir fimm grunnskólarnir í Breiðholti upp nýja aðferð í lestrarkennslu, PALS. Starfs-
samningur um innleiðingu hennar var undirritaður í október og er markmið samningsins að mennta
sem flesta kennara í aðferðinni. Kennsluaðferðin er sögð veita nemendum öryggi og auka færni þeirra.
benda til þess að f lestir nemendur
sem noti aðferðina sýni meiri fram-
farir í námi en þeir sem ekki nota
hana.
Hulda Karen gefur grunnskólum
í Breiðholti námskeiðin sem kenn-
ararnir sækja í námstækninni en
skólarnir greiða sjálfir fyrir náms-
efnið sem notað er.
Hún segir PALS gagnast vel alls
staðar en að Breiðholtið sé góður
staður til að byrja á. „Ástæðan
fyrir gjöfinni er fyrst og fremst sú
að í grunnskólunum í Breiðholtinu
stundar einstaklega fjölbreyttur
nemendahópur nám og PALS, sem
er raunprófuð aðferð, nýtist sér-
lega vel við þannig aðstæður,“ segir
Hulda.
birnadrofn@frettabladid.is
að skila kolefnunum aftur í jarð-
veginn. Í staðinn fyrir að losunin
fari beint út í loftið fer hún aftur til
síns heima,“ segir Björk hreykin.
„Það gleymist oft að þrátt fyrir
að okkur finnist jarðvegur bara
vera drullan undir fótum okkar þá
er hún þriðji stærsti kolefnistankur
jarðarinnar.“ Grjótið og hafið eiga
fyrstu tvö sætin. „Sjórinn tekur við
rosalega miklu af kolefnum úr and-
rúmsloftinu sem veldur því að hann
er að súrna, sem við viljum ekki.“
Annað er uppi á teningnum hjá
moldinni. „Við viljum hafa kolefnin
í moldinni okkar, það er bara alveg
frábært og líka moldinni sjálfri fyrir
bestu.“ Í urðunaraðferðum dagsins
í dag er hins vegar ekki lögð mikil
áhersla á að halda kolefnum í jarð-
veginum.
Áþreifanleg áhrif
Björk kynntist Bokashi-aðferðinni
í Danmörku og sá strax tækifæri til
að kynna landi og þjóð tæknina.
„Mig langaði til að hvetja fólk til að
taka til hendinni heima hjá sér.“
Í kjölfar vitundarvakningar í
samfélaginu séu sífellt f leiri tilbúnir
að innleiða umhverfisvæna valkosti
í sitt daglega líf. „Fólk hefur tekið
mjög vel í þetta og það hefur mynd-
ast lítið samfélag í Facebook-hóp
Jarðgerðarfélaga þar sem meðlimir
spyrja spurninga og deila reynslu-
sögum af úrganginum sínum.“
Nú hyggst Jarðgerðarfélagið færa
út kvíarnar og hefur hafið samstarf
við Sorpstöðina Strönd í Rangár-
vallasýslu. „Þau eru að vinna að
því að endurskoða endurvinnslu í
sveitarfélaginu og byrjuðu núna í
júlí að sérsafna lífrænum úrgangi
frá öllum heimilum í umdæminu.“
Árið 2020 mun Jarðgerðarfélagið
svo gerja úrganginn með téðri
aðferð og nýta hann svo í land-
græðslu á svæðinu. „Það verður
mjög spennandi að sjá hvort þessi
frumraun skili sér í þeim umhverf-
isáhrifum sem við búumst við.“
kristlin@frettabladid.is
Björk segir fólk taka vel í Bokashi-
aðferðina. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON BRINK
Pizza í kvöld?
Einföld og bragðgóð pizza
fyrir alla fjölskylduna
á gottimatinn.is
VIÐSKIPTI Félag atvinnurekenda
(FA) gefur lítið fyrir ákvörðun og
rökstuðning ráðgjafarnefndar um
inn- og útf lutning landbúnaðar-
vara fyrir að hafna tollalækkun á
innflutning túlípana. Fram kemur
í röksemdum nefndarinnar að nú
stefni í meiri innlenda framleiðslu á
túlipönum en í fyrra og að leiðandi
dreifingaraðili eigi birgðir af túli-
pönum sem hann geti ekki selt.
„Þessar röksemdir eru mark-
leysa. Það að það komi túlípanar
í verslanir um miðjan desember
hefur ekkert að gera með framboð-
ið á markaðnum í nóvember,“ segir
Ólafur Stephensen, framkvæmda-
stjóri FA. Varðandi birgðirnar segir
hann það einmitt vegna hárra tolla,
verð á búnti á túlípönum sé nærri
því 3.000 krónur í Hagkaup sem sé
þrefalt dýrara en í mörgum öðrum
borgum Evrópu og fimmfalt dýrara
en í Hollandi.
„Við getum hvorki fallist á niður-
stöðuna né rökstuðninginn. Hvorki
innlendir né innf luttir túlípanar
hafa fengist í verslunum á hæfi-
legu verði og hafa ekki gert síðan
FA sendi beiðni um niðurfellingu
tolla 9. október,“ segir Ólafur. – ab
Þrefalt hærra
verð á Íslandi
Við getum hvorki
fallist á niðurstöð-
una né rökstuðn-
inginn.
Ólafur
Stephensen,
framkvæmda-
stjóri FA
2 9 . N Ó V E M B E R 2 0 1 9 F Ö S T U D A G U R12 F R É T T I R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
2
9
-1
1
-2
0
1
9
0
5
:3
5
F
B
0
9
6
s
_
P
0
9
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
9
6
s
_
P
0
8
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
9
6
s
_
P
0
0
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
9
6
s
_
P
0
1
4
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
2
4
5
F
-2
2
F
4
2
4
5
F
-2
1
B
8
2
4
5
F
-2
0
7
C
2
4
5
F
-1
F
4
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
3
A
F
B
0
9
6
s
_
2
8
_
1
1
_
2
0
1
C
M
Y
K