Fréttablaðið - 29.11.2019, Qupperneq 44
Fólk er kynningarblað sem býður auglýsendum
að kynna vörur og þjónustu í formi viðtala og
umfjallana. Í blaðinu er einnig hefðbundið rit-
stjórnarefni. Blaðið fylgir Fréttablaðinu daglega.
Umsjónarmenn efnis: Elín Albertsdóttir, elin@frettabladid.is, s. 550 5761 | Hjördís Erna
Þorgeirsdóttir | hjordiserna@frettabladid.is s. 550 5767 | Oddur Freyr Þorsteinsson, oddurfreyr@
frettabladid.is s. 550 57686 | Sandra Guðrún Guðmundsdóttir, sandragudrun@frettabladid.is, s.
550 5762 | Þórdís Lilja Gunnarsdóttir, thordisg@frettabladid.is, s. 550 5768
Útgefandi:
Torg ehf
Ábyrgðarmaður:
Jóhanna Helga
Viðarsdóttir
Sölumenn: Arnar Magnússon, arnarm@frettabladid.is, s. 550 5652, Atli Bergmann, atli@frettabladid.is, s. 550 5657,
Jón Ívar Vilhelmsson, jonivar@frettabladid.is, s. 550 5654, Jóhann Waage, johannwaage@frettabladid.is, s. 550 5656,
Ruth Bergsdóttir, ruth@frettabladid.is, s. 694 4103,
Ég er með BS-próf í sálfræði frá Háskóla Íslands og er búsett í Hlíðunum ásamt mann-
inum mínum og börnum. Hann
er lærður grafískur hönnuður en
starfar sem ráðgjafi fyrir fólk með
geðræna erfiðleika,“ segir Eyrún.
Hún býr yfir dýrmætri reynslu
úr umönnunarstörfum sem hún
segir hafa nýst sér á frumkvöðla-
brautinni. „Áður en ég stofnaði
Róró vann ég með fólki á öllum
stigum. Ég hef unnið með börnum,
á elliheimili, með fötluðum og í
leikskólum.“
„Róró framleiðir og selur Lúllu,
dúkkuna sem hjálpar börnum að
upplifa ró og ná betri svefni með
því að spila upptöku af hjartslætti
og andardrætti. Hún spilar í 12
klukkustundir í senn og getur því
„sofið“ með barninu alla nóttina.
Virknin er byggð á fjölda rann-
sókna á jákvæðum áhrifum hjart-
sláttar og andardráttar,“ útskýrir
Eyrún. „Ég hef mikinn áhuga á vel-
líðan og hvatningu og trúi að það
sé gríðarlega mikilvægt alhliða
heilsu okkar að slaka á og líða vel.“
Hófst í kringum hrunið
„Ég leiddist út í þetta frumkvöðla-
starf meðan ég var í fæðingarorlofi
með annað barnið mitt. Það var
í lok árs 2010 og mikil gróska í
frumkvöðlaheiminum rétt eftir
hrun. Það skipti miklu máli fyrir
mig að geta sótt þekkingu og
félagsskap í það samfélag á fyrstu
stigunum. Bæði til að fá ráð og
hvatningu og sjá aðrar fyrirmyndir
sem voru komin skrefinu lengra
en ég.
Mér leið stundum eins og ég væri
orðin rugluð þegar ég var búin
að vera of lengi ein að vinna með
dúkkuna mína og hugsaði með
mér hvað ég væri að vesenast og
hvort ég ætlaði ekkert að fara aftur
að vinna. Kannski vegna þess að
ég var ekki með neinn bakgrunn
í rekstri, markaðssetningu eða
Eyrún Eggertsdóttir segir það geta verið krefjandi að reka fyrirtæki samhliða móðurhlutverkinu þar sem ein vaktin taki við af annarri en hún á þrjú börn. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR
Hjördís Erna
Þorgeirsdóttir
hjordiserna@frettabladid.is
vöruþróun. Ég reyndi að feta mig
áfram með þá þekkingu og hæfi-
leika sem ég hafði og finna fólk til
að aðstoða mig við það sem vant-
aði upp á. Á byrjunarstigum þegar
maður hefur ekkert fjármagn og er
með lítið barn á arminum þá þarf
að grípa til hugvitsins.“
Eftir að hafa hlotið verðlaun
fyrir hugmyndina hófst vegferðin
af krafti og þá varð ekki aftur
snúið. „Hugmyndin að Lúllu hlaut
Gulleggið 2011 og í kjölfarið fékk
ég styrk frá Tækniþróunarsjóð
til vöruþróunar. Ef ég hefði ekki
fengið hann þá held ég Lúlla hefði
ekki orðið að veruleika,“ segir
Eyrún.
„Ferðalagið frá hugmynd að
veruleika var miklu lengra en ég
hélt í fyrstu. Það er kannski eins
gott að maður viti ekki leiðina til
að byrja með. Ég reyni að taka einn
dag í einu og njóta ferðarinnar.
Það getur tekið á taugarnar að
vera með eigin rekstur en ég held
að ég hafi komist langt á blöndu af
þrjósku, jafnaðargeði og jákvæðni.
Ég vinn einnig með frábæru teymi
af fólki og margir hafa hjálpað til
að koma Lúllu á þann stað sem hún
er í dag. Ég hefði aldrei getað gert
þetta ein.“
Margþætt áhrif svefnleysis
Eyrún sótti efnivið og innblástur
í niðurstöður sálfræðirannsókna.
„Hugmyndin er sprottin úr rann-
sóknum sem ég las í sálfræði um
jákvæð áhrif nærveru við foreldra
fyrir börn, en rannsóknir gefa
til kynna að þegar börn heyra í
hjartslætti og andardrætti þá byrja
þau að fylgja taktinum og þeirra
eigin andardráttur og hjartsláttur
verður stöðugri. Þetta leiðir til
þess að þau upplifa meiri ró, ná að
sofna, sofa lengur í senn og upplifa
meiri vellíðan. Það hefur einnig
verið sýnt fram á aukinn tauga-
þroska, meiri þyngdaraukningu og
minni magakveisu. Þarna er gott
dæmi um mikilvægi góðrar líðanar
og þessi jákvæðu snjóboltaáhrif
sem er hrundið af stað og geta
skipt miklu máli fyrir ung börn.“
Áhrifin af svefnleysi barna eru
margþætt. „Vellíðan barna hefur
einnig mikil áhrif á líðan fjöl-
skyldna þeirra. Á þessum tíma fer
boltinn oft að rúlla í vitlausa átt,
barnið er í ójafnvægi, það sofnar
seint og vaknar oft, aukin streitu-
hormón gera þau viðkvæm, þau
fá í magann, þau veikjast frekar,
þau sofa enn verr, mamman og
pabbinn sofa lítið sem ekkert og
þar fram eftir götunum. Það getur
haft margvísleg neikvæð áhrif
á líðan þeirra og heilsu en áhrif
svefnskerðingar eru talin kosta
samfélagið hundruð milljóna á
ári hverju. Það er því til mikils að
vinna. Vellíðan og svefn eru mikil-
vægt og háalvarlegt mál.
Ég hafði lesið mér til um þetta
en hugmyndin að Lúllu kom
fullmótuð til mín þegar neyðin
bankaði upp á, eins og hugmyndir
gera svo oft. Góð vinkona mín
sem átti stúlku fyrir tímann þurfti
að skilja hana eftir á næturnar á
Vökudeildinni í nokkrar vikur.
Þegar hún var skilin eftir á nótt-
unni þá tók hún hlé í öndun og var
í ójafnvægi. Þarna mundi ég eftir
því sem ég hafði lesið og fór að leita
á netinu að einhverju sem gæti
hjálpað henni með því að líkja eftir
nærveru. Þá kom í ljós að það er
ekkert til á markaðnum, aðeins dót
sem að spilar vélrænan „hjartslátt“
í stuttan tíma í senn. Það var þá
sem hugmyndin kom til mín og ég
tók ákvörðun um að búa Lúllu til.“
Mikilvægt að njóta
Móðurhlutverkið og frumkvöðla-
starfið getur verið krefjandi
blanda. „Það getur verið erfitt og
það er að mörgu að hyggja með
þrjú börn. Það tekur ein vakt við
af annarri. Ég dett stundum í það
að vera meðvituð um allt sem ég
gæti gert ef ég færi af fullum krafti
í annað hvort hlutverkið og fæ
oft þá tilfinningu að vera ekki að
gera neitt nógu vel, hvort sem ég er
heima eða í vinnunni. Mér finnst
ég stundum vera með hausinn
fullan af hlutum sem mig langar að
gera, elda meira frá grunni, stunda
útivist og hreyfingu með fjölskyld-
unni, hitta vinkonur, komast á deit
oftar en tvisvar á ári, fara á f leiri
ráðstefnur, sækja námskeið, vinna
fleiri tíma og svo framvegis. En að
endingu snýst þetta um að finna
jafnvægi og passa að vera góður
við sjálfan sig. Ég þarf oft að minna
mig á að það er mikilvægt að hvíla
sig og að njóta tímans.“
Eyrún segir nóg um að vera í
aðdraganda Svarta föstudagsins,
en hún hefur mikla reynslu af
því að stunda viðskipti í gegnum
netið. „Við nýttum okkur hópfjár-
mögnun við fyrstu framleiðsluna.
Okkar stærsti markaður er í
Bandaríkjunum og við seljum allt
sjálf þar í netsölu, bæði á okkar
síðu og í gegnum Amazon en við
erum með vöruhúsið okkar þar.
Við erum að taka þátt í Black
Friday og Cyber Monday á net-
sölunni okkar í annað sinn en hún
hefur mikið vaxið á síðustu árum.
Í fyrra tókum við þátt um helgina
en í ár er það heil vika, Black Friday
Week.“
Framhald af forsíðu ➛
Mér leið stundum
eins og ég væri
orðin rugluð þegar ég
var búin að vera of lengi
ein að vinna með dúkk-
una mína og hugsaði
með mér hvað ég væri að
vesenast og hvort ég
ætlaði ekkert að fara
aftur að vinna.
2 KYNNINGARBLAÐ FÓLK 2 9 . N ÓV E M B E R 2 0 1 9 F Ö S T U DAG U R
2
9
-1
1
-2
0
1
9
0
5
:3
5
F
B
0
9
6
s
_
P
0
5
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
9
6
s
_
P
0
5
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
9
6
s
_
P
0
4
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
9
6
s
_
P
0
4
5
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
2
4
5
F
-8
0
C
4
2
4
5
F
-7
F
8
8
2
4
5
F
-7
E
4
C
2
4
5
F
-7
D
1
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
4
B
F
B
0
9
6
s
_
2
8
_
1
1
_
2
0
1
C
M
Y
K