Fréttablaðið - 29.11.2019, Qupperneq 58
HANDBOLTI Guðmundur Þórður
Guðmundsson, þjálfari íslenska
karlalandsliðsins í handbolta, gæti
fengið töluverðan höfuðverk þegar
kemur að því að velja leikmanna-
hópinn fyrir Evrópumótið sem fram
fer í janúar á næsta ári. Hópurinn
sem kemur til greina í liðið hefur
stækkað jafnt og þétt síðustu mán-
uðina og Guðmundur þarf að skilja
sterka leikmenn eftir heima.
Fréttablaðið fékk Óskar Bjarna
Óskarsson, aðstoðarþjálfara meist-
araflokks karla og yfirþjálfara yngri
f lokka hjá Val, til þess að fara yfir
stöðuna hjá landsliðinu og rýna
í valið sem fram undan er. Óskar
Bjarni segir útlitið gott í aðdraganda
mótsins en öf lugir leikmenn séu
hins vegar að glíma við meiðsli og
erfitt að meta hvort þeir verða með.
„Það er langt síðan við höfum
haft jafn mikla breidd í landsliðinu
og við búum yfir þessa stundina.
Þau kynslóðaskipti, sem nauð-
synlegt var að fara í í kjölfar þess
að liðið sem náði góðum árangri
á Ólympíuleikunum árið 2008 og
Evrópumótinu 2010 var farið að
eldast, eru að ganga í gegn þessa
stundina. Við náðum að brúa bilið
vel að mínu mati og erum núna með
í höndunum leikmannahóp sem er
með marga leikmenn í hæsta gæða-
f lokki og á breiðu aldursbili. Ég
held að markviss vinna hjá yngri
landsliðunum sem og mikil rækt
við B-landsliðið undanfarin ár eigi
stóran þátt í því,“ segir Óskar Bjarni
um landslagið.
„Þá erum við vel settir hvað það
varðar að við erum með leikmenn á
besta aldri í öllum stöðum og önnur
kynslóðaskipti eins og við höfum
verið að ganga í gegnum ekki í sjón-
máli. Þess í stað getum við farið að
horfa til þess að koma okkur aftur
í hóp átta bestu liða heims innan
fárra ára. Það er erfitt að setja ein-
hvern tímapunkt á það hvenær það
gerist en ég myndi segja að eftir
svona tvö ár verðum við komnir á
þann stall á nýjan leik. Aron Pálm-
arsson er svo líklega að spila sinn
besta handbolta á ferlinum. Það er
gaman að sjá hann vaxa í hlutverki
reynslumikils leikmanns í liðinu
sem miðlar til yngri leikmanna og
nær einkar vel til þeirra inni á vell-
inum,“ segir hann enn fremur.
Vantar öfluga og hávaxna skyttu
„Við erum með ungan markmann,
Viktor Gísla [Hallgrímsson], sem
hefur öðlast alþjóðlega reynslu
með GOG og hefur grætt mikið á að
vera að spila í Meistaradeild Evrópu.
Sigvaldi Björn [Guðjónsson] hefur
vaxið mikið með Elverum og er að
taka stökkið með Hauki Þrastarsyni
og fara til Kielce. Það verður gaman
að sjá þróun mála hjá þeim en þeir
eru í góðum höndum hjá Talant
Dujshebaev sem er einn fremsti
þjálfari heims.
Janus Daði [Smárason] er að spila
frábærlega með Álaborg og bankar
hressilega á dyrnar í miðjusveit liðs-
ins, sérstaklega í ljósi meiðsla Gísla
Þorgeirs [Kristjánssonar]. Bjarki
Már [Elísson] hefur verið að spila vel
með Lemgo og Arnór Þór [Gunnars-
son] heldur uppteknum hætti með
Bergischer,“ segir þessi reynslubolti.
„Þó svo að við eigum marga leik-
menn í hæsta gæðaf lokki þá er
kannski mesta syndin hversu marg-
ir þeirra eru miðjumenn. Það væri
óskandi að þessir hæfileikar hefðu
dreifst betur yfir útilínuna. Það
er áhyggjuefni að Ómar Ingi [Magn-
ússon] hefur ekki náð að jafna sig af
höfuðmeiðslunum sem hafa verið
að plaga hann. Viggó [Kristjánsson]
sló reyndar aðeins á þær áhyggjur
með góðri frammistöðu í leikjunum
gegn Svíum um daginn. Svo finnst
mér vanta svolítið hávaxna skyttu
með mikla skotógn en Kristján Örn
[Kristjánsson] gæti alveg orðið sá
leikmaður hjá okkur,“ segir Óskar.
„Við erum með þrjá öf luga
varnarmenn, þá Ólaf Gústafsson,
Arnar Frey [Arnarsson] og Daníel
Þór [Ingason] sem eru að glíma við
meiðsli. Í ljósi þess var gott að sjá
hversu miklum framförum Sveinn
[Jóhannesson] hefur tekið á tíma
sínum hjá Sönderjyske. Hann
myndaði gott teymi með Ými Erni
[Gíslasyni] í þristunum og þeir
lofuðu góðu í leikjunum við Svía.
Hvað línustöðuna varðar þá stóð
Kári Kristján [Kristjánsson] sig vel
gegn Svíþjóð. Hann minnti hressi-
lega á sig þar og getur verið gott
vopn sóknarlega í vissum leikjum á
Evrópumótinu,“ segir hann.
„Við erum með öflug yngri lands-
lið sem stóðu sig vel á þeim mótum
sem þau spiluðu á í sumar. Við
náðum meira að segja að breikka
hópinn í 20 ára landsliðinu sökum
fjarveru lykilleikmanna þar og
2000 og 2002 árgangarnir stóðu sig
vel. Mér finnst við þurfa að bæta við
verkefnum hjá U-15 ára hópnum
okkar og sjá til þess að B-landsliðið
fari að minnsta kosti á eitt mót á
hverju ári,“ segir hann um fram-
tíðina. hjorvar@frettabladid.is
Langt síðan breiddin var jafn mikil
Nú styttist í að Guðmundur Þórður Guðmundsson og þjálfarateymi hans hjá íslenska karlalandsliðinu í handbolta þurfi að skila inn
nöfnum þeirra 28 leikmanna sem koma til greina í 16 manna leikmannahóp liðsins á Evrópumótinu sem fram fer í janúar á næsta ári.
Aron Pálmarsson er lykilleikmaður í uppbyggingu íslenska karlalandsliðsins í handbolta sem stefnir að því að komast í hóp bestu þjóða heims á nýjan leik innan tíðar. FRÉTTABLAÐIÐ/EYÞÓR
Óskar Bjarni
Óskarsson.
ENSKI BOLTINN Fara þarf aftur til
lokaumferðar síðasta tímabils til
að finna síðasta leikinn þar sem
Liverpool tókst að halda hreinu á
heimavelli sínum. Síðan þá hefur
Liverpool leikið tíu leiki í öllum
keppnum og hleypt inn sextán
mörkum. Nú síðast tókst Napoli að
finna leiðina fram hjá Alisson Beck-
er í marki Liverpool í 1-1 jafntefli í
riðlakeppni Meistaradeildar Evr-
ópu en með sigri hefði Liverpool
tekist að tryggja sér sæti í 16-liða
úrslitunum. Þess í stað þurfa læri-
sveinar Jürgens Klopp að ferðast
til Salzburg og ná í jafntef li hið
minnsta gegn spútnikliði RB Salz-
burg sem hefur skorað sextán mörk
í fimm leikjum í riðlinum til þessa.
Varnarleikur Liverpool gjör-
breyttist til hins betra fyrir 23
mánuðum þegar Virgil van Dijk
var keyptur fyrir metupphæð frá
Southampton. Liðið tók annað
skref í rétta átt þegar Alisson var
keyptur frá Roma í sumar. Í 38
leikjum á síðasta tímabili í ensku
úrvalsdeildinni hélt Alisson 21
sinni hreinu, þar af tólf sinnum á
heimavelli. Þá tókst aðeins PSG
að skora gegn Liverpool á Anfield
á vegferð félagsins að Meistara-
deildartitlinum í vor.
Á þessu tímabili hefur varnar-
leikur Liverpool ekki verið sá sami
og hefur liðið aðeins haldið þrisvar
hreinu í 22 leikjum í öllum keppn-
um. Þessir þrír leikir hafa allir
farið fram á útivelli, tveir í úrvals-
deildinni gegn Burnley og Sheffield
United og svo deildabikarleikur
gegn MK Dons.
Staða Liverpool er afar vænleg,
liðið er með átta stiga forskot á
toppi ensku úrvalsdeildarinnar og
í efsta sæti E-riðils Meistaradeildar
Evrópu en ljóst er að Jürgen Klopp
þarf helst að finna lausn á vand-
ræðum liðsins í varnarleiknum ef
félagið ætlar að gera atlögu að öllum
fjórum titlunum sem eru í boði. – kpt
Varnarlína Liverpool ekki að sýna sitt rétta andlit á heimavelli
Dries Mertens skorar mark Napoli á Anfield í vikunni. NORDICPHOTOS/GETTY
2 9 . N Ó V E M B E R 2 0 1 9 F Ö S T U D A G U R44 S P O R T ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
2
9
-1
1
-2
0
1
9
0
5
:3
5
F
B
0
9
6
s
_
P
0
6
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
9
6
s
_
P
0
5
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
9
6
s
_
P
0
3
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
9
6
s
_
P
0
3
9
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 2
4
5
F
-6
3
2
4
2
4
5
F
-6
1
E
8
2
4
5
F
-6
0
A
C
2
4
5
F
-5
F
7
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
1
B
F
B
0
9
6
s
_
2
8
_
1
1
_
2
0
1
C
M
Y
K