Fréttablaðið - 29.11.2019, Blaðsíða 50

Fréttablaðið - 29.11.2019, Blaðsíða 50
Sjálfsagt hafa ekki margir haft trú á Super Mario Bros þegar hann kom út í ljósi þess að hann fjallar um ítalska pípulagninga- menn. Borðspil eru til að mynda ein algengasta möndlugjöfin og eftir að pakkabrjálæðið er búið á aðfangadagskvöld er gjarnan spilað fram á rauðanótt. Hér eru nokkur af helstu jólaspil­ unum árið 2019. Azul Nordic Games, 2-4 leikmenn, 45 mínútur Þema Azul gæti vart verið undarlegra, en í því taka leikmenn að sér hlutverk portú­ galskra flísa­ lagninga­ manna. En sjálfsagt hafa margir ekki haft trú á tölvu­ leiknum Super Mario Bros þegar hann kom út í ljósi þess að hann fjallar um ítalska pípu­ lagningamenn. Azul sló rækilega í gegn þegar það kom upprunalega út, árið 2017 og ári síðar hlaut það þýsku verðlaunin Spiel des Jahres, sem eru nokkurs konar Óskars­ verðlaun spilaheimsins. Azul er gullfallegt spil, eins og djásn á borðinu og flísarnar sjálfar líta út eins og litríkir brjóstsykurs­ molar. Það er hreinn unaður að handleika þær. En það sem meira máli skiptir er hversu gott gang­ verkið sjálft er. Í spilinu taka leikmenn hópa af f lísum til að fylla raðir, til þess að búa til aðrar raðir og skora fyrir þær stig. Leikmenn mega ekki vera of djúpt niðursokknir í eigin leik­ borð heldur verða að vera vakandi fyrir því sem aðrir eru að gera á sínum. Ef græðgin heltekur mann, missir maður flísarnar og þær brotna með tilheyrandi stigamissi. Jólaspilin 2019 Íslenska spurningaspilið Myndform, 2-6 leikmenn, 45 mínútur Úr ranni finnsku útgáfunnar Tactic kemur spurningaspil heimfært yfir á Ísland af sjálfum spurningakóngi Íslands, sagnfræðingnum Stefáni Pálssyni. Áður hefur Tactic fært okkur spilið Ég veit, annað einfalt spurningaspil sem sló í gegn. Íslenska spurningaspilið er ekki það fyrsta sinnar tegundar sem byggist á spurningum um Ísland en það sem gerir það sniðugt er að allir gera á sama tíma, alltaf. Það kemur því aldrei „dauður tími“ fyrir neinn. Spurningarnar eru í sex flokkum. Fimm nokkuð hefðbundnum, sögu, menningu, náttúru og vísindum, landafræði og íþróttum. Síðan er flokkurinn ýmislegt, sem er óumdeilanlega skemmtilegasti flokkurinn og þar sem búast má við hverju sem er frá Stefáni. Aðeins er um valkostaspurning­ ar að ræða, með fjórum svarmögu­ leikum. Rétt eins og með Ég veit, er engin skylda að spila eftir regl­ unum. Hægt er að nota spurning­ arnar sem slíkar til að fleygja á milli Panic Tower Nordic Games, 2-8 leikmenn, 20 mínútur Í Panic Tower skiptir lagni öllu máli. Ef þú ert mjög skjálfhentur áttu eftir að tapa. Spilið er einfalt og minnir bæði á Jenga og Twister. Leikmenn skiptast á að stafla misháum trékubbum á litaða reiti eftir fyrirmælum á spilum. Spilin geta einnig gefið önnur fyrirmæli, eins og til dæmis að færa stafla milli reita og þá reynir virkilega á lagnina. Panic Tower er útsláttarspil, tekur ekki langan tíma en er mjög hávært. Spilið er ætlað fyrir yngri kyn­ slóðina, enda hægt að nota kubbana án þess að spila eftir reglum. Ishtar Nordic Games, 2-4 leikmenn, 45 mínútur Ishtar er glænýtt spil frá franska meistar­ anum Bruno Cath­ ala (Shad ows Over Camelot, Five Tribes, Kingdomino). Rétt eins og flest önnur spil frá honum er Ishtar gullfallegt á að líta, bæði kassinn og spilið sjálft eins og málverk. Spilið er dæmigert Euro­spil, það er heppninni er haldið í lágmarki og taktík í hámarki. Takmarkið er að safna stigum og ótal leiðir eru til að fá þau. Í Euro­ spilum eru þemun oftast meinlaus, og Ishtar gæti vart verið betra dæmi um það en leikmenn taka að sér hlutverk garðyrkjumanna í hinni fornu Babýlon. Ishtar snýst um að leggja niður garða í eyðimörk­ ina, sem er breytilegt borð. Í upphafi virðist þetta auðvelt en þegar líður á fækkar möguleikunum hratt. Spilið er því að nokkru leyti eins og hið vinsæla Car­ cassonne nema á mjög þröngu svæði. Ishtar er hvorki f lókið né langt en þarfnast töluverðra heilabrota. vina. Little Town Nordic Games, 2-4 leikmenn, 60 mínútur Gangverk sem kallast á ensku „worker placement“ hefur notið mikilla vinsælda á undanförnum árum. Það snýst um að leikmenn helga sér staði með peðum sem leyfa ákveðna hluti. Má sjá þetta í Agricola, Stone Age, Lords of Waterdeep og Champions of Midgard. Little Town er eins og einföld útgáfa af spilum sem þessum. Það eru engar byltingarkenndar hugmyndir á bak við Little Town, sem fjallar um að byggja upp bæ. Rétt eins og í Lords of Waterdeep er hægt að leigja út hús til annarra leikmanna og rétt eins og í Agricola er nauðsynlegt að fæða peðin. Þá hefur hver leikmaður sín eigin takmörk eins og sjá má í mörgum spilum. Þó að fullorðnir geti vel spilað Little Town er það augljóslega hugsað fyrir yngri hóp. Borðið sjálft minnir einnig töluvert á tölvuleiki sem spilaðir eru á síma eða spjaldtölvu. Little Town hentar því vel sem inngangsspil fyrir börn og þá sem þekkja ekki gang­ verkið. Bönn eiga það til að snúast upp í and- hverfu sína. Áður fyrr var bannað að spila á jólunum, því skrattinn gæti komið upp í spilunum. Nú hafa bábiljur vikið og jólin eru mesti spilatími ársins enda sá tími þegar fjölskyldur koma saman. Um 500 verslanir, veitingastaðir og kaffihús. >>> Velkomin í bæinn! >>> midborgin.is 8 KYNNINGARBLAÐ FÓLK 2 9 . N ÓV E M B E R 2 0 1 9 F Ö S T U DAG U R 2 9 -1 1 -2 0 1 9 0 5 :3 5 F B 0 9 6 s _ P 0 5 5 K .p 1 .p d f F B 0 9 6 s _ P 0 5 0 K .p 1 .p d f F B 0 9 6 s _ P 0 4 2 K .p 1 .p d f F B 0 9 6 s _ P 0 4 7 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 2 4 5 F -6 D 0 4 2 4 5 F -6 B C 8 2 4 5 F -6 A 8 C 2 4 5 F -6 9 5 0 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 2 B F B 0 9 6 s _ 2 8 _ 1 1 _ 2 0 1 C M Y K
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.