Fréttablaðið - 29.11.2019, Síða 28
Frá degi til dags
Halldór
ÚTGÁFUFÉLAG: Torg ehf. STJÓRNARFORMAÐUR: Helgi Magnússon FORSTJÓRI OG ÚTGEFANDI: Jóhanna Helga Viðarsdóttir RITSTJÓRAR: Davíð Stefánsson david@frettabladid.is, Jón Þórisson jon@frettabladid.is,
MARKAÐURINN: Hörður Ægisson hordur@frettabladid.is FRÉTTABLAÐIÐ.IS: Sunna Karen Sigurþórsdóttir sunnak@frettabladid.is.
Fréttablaðið kemur út í 80.000 eintökum og er dreift ókeypis á heimili á höfuðborgarsvæðinu og Akureyri. Einnig er hægt að fá blaðið í völdum verslun um á landsbyggðinni. Fréttablaðið áskilur sér rétt til að birta allt efni blaðsins í stafrænu formi og í gagnabönkum
án endurgjalds. ISSN 1670-3871 FRÉTTABLAÐIÐ Kalkofnsvegur 2, 101 Reykjavík Sími: 550 5000, ritstjorn@frettabladid.is HELGARBLAÐ: Kristjana Björg Guðbrandsdóttir kristjanabjorg@frettabladid.is MENNING: Kolbrún Bergþórsdóttir kolbrunb@frettabladid.is
LJÓSMYNDIR: Anton Brink anton@frettabladid.is FRAMLEIÐSLUSTJÓRI: Sæmundur Freyr Árnason sfa@frettabladid.is
Hörður
Ægisson
hordur@frettabladid.is
Stanslaus
útgjalda-
þensla, á
öllum
sviðum hins
opinbera, á
ekki – og má
ekki – verða
að náttúru-
lögmáli.
Við upphaf umróts fjórðu iðnbyltingarinnar stöndum við á tímamótum þar sem miklu skiptir að marka afgerandi stefnu í þágu
nýsköpunar og fylgja henni markvisst eftir með
aðgerðum.
Í gær kynnti ég fyrstu aðgerðirnar í þágu hinnar
nýju og metnaðarfullu nýsköpunarstefnu fyrir
Ísland sem var kynnt fyrir fáeinum vikum.
Viðamesta aðgerðin er stofnun hvatasjóðs til
þátttöku í því sem á ensku er kallað „VC“ fjár
festingar (fyrir „venture capital“) og ég hef leyft
mér að leggja til að verði á íslensku kallað „vísi
fjárfestingar“, enda snúast þær um að styðja við
ung fyrirtæki sem eru efnilegur vísir að einhverju
meira. Fjármögnun af þessu tagi er mjög þýðingar
mikil á vaxtarskeiði nýsköpunarfyrirtækja en hún
hefur verið af skornum skammti hér á landi.
Vert er að hafa í huga að vísisjóðir koma ekki bara
með fjármagn inn í fyrirtæki heldur líka þekk
ingu, reynslu og tengsl sem geta oft ráðið úrslitum.
Þess vegna er skynsamlegt að greiða götu þeirra.
Við Íslendingar erum dugleg að unga út efnilegum
fyrirtækjum en þurfum að fjölga þeim sem ná flugi.
Ég sagði einnig frá öðrum mikilvægum aðgerð
um. Heimildir lífeyrissjóða til að fjárfesta í vísi
sjóðum verða rýmkaðar. Alvöru þrýstingur verður
settur á opinberar stofnanir um að leita nýskapandi
lausna og verður fyrsta skrefið stigið hjá stofnunum
sem heyra undir mig sem ráðherra. Aðgengi að
gögnum hins opinbera verður aukið og þar verður
fyrsta skrefið stigið hjá Orkustofnun. Þá hef ég
ákveðið að setja á fót hugveitu með framúrskarandi
frumkvöðlum sem getur óhindrað og milliliðalaust
beint ábendingum og tillögum til ráðherra.
Ég hlakka til að fylgja þessum aðgerðum eftir og
fleirum sem verða kynntar síðar. Nýsköpunarland
ið þarf að verða að veruleika, við erum komin vel á
veg og það er í okkar höndum að ná takmarkinu.
Fyrstu aðgerðir
nýsköpunarstefnu
Við Íslend-
ingar erum
dugleg að
unga út efni-
legum fyrir-
tækjum en
þurfum að
fjölga þeim
sem ná flugi.
Þórdís
Kolbrún Reyk-
fjörð Gylfadóttir
nýsköpunar
ráðherra
PREN
TU
N
.IS
mánudaga-föstudaga 7.30 -17.30
laugardaga 8.00 -16.00
sunnudaga 9.00 -16.00
Austurströnd 14 • Hringbraut 35
....................................................Sími: 561 1433
www.bjornsbakari.is
PREN
TU
N
.IS
LAUFABRAUÐ
eftir norðlenskri uppskrift
................................................
Hægtað pantasteikt ogósteikt
Ólíkt því sem efnahagsspár hagfræðinga gera almennt ráð fyrir þá vara efnahagssveiflur ekki að eilífu. Í kjölfar áfalla í ferðaþjónustu var fyrirsjáanlegt að áhrifin á ríkissjóð yrðu veruleg og að fjármála
áætlun stjórnvalda um áframhaldandi afgang myndi
ekki ganga eftir. Ríkissjóður verður rekinn með um tíu
milljarða halla á næsta ári samkvæmt fjárlagafrum
varpi ríkisstjórnarinnar. Það er enginn heimsendir og
margar Evrópuþjóðir líta vafalaust stöðu ríkisfjármála
hér á landi, á þessum stað í hagsveiflunni, öfundar
augum. Skuldir ríkissjóðs hafa minnkað um liðlega
600 milljarða frá 2015 og skuldahlutfallið lækkað úr 70
prósentum í 30 prósent.
Fjárlögin eru ekki alslæm. Slakað er á aðhaldi í ríkis
fjármálum, sem er réttlætanlegt til að sporna gegn
efnahagssamdrættinum, sem birtist meðal annars í
að tekjuskattur einstaklinga er lækkaður hraðar og
opinber fjárfesting aukin enda þótt ganga hefði mátt
enn lengra. Litlar breytingar voru gerðar á fjárlagafrum
varpinu í meðferð þingsins, til hækkunar eða lækkunar
útgjalda, sem er til marks um meiri festu og fyrirsjáan
leika í ríkisfjármálunum en áður.
Við eyddum engu að síður of miklu í góðærinu. Ríkis
útgjöldin hafa aukist um liðlega fimmtíu prósent, eða
sem nemur um 300 milljörðum, á aðeins fimm árum.
Samtímis fordæmalausum uppgangstímum hafa tekjur
ríkissjóðs stóraukist og í stað þess að leita allra leiða til
að ná fram meiri hagræðingu og skilvirkni í rekstri hins
opinbera, sem er nauðsynlegt, hafa tekjustofnarnir
verið þandir til hins ýtrasta. Tímabundnar aðgerðir
eftir fjármálaáfallið, einkum og sér í lagi hækkun trygg
ingagjalds og sértækra skatta á fjármálafyrirtæki, skila
orðið það miklum tekjum í ríkiskassann – samanlagt
vel á annað hundrað milljörðum króna – að það hefur
reynst stjórnvöldum ómögulegt að standa við fyrri
loforð um að afnema þær skattahækkanir sökum þess
hversu mikil áhrif það hefði á fjárlögin hverju sinni.
Undantekningar finnast sem betur fer. Eftir stans
lausan taprekstur er Íslandspóstur, sem er í eigu ríkis
ins, að komast á réttan kjöl. Með tilkomu nýs forstjóra
í sumar, sem hefur ráðist í stórfelldar hagræðingarað
gerðir, er útlit fyrir að afkoman verði brátt við núllið.
Þær hafa ekki verið sársaukalausar. Búið er að fækka
stöðugildum um 15 prósent, framkvæmdastjórum og
millistjórnendum hefur verið sagt upp og starfsemin
flutt í minna og ódýrara húsnæði. Öllum má vera ljóst
að Íslandspóstur er ekki eina opinbera fyrirtækið eða
stofnunin þar sem þörf er á sambærilegri tiltekt.
Stanslaus útgjaldaþensla, á öllum sviðum hins opin
bera, á ekki – og má ekki – verða að náttúrulögmáli.
Þjóðin eldist hratt sem kallar á gríðarlega útgjalda
aukningu en útlit er fyrir að útgjöld til heilbrigðismála
eigi eftir að tvöfaldast fram til ársins 2060 og verða um
14 prósent af landsframleiðslu. Ísland er fyrir háskatta
ríki og þeir fjármunir verða því ekki sóttir með enn
meiri skattlagningu á fyrirtæki og heimili. Pólitísk
hugmyndafræði, einkum á vinstrivængnum sem leyfir
ekki umræðu um hvernig nýta megi betur fjármuni
hins opinbera, þarf að víkja fyrir reynslurökum og heil
brigðri skynsemi. Við höfum ekki efni á öðru.
Tiltektar þörf
Djúpa Tinderlaugin
Þau góðu tíðindi bárust nýlega
að nýr stefnumótaþáttur,
Tinderlaugin, hefji brátt göngu
sína á Instagram. Óneitan-
lega tengja flestir lesendur við
ljúfar minningar um Djúpu
laugina sálugu enda hápunktur
íslenskrar dagskrárgerðar.
Mengi hugsanlegra þátttakenda
er þó ekkert mjög stórt. Djúpa
laugin fjaraði því nokkuð hratt
út. Stærsta stund þáttanna var
þegar ung dama spurði þrjá karl-
kyns þátttakendur: „Hvernig get
ég komið þér á óvart í rúminu?“
Eftir skuggalega stuttan
umhugsunartíma svaraði einn
með óbirtingarhæfu svari sem
tengdist hægðum. Þættirnir
lögðust af skömmu síðar.
Vélbyssukjafturinn Vigdís
Eins og kemur fram á öðrum
stað í blaðinu hefur borgarfull-
trúi Samfylkingarinnar, Aron
Leví Beck, hótað að kæra Vigdísi
Hauksdóttur, borgarfulltrúa
Miðflokksins, fyrir ærumeið-
ingar vegna ummæla sem hún
lét falla á borgarstjórnarfundi.
Sakaði Vigdís Aron Leví um
spillingu vegna fyrirhugaðra
bygginga í Elliðaárdal. Aron
Leví byrjar því með talsverðum
látum í borgarstjórn. Að sjálf-
sögðu verða menn að leita réttar
síns ef þeir telja að einhver hafi
brotið á þeim en það er spurning
hvort það sé skynsamleg veg-
ferð að eltast við ummæli sem
vélbyssukjafturinn Vigdís lætur
falla. bjornth@frettabladid.is
2 9 . N Ó V E M B E R 2 0 1 9 F Ö S T U D A G U R26 S K O Ð U N ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
SKOÐUN
2
9
-1
1
-2
0
1
9
0
5
:3
5
F
B
0
9
6
s
_
P
0
7
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
9
6
s
_
P
0
6
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
9
6
s
_
P
0
2
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
9
6
s
_
P
0
2
8
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
2
4
5
F
-4
0
9
4
2
4
5
F
-3
F
5
8
2
4
5
F
-3
E
1
C
2
4
5
F
-3
C
E
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
6
A
F
B
0
9
6
s
_
2
8
_
1
1
_
2
0
1
C
M
Y
K