Fréttablaðið - 29.11.2019, Side 36

Fréttablaðið - 29.11.2019, Side 36
Hver hefur ekki lent í því að fara á hlaðborð rétt fyrir jól og éta á sig gat, jafnvel drekka úr hófi, velta svo út um dyrnar hugsandi: „Þetta geri ég aldrei aftur.“ Hugsa svo með hryll- ingi til stórsteikur sem býður innan seilingar á aðfangadagskvöld … … eða að vera fastur í umferðinni á Þorláksmessu, bölvandi aulanum í bílnum á undan sem getur ekki drattast yfir götuljósin þótt komið sé gult, - svo maður geti smeygt sér á eftir … … nú, eða vera í vandræðum rétt fyrir jól og tíu gjafir ókeyptar. Spreða svo peningum á aðfanga- dagsmorgun í allar áttir í tauga- veiklun að klára jólagjafainn- kaupin. Ég kannast a.m.k. við einn. Aðventan og jólin virðast hafa tekið á sig ásýnd fjöldageðveiki sem dregur mann í sig eins og svarthol, þrátt fyrir góðan ásetning um að halda sér utan við eitthvað sem maður upplifir sem idíótahátt. Maður getur ekki einu sinni f lúið á gömlu Gufuna fyrir vopnaglamr- inu. Þú! Komdu! Ódýrt! Sú var tíðin að menn kölluðu aðventuna „jóla-föstu“ en það er langt síðan. Þá var til siðs að borða og drekka lítið, enda oft lítið til skiptanna, til að gera jólahátíðina meira sérstaka þegar hún rann loks upp. Samfara föstum átti fólk að hugleiða söguna um barnið sem fæddist í Palestínu. Það má vera að færri hugsi um sögu en áður, hvað þá að neita sér um nautnir til að ígrunda eitthvað barnslegt, jafnvel barnalegt. Þó vill svo til að nú er komin upp alveg ný staða, ný lífsskilyrði fyrir tegundina sem við tilheyrum. Við erum búin að eyða, eta og drekka um efni fram. Við erum að taka út á krít, en framtíðin á að borga, börnin okkar og barnabörn. Dálít- ið svipað og henti okkur 2007 nema að nú stefnir hrunið í að verða margfalt stærra. Við drekkum, étum, ferðumst og kaupum of mikið. Ef allir jarðar- búar væru eins neyslufrekir og við Íslendingar þyrfti a.m.k. 5-6 jarðir til að standa undir ballinu. Mesta neyslusukkið virðist vera á þeim tíma sem öldum saman var þó kall- aður jólafasta. Jólafasta? Kannski ættum við að blása rykinu af þessu gamla orði, ef ekki sjálfra okkar vegna eða barnsins þarna forðum, þá vegna barnanna okkar – og barnabarnanna. Getum við byrjað að breyta um lífsstíl fyrir þessi jól? Verða „mín- ímalísk“? Halda „græn jól“? Borða minna k jöt . Drek ka minna. Aka minna. Ferðast minna. Þurfum við endilega að f ljúga utan til að kaupa jólagjafir? Endurnýta – gefa eitthvað af öllu dótinu sem við eigum? Láta börnin, barnabörnin skiptast á gömlu dóti (sem oft er eins og nýtt). Ég á gamla jólaseríu sem er jafn- gömul sjálfum mér og þó er ég bráðum löggilt gamalmenni. Hún er enn í lagi. Ég ætla að láta hana lýsa mér meðan við bæði endumst. Talandi um ljós – eitt lítið jólaljóð eftir Einar Braga: Árdagsljós um lágan kofa leiftri slær. Blika augu blá og skær. Vekja fögnuð veikra handa fálm: Lífsins rós og lögð að vanda í hálm. Jólafasta – græn jól? Undanfarin ár hefur Krabba-meinsfélagið séð um fyrstu skimanir fyrir brjósta- og leghálskrabbameini kvenna. Heil- brigðisráðherra hefur ákveðið að því er virðist einhliða að endur- nýja ekki samning ráðuneytisins við Krabbameinsfélagið um þessa þjónustu og það þvert á ráðlegging- ar skimunarráðs. Stefnubreytingin er sú að þessar skimanir færist á tvo aðra staði. Brjóstaskimun skal færast á Landspítalann og Sjúkra- húsið á Akureyri og leghálsskim- unin á heilsugæslustöðvar eða að konur framkvæmi þetta sjálfar heima. Það líður ekki langt á milli frétta af of miklu álagi á Land- spítalann og nú þegar er biðtími eftir framhaldsbrjóstamyndatöku á Landspítalanum sjö sinnum lengri heldur en alþjóðleg viðmið segja til um. Hvernig getum við réttlætt 35 daga biðtíma eftir myndatöku ef fyrsta skimunarmyndataka bendir til meinvarps? Það er búið að vera með ólík- indum að fylgjast með stefnu heilbrigðisráðherra er varðar t.d. liðskiptaaðgerðir. Þar sem það sé talið skynsamlegra að senda sjúklinga til Svíþjóðar frekar en að heimila aðgerðir hér á landi á einkastofum. Þess í stað eru sjúklingar sendir utan, með ferða- félaga að eigin vali, og settir undir hnífinn jafnvel hjá íslenskum læknum á einkastofum sem taka á móti þeim þar. Það er auðvitað ekki heil brú í svona ákvörðunum sem kosta skattgreiðendur mun hærri fjárhæðir heldur en nauð- synlegar eru. Nú fáum við konur að kenna á undarlegri heilbrigðisstefnu, þar sem leggja á niður þjónustu sem við langf lestar erum þakk- látar fyrir. Að koma á leitarstöðina í þessum erindagjörðum er ekki til- hlökkunarefni en móttökurnar og umhverfið bæta þessar heimsóknir töluvert. Þarna taka konur á móti konum í þægilegu og skilningsríku umhverfi. Rökin, sem notuð eru, eru þau að þátttaka í skimunum sé ekki nægileg í ákveðnum aldursflokkum og ekkert hefur verið ákveðið með gjaldtöku. Á að telja okkur trú um að það að mæta á heilsugæslustöðvar eða sjúkrahús muni auka líkurnar á því að konur fari í þessar skimanir? Má ekkert vera í friði í heilbrigðis- kerfinu sem minnir á einkarekstur og ætlum við að sitja þegjandi undir því? Krabbameinsfélagið hefur einnig greitt með þessari vanfjár- mögnuðu þjónustu tugi milljóna undanfarin ár ásamt gjafafé frá Bleiku slaufunni og fjölmörgum öðrum styrktaraðilum. Gjaldið fyrir hverja heimsókn er því niður- greitt af gjafafé þeirra sem telja þessa þjónustu mikilvæga í barátt- unni við krabbamein kvenna. Það er talið skipta höfuðmáli að þessi þjónusta sé gjaldfrjáls til þess að fjölga heimsóknum. Ef svo er, ætti ekki heilbrigðisráðherra að bregðast við því í samstarfi við Leit- arstöðina áður en þessi þjónusta er lögð niður í þeirri mynd sem hún hefur fengið að vera í undanfarin ár? Væri það ekki skynsamlegra áður en farið er í fjöldauppsagnir innan Leitarstöðvarinnar, starfsem- in brotin upp og áður en skimunar- kerfið er stokkað tilviljanakennt upp milli stofnana sem þegar hafa nóg á sinni könnu? Má ekkert vera í friði, kæri heilbrigðisráðherra? Kynbundið of beldi og kyn-ferðisleg áreitni á vinnu-stöðum komst heldur betur í kastljósið fyrir tveimur árum þegar #metoo byltingin skall á okkur eins og f lóðbylgja. Þessi óásættanlega hegðun var loksins dregin fram úr skúmaskotunum. Þúsundir kvenna stigu fram og kröfðust breytinga enda með öllu óheimilt að leggja samstarfsfólk sitt í einelti, áreita það kynferðislega, áreita það á grundvelli kyns eða beita of beldi á vinnustað. Lög um jafna stöðu og jafnan rétt kvenna og karla nr. 10/2008 leggja þá skyldu á atvinnurekendur og yfirmenn stofnana og félagasam- taka að gera sérstakar ráðstafanir til að koma í veg fyrir að starfsfólk, nemar og skjólstæðingar verði fyrir kynbundnu of beldi, kynbundinni áreitni eða kynferðislegri áreitni á vinnustað, stofnun, í félagsstarfi eða skólum. Þau fyrirtæki eða stofnanir þar sem starfa 25 eða f leiri starfs- menn skulu í lögbundnum jafnrétt- isáætlunum sínum m.a. kveða á um hvernig þau tryggja starfsfólki sínu vinnuumhverfi af þessu tagi. Auk þess er í gildi reglugerð um aðgerðir gegn einelti, kynferðis- legri áreitni, kynbundinni áreitni og of beldi á vinnustöðum nr. 1009/2015 sem hefur það að mark- miði að tryggja starfsfólki öruggt og heilsusamlegt starfsumhverfi. Samkvæmt henni skulu vinnustaðir hafa skriflega áætlun um öryggi og heilbrigði á vinnustað sem kveður á um aðgerðir sem grípa skal til komi Vinnuumhverfi án áreitni og ofbeldis Fráveitumál eru eitt mikilvæg-asta umhverfismálið og snúa bæði að lýðheilsu og góðri umgengni um náttúruna. Á undan- förnum áratugum hafa sveitarfélög og veitufyrirtæki í þeirra eigu lyft grettistaki í að bæta fráveitukerfi og fjölga skólphreinsistöðvum víða um land. Á árunum 1992-2005 fór hlut- fall landsmanna sem búa við skólp- hreinsun úr 6% í 68%. Árið 2018 var hlutfallið komið í 79%, þegar upp- byggingu skólphreinsunar lauk á Akranesi og í Borgarnesi og hefur hlutfallið haldist nær óbreytt síðan. Þrátt fyrir úrbætur síðustu ára þarf enn að gera betur í fráveitu- málum víða. Í skýrslu Samtaka iðnaðarins um stöðu innviða í landinu, sem kom út í október 2017, kom fram að fjárfestinga væri hvað sárast þörf í fráveitu- og vegakerfi. Bæta þurfi ástand fráveitulagna, koma upp skólphreinsun og styrkja kerfin til að draga úr f lóðahættu. Þetta kosti á bilinu 50-80 milljarða. Þar af kostar aukin skólphreinsun til samræmis við núgildandi reglur um 20 milljarða. Stórar framkvæmdir í fráveitum eru þung fjárhagsleg byrði fyrir sveitarfélög og er það steinn í götu þess að allir landsmenn búi við góða fráveitu. Samorka hefur bent á að skoða þurfi aðkomu ríkisins að kostnaði við fráveituframkvæmdir, til dæmis með því að taka upp að nýju endurgreiðslu virðisaukaskatts við slíkar framkvæmdir. Mikið hefur áunnist á síðustu áratugum í uppbyggingu fráveitna og urðu framfarir mestar á þeim tíma sem slíkt endurgreiðslukerfi var í gildi, frá árinu 1995 til 2008. Á Alþingi hefur nú verið lagt fram frumvarp til laga um breytingu á lögum um virðisaukaskatt til þess að styðja við úrbætur í þessum mikilvæga málaf lokki. Einnig er starfshópur ráðuneyta umhverfis-, fjármála-, og sveitarstjórnarmála að skoða mögulegar leiðir til frekari stuðnings við fráveituframkvæmd- ir. Samorka hvetur alþingismenn til að styðja við hið nýja frumvarp og aðrar aðgerðir sem stuðla að upp- byggingu hreinsimannvirkja og úrbótum í fráveitumálum um allt land. Verkefnið er brýnt og snýst um að koma hlutfallinu úr 79% í 100% – í þágu umhverfisins og allra landsmanna. Fráveitan er málið Katrín Björg Ríkarðsdóttir framkvæmda- stjóri jafnréttis- stofu Páll Erland framkvæmda- stjóri Samorku Karen Elísabet Halldórsdóttir varaþingmaður Sjálfstæðis- flokksins í Suð- vesturkjördæmi og bæjarfulltrúi í Kópavogi Halldór Reynisson prestur og verkefnisstjóri umhverfismála kirkjunnar Vinnuveitendur og starfs- fólk þarf því að axla saman ábyrgð á heilbrigðu starfs- umhverfi sem laust er við einelti, áreitni og ofbeldi af öllu tagi. ✿ Hlutfall landsmanna sem búa við skólphreinsun 100% 80% 60% 40% 20% ‘95 ‘96 ‘97 ‘98 ‘99 ‘00 ‘01 ‘02 ‘03 ‘04 ‘05 ‘06 ‘09 ‘12 ‘15‘07 ‘10 ‘13 ‘16‘08 ‘11 ‘14 ‘17 ‘18 upp mál er varða einelti, kynferðis- lega áreitni, kynbundna áreitni eða of beldi. Atvinnurekandi á að bregðast við eins f ljótt og kostur er þegar honum berst kvörtun eða ábending um slíka hegðun eða ef hann verður var við hana. Skyldur atvinnurekenda eru því gríðarlega miklar og þær skyldur verður að taka alvarlega. Félagsmálaráðuneytið kynnti á haustdögum nýja rannsókn sem kallast Valdbeiting á vinnu- stað – Rannsókn á algengi og eðli eineltis og áreitni á íslenskum vinnumarkaði. Samkvæmt rann- sókninni er töluvert verk að vinna hjá íslenskum fyrirtækjum hvað varðar framfylgd jafnréttisáætl- ana, gerð áhættumats, fræðslu um félagslega þætti á vinnustað, for- varnir varðandi einelti, kynferðis- lega áreitni, kynbundna áreitni eða of beldi. Stór hluti stjórnenda sem rannsóknin náði til taldi hins vegar starfsfólk sitt vera vel upplýst um hvernig stuðla ætti að góðum samskiptum og hverjir væru helstu áhættuþættir. Áreitni og einelti eru vandamál á íslenskum vinnumarkaði skv. niðurstöðum rannsóknarinnar. Viðbrögðum er oft ábótavant og þolendur fá ekki nauðsynlegan stuðning. Þá er bent á að skýrara verklag þurfi sem og f leiri úrræði. Þá sýnir rannsóknin að fólk af erlendum uppruna, fatlað fólk og fólk með skerðingar er í sérstakri áhættu. Markmið laga um jafna stöðu og jafnan rétt kvenna og karla „…er að koma á og viðhalda jafnrétti og jöfnum tækifærum kvenna og karla og jafna þannig stöðu kynjanna á öllum sviðum samfélagsins. Allir einstaklingar skulu eiga jafna möguleika á að njóta eigin atorku og þroska hæfileika sína óháð kyni.“ Á Íslandi er atvinnuþátttaka kvenna og karla mjög mikil og við verjum stórum hluta vökutímans í vinnunni. Vinnuveitendur og starfsfólk þarf því að axla saman ábyrgð á heilbrigðu starfsumhverfi sem laust er við einelti, áreitni og of beldi af öllu tagi. 2 9 . N Ó V E M B E R 2 0 1 9 F Ö S T U D A G U R34 S K O Ð U N ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð 2 9 -1 1 -2 0 1 9 0 5 :3 5 F B 0 9 6 s _ P 0 6 1 K .p 1 .p d f F B 0 9 6 s _ P 0 6 0 K .p 1 .p d f F B 0 9 6 s _ P 0 3 6 K .p 1 .p d f F B 0 9 6 s _ P 0 3 7 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 2 4 5 F -7 6 E 4 2 4 5 F -7 5 A 8 2 4 5 F -7 4 6 C 2 4 5 F -7 3 3 0 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 3 B F B 0 9 6 s _ 2 8 _ 1 1 _ 2 0 1 C M Y K

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.