Fréttablaðið - 29.11.2019, Side 22
SAMFÉLAG „Bæirnir eiga sér mjög
sérstakt vinabæjarsamstarf sem
var stofnað til árið 1988,“ segir
Andri Ómarsson, verkefnastjóri
hjá Hafnarfjarðarbæ.
Hafnarbæirnir Hafnarfjörður og
Cuxhaven í Þýskalandi hafa átt í
farsælu vinabæjasamstarfi í rúm
þrjátíu ár. Ein af elstu hefðum
samstarfsins er jólatré sem Cux-
haven færir Hafnarfjarðarbæ á
hverju ári.
„Strax á fyrsta ári vinabæja-
samstarfsins ákvað Cuxhaven að
senda jólatré til Hafnarfjarðar.
Upphaf lega fóru þau á milli með
fiskiskipum en Samskip, sem sigla
vikulega milli Íslands og Cux-
haven, hafa undanfarin ár f lutt
tréð og við kunnum þeim miklar
þakkir fyrir,“ segir Andri.
„Grenitré í Hafnarf irði hafa
sennilega ekki verið há í loftinu
þegar vinir okkar hófu að senda
okkur jólatré fyrir þrjátíu árum
en það hefur heldur betur breyst í
dag. Öll önnur jólatré sem eru sett
upp á opnum svæðum víða um
bæinn í ár eru fengin úr görðum
bæjarbúa þar sem þau hafa lokið
hlutverki sínu,“ bætir hann við.
Ljósin verða tendruð á Cux-
haven-trénu klukkan 18.30 í kvöld
og verður það í þrítugasta skiptið.
Jólatréð mun standa í miðju jóla-
þorpinu sem verður opið allar
helgar fram að jólum.
„Í jólaþorpinu í hjarta bæjarins
höfum við náð að skapa notalega
stemningu þar sem ilmandi jóla-
stemning, ljúfir tónar og freistandi
veitingar draga að fjölda gesta. Ég
verð að viðurkenna að ég er til
dæmis mjög spenntur að smakka
upprúllaða hangikjötið frá sauð-
f járbúinu á Ytra-Hólmi,“ segir
Andri brosandi.
Von er á tíu manna sendinefnd
frá Cuxhaven sem verður viðstödd
þegar kveikt verður á trénu og má
því segja að mikið liggi við.
„Tilefnið, að þetta sé þrítugasta
tréð, er ástæðan fyrir fjölmennu
fylgdarliðinu en tíminn verður
nýttur vel til þess að skipuleggja
þau samstarfsverkefni sem fram
undan eru,“ segir Andri. – bdj
Ljósin kveikt í þrítugasta sinn á Cuxhaven-trénu í Hafnarfirði
Andri fyrir framan jólatréð frá vinabæ Hafnarfjaarðar, Cuxhaven, sem
kveikt verður á í Jólaþorpinu í Hafnarfirði í kvöld. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR
Starfsmenn göngu-
deildar BUGL eru
að öllu jöfnu dagvinnufólk,
margir starfsmenn eru í
tveimur störfum til að ná
endum saman, þrátt fyrir
langa skólagöngu og sér-
hæfingu.
Ingibjörg Karlsdóttir,
félagsráðgjafi hjá BUGL
HEILBRIGÐISMÁL Síðastliðin ár hafa
verið BUGL þung í skauti og hefur
starfsmannavelta verið um 45
prósent meðal fagfólks. Á síðustu
vikum og mánuðum hefur borið á
auknum kvörtunum starfsmanna
vegna vaxandi álags. Þar innan-
dyra er mikil umræða um léleg
kjör almennt, þá sérstaklega meðal
starfsmanna í BHM, sálfræðinga,
félagsráðgjafa og iðjuþjálfa. Á það
einnig við um hjúkrunarfræðinga
og fleiri starfshópa.
Ingi Jón Hauksson, sálfræðingur
á göngudeild BUGL, segir starfsfólk
geta gengið að mun betri kjörum hjá
heilsugæslustöðvum, félagsþjón-
ustu og barnavernd sveitarfélaga.
Hann segir starfsemi BUGL mjög
sérhæfða og það taki langan tíma
að þjálfa starfsfólkið. „Það gefur
augaleið að mikil starfsmannavelta
er mjög truflandi fyrir starfsemina.
Þetta hefur áhrif á gæði þjónust-
unnar þar sem þjálfun nýrra starfs-
manna tekur langan tíma, auk þess
sem mikið viðbótarálag fylgir því
að vera stöðugt með nýliða í þjálfun,
sem hægir á allri starfsemi.“
Guðrún Bryndís Guðmunds-
dóttir, yfirlæknir á BUGL, tekur í
sama streng. „Það er oftast eftir-
sóknarvert að vinna á BUGL. Fag-
fólk vill koma hingað til að sækja
sér reynslu og þekkingu. Það getur
verið erfiðara að halda fólki yfir
lengri tíma. Fagfólk nefnir oftast
bág kjör og mikið álag sem ástæðu
þess að það velur að hætta,“ segir
Guðrún Bryndís.
Hlutverk BUGL er að veita sér-
fræðiþjónustu fyrir börn og fjöl-
skyldur þeirra með fjölþættan
vanda, þar á meðal geð - og þroska-
raskanir. Starfsemin skiptist í
göngudeild og legudeild ásamt
bráðaþjónustu fyrir börn og ungl-
inga þar sem grunur er um sjálfs-
vígshættu eða alvarlegri geðræn
einkenni. Alls starfa þar um 80
starfsmenn.
Í dag eru 510 börn í þjónustu hjá
BUGL. Komum á göngudeild hefur
fjölgað töluvert á milli ára. Árið
2018 fjölgaði þeim um 16 prósent.
Guðrún Bryndís segir útlit fyrir að
þeim haldi áfram að fjölga á þessu
ári um tæplega 15 prósent. Í dag er
101 barn á biðlista eftir þjónustu.
Ingibjörg Karlsdóttir félagsráð-
gjafi segir að launamunurinn sé
mikill. „Starfsmenn göngudeildar
BUGL eru að öllu jöfnu dagvinnu-
fólk, margir starfsmenn eru í tveim-
ur störfum til að ná endum saman,
þrátt fyrir langa skólagöngu og sér-
hæfingu,“ segir Ingibjörg.
Ingi Jón segir að fagfólki BUGL
hafa verið boðin mun hærri grunn-
laun hjá öðrum ríkisstofnunum
og sveitarfélögum. „Við erum að
tala um mánaðarlega hækkun um
150 þúsund krónur og upp í 200
þúsund.“
Þau segja þetta skjóta skökku við
í ljósi þess árangurs sem BUGL hefur
náð á síðasta áratug. „Við getum
nefnt samráðsteymi með heilsu-
gæslu, félags- og skólaþjónustu, í
nærumhverfi, bæði á höfuðborgar-
svæði og á landsvísu,“ segir Ingi-
björg. Sú aukna sérfræðiþjónusta
og samvinna hafi orðið til þess að
málin sem fagfólk BUGL er að sinna
séu tímafrekari, þyngri og flóknari.
Þá hefur átak Landspítalans
við að kosta sérhæfða símenntun
starfsmanna til að byggja undir
góða og sérhæfða meðferð og þjón-
ustu orðið til þess að starfsmenn-
irnir hafi orðið eftirsóttari annars
staðar í kerfinu.
Ingibjörg segir að það þurfi að
grípa inn í. „Ríkið þarf að snúa við
þessari öfugþróun í kjaramálum
Landspítalans með því að tryggja
betur samkeppnishæf laun hjá
þessum fagstéttum til að BUGL og
Landspítalanum haldist betur á sér-
hæfðu starfsfólki.“
Eina krafan sé að gera launin
sambærileg þeim sem bjóðast á
öðrum stöðum. „Öllum má vera
ljóst að krafa um gæðaþjónustu
rímar illa við láglaunastefnu sem
hefur viðgengist til margra ára og
grefur undan allri uppbyggingu
sérþekkingar og faglegrar þróun-
ar,“ segir Ingibjörg. „Þessi láglauna-
stefna í boði stjórnvalda er í hróp-
legu ósamræmi við yfirlýsta stefnu
Landspítalans og viljayfirlýsingu
fimm ráðuneyta og sveitarfélaga
um að auka samstarf milli málefna-
sviða til að bæta þjónustu við börn
og unglinga.“
arib@frettabladid.is
Geta gengið að betri kjörum
víða annars staðar í kerfinu
Mikil starfsmannavelta er á Barna- og unglingageðdeild Landspítalans vegna lélegra launa og álags.
Fagfólk segir ástandið ganga í berhögg við vilja stjórnvalda um að bæta þjónustu við börn og unglinga.
Mikil starfsmannavelta hefur verið meðal fagfólks á Barna- og unglingageðdeild, BUGL, síðastliðin ár eða um 45 prósent. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON BRINK
SAG N F R Æ Ð I Bú naðarsamband
Austurlands leitar nú til sveitar-
félaga á svæðinu til að styrkja gerð
þriðju útgáfu af ritröðinni Sveitir
og jarðir í Múlaþingi. Ætlunin er
að færa allar helstu upplýsingar
um lögbýli til nútímans.
Fram kemur í styrktarbeiðni
BSA að ekki liggi fyrir áætlanir um
kostnað. „Þó er nokkuð ljóst að
heildarkostnaður verður án vafa
öfugum megin við 20 milljónir,
segir í bréfinu. Líklega sé um að
ræða um fimm hundruð lögbýli og
framlag upp á tíu til fimmtán þús-
und krónur á hvert þeirra myndi
auðvelda að hrinda hugmyndinni
í framkvæmd.
„Rökin fyrir því að leita til sveit-
arfélaga eru einkum þau að um er
að ræða heildstæða söfnun upplýs-
inga sem til framtíðar mun nýtast
til að að skrá þennan þátt atvinnu-
og byggðasögu á starfssvæði BSA.“
Sveitarstjórn Djúpavogs hefur
þegar lýst yfir vilja til að taka þátt
í að fjármagna útgáfu ritverksins
með þeim hætti sem óskað er. – gar
Leita drjúgra
styrkja fyrir
jarðaskráningu
Á Djúpavogi. FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR
KJARAMÁL Starfsgreinasambandið
(SGS) fordæmir í yfirlýsingu gjald-
skrárhækkanir sem víða eru boð-
aðar hjá sveitarfélögum. Um sé að
ræða hækkanir sem jafnvel nemi á
annan tug prósenta auk yfirgengi-
legra hækkana á launum bæjar-
stjórnarfólks.
Þá eru verulegar hækkanir og
breytingar á leigukjörum í félags-
legu húsnæði einnig gagnrýndar
harðlega.
Telur SGS að hér sé um brot
að ræða á yfirlýsingu Sambands
sveitarfélaga sem gefin var út í
tengslum við lífskjarasamningana.
Þar var því beint til sveitarfélaga
að hækka ekki gjaldskrár sínar
umfram 2,5 prósent á næsta ári.
SGS skorar á sveitarfélög að
standa við umrædda yfirlýsingu og
axla þannig ábyrgð á því að mark-
mið kjarasamninganna náist. – sar
SGS fordæmir
hækkanir
2 9 . N Ó V E M B E R 2 0 1 9 F Ö S T U D A G U R20 F R É T T I R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
2
9
-1
1
-2
0
1
9
0
5
:3
5
F
B
0
9
6
s
_
P
0
7
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
9
6
s
_
P
0
7
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
9
6
s
_
P
0
2
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
9
6
s
_
P
0
2
7
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
2
4
5
F
-4
5
8
4
2
4
5
F
-4
4
4
8
2
4
5
F
-4
3
0
C
2
4
5
F
-4
1
D
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
6
B
F
B
0
9
6
s
_
2
8
_
1
1
_
2
0
1
C
M
Y
K