Fréttablaðið - 29.11.2019, Síða 58

Fréttablaðið - 29.11.2019, Síða 58
HANDBOLTI Guðmundur Þórður Guðmundsson, þjálfari íslenska karlalandsliðsins í handbolta, gæti fengið töluverðan höfuðverk þegar kemur að því að velja leikmanna- hópinn fyrir Evrópumótið sem fram fer í janúar á næsta ári. Hópurinn sem kemur til greina í liðið hefur stækkað jafnt og þétt síðustu mán- uðina og Guðmundur þarf að skilja sterka leikmenn eftir heima. Fréttablaðið fékk Óskar Bjarna Óskarsson, aðstoðarþjálfara meist- araflokks karla og yfirþjálfara yngri f lokka hjá Val, til þess að fara yfir stöðuna hjá landsliðinu og rýna í valið sem fram undan er. Óskar Bjarni segir útlitið gott í aðdraganda mótsins en öf lugir leikmenn séu hins vegar að glíma við meiðsli og erfitt að meta hvort þeir verða með. „Það er langt síðan við höfum haft jafn mikla breidd í landsliðinu og við búum yfir þessa stundina. Þau kynslóðaskipti, sem nauð- synlegt var að fara í í kjölfar þess að liðið sem náði  góðum árangri á Ólympíuleikunum árið 2008 og Evrópumótinu  2010 var farið að eldast, eru að ganga  í gegn þessa stundina. Við náðum að brúa bilið vel að mínu mati og erum núna með í höndunum leikmannahóp sem er með marga leikmenn í hæsta gæða- f lokki og á breiðu aldursbili. Ég held að markviss vinna hjá yngri landsliðunum sem og mikil rækt við B-landsliðið undanfarin ár eigi stóran þátt í því,“ segir Óskar Bjarni um landslagið. „Þá erum við vel settir hvað það varðar að við erum með leikmenn á besta aldri í öllum stöðum og önnur kynslóðaskipti eins og við höfum verið að ganga í gegnum ekki í sjón- máli. Þess í stað getum við farið að horfa til þess að koma okkur aftur í hóp átta bestu liða heims innan fárra ára. Það er erfitt að setja ein- hvern tímapunkt á það hvenær það gerist en ég myndi segja að eftir svona tvö ár verðum við komnir á þann stall á nýjan leik. Aron Pálm- arsson er svo líklega að spila sinn besta handbolta á ferlinum. Það er gaman að sjá hann vaxa í hlutverki reynslumikils leikmanns í liðinu sem miðlar til yngri leikmanna og nær einkar vel til þeirra inni á vell- inum,“ segir hann enn fremur. Vantar öfluga og hávaxna skyttu „Við erum með ungan markmann, Viktor Gísla [Hallgrímsson], sem hefur öðlast alþjóðlega reynslu með GOG og hefur grætt mikið á að vera að spila í Meistaradeild Evrópu. Sigvaldi Björn [Guðjónsson] hefur vaxið mikið með Elverum og er að taka stökkið með Hauki Þrastarsyni og fara til Kielce. Það verður gaman að sjá þróun mála hjá þeim en þeir eru í góðum höndum hjá Talant Dujshebaev sem er einn fremsti þjálfari heims. Janus Daði [Smárason] er að spila frábærlega með Álaborg og bankar hressilega á dyrnar í miðjusveit liðs- ins, sérstaklega í ljósi meiðsla Gísla Þorgeirs [Kristjánssonar].  Bjarki Már [Elísson] hefur verið að spila vel með Lemgo og Arnór Þór [Gunnars- son] heldur uppteknum hætti með Bergischer,“ segir þessi reynslubolti. „Þó svo að við eigum marga leik- menn í hæsta gæðaf lokki þá er kannski mesta syndin hversu marg- ir þeirra eru miðjumenn. Það væri óskandi að þessir hæfileikar hefðu dreifst betur yfir útilínuna.  Það er áhyggjuefni að Ómar Ingi [Magn- ússon] hefur ekki náð að jafna sig af höfuðmeiðslunum sem hafa verið að plaga hann. Viggó [Kristjánsson] sló reyndar aðeins á þær áhyggjur með góðri frammistöðu í leikjunum gegn Svíum um daginn. Svo finnst mér vanta svolítið hávaxna skyttu með mikla skotógn en Kristján Örn [Kristjánsson] gæti alveg orðið sá leikmaður hjá okkur,“ segir Óskar. „Við erum með  þrjá öf luga varnarmenn, þá Ólaf Gústafsson, Arnar Frey [Arnarsson] og Daníel Þór [Ingason] sem eru að glíma við meiðsli. Í ljósi þess var gott að sjá hversu miklum framförum Sveinn [Jóhannesson] hefur tekið á tíma sínum hjá Sönderjyske. Hann myndaði gott teymi með Ými Erni [Gíslasyni] í þristunum og þeir lofuðu góðu í leikjunum við Svía. Hvað línustöðuna varðar þá stóð Kári Kristján [Kristjánsson] sig vel gegn Svíþjóð. Hann minnti hressi- lega á sig þar og getur verið gott vopn sóknarlega í vissum leikjum á Evrópumótinu,“ segir hann. „Við erum með öflug yngri lands- lið sem stóðu sig vel á þeim mótum sem þau spiluðu á í sumar. Við náðum meira að segja að breikka hópinn í 20 ára landsliðinu sökum fjarveru lykilleikmanna þar og 2000 og 2002 árgangarnir stóðu sig vel. Mér finnst við þurfa að bæta við verkefnum hjá U-15 ára hópnum okkar og sjá til þess að B-landsliðið fari að minnsta kosti á eitt mót á hverju ári,“ segir hann um fram- tíðina. hjorvar@frettabladid.is Langt síðan breiddin var jafn mikil Nú styttist í að Guðmundur Þórður Guðmundsson og þjálfarateymi hans hjá íslenska karlalandsliðinu í handbolta þurfi að skila inn nöfnum þeirra 28 leikmanna sem koma til greina í 16 manna leikmannahóp liðsins á Evrópumótinu sem fram fer í janúar á næsta ári. Aron Pálmarsson er lykilleikmaður í uppbyggingu íslenska karlalandsliðsins í handbolta sem stefnir að því að komast í hóp bestu þjóða heims á nýjan leik innan tíðar. FRÉTTABLAÐIÐ/EYÞÓR Óskar Bjarni Óskarsson. ENSKI BOLTINN Fara þarf aftur til lokaumferðar síðasta tímabils til að finna síðasta leikinn þar sem Liverpool tókst að halda hreinu á heimavelli sínum. Síðan þá hefur Liverpool leikið tíu leiki í öllum keppnum og hleypt inn sextán mörkum. Nú síðast tókst Napoli að finna leiðina fram hjá Alisson Beck- er í marki Liverpool í 1-1 jafntefli í riðlakeppni Meistaradeildar Evr- ópu en með sigri hefði Liverpool tekist að tryggja sér sæti í 16-liða úrslitunum. Þess í stað þurfa læri- sveinar Jürgens Klopp að ferðast til Salzburg og ná í jafntef li hið minnsta gegn spútnikliði RB Salz- burg sem hefur skorað sextán mörk í fimm leikjum í riðlinum til þessa. Varnarleikur Liverpool gjör- breyttist til hins betra fyrir 23 mánuðum þegar Virgil van Dijk var keyptur fyrir metupphæð frá Southampton. Liðið tók annað skref í rétta átt þegar Alisson var keyptur frá Roma í sumar. Í 38 leikjum á síðasta tímabili í ensku úrvalsdeildinni hélt Alisson 21 sinni hreinu, þar af tólf sinnum á heimavelli. Þá tókst aðeins PSG að skora gegn Liverpool á Anfield á vegferð félagsins að Meistara- deildartitlinum í vor. Á þessu tímabili hefur varnar- leikur Liverpool ekki verið sá sami og hefur liðið aðeins haldið þrisvar hreinu í 22 leikjum í öllum keppn- um. Þessir þrír leikir hafa allir farið fram á útivelli, tveir í úrvals- deildinni gegn Burnley og Sheffield United og svo deildabikarleikur gegn MK Dons. Staða Liverpool er afar vænleg, liðið er með átta stiga forskot á toppi ensku úrvalsdeildarinnar og í efsta sæti E-riðils Meistaradeildar Evrópu en ljóst er að Jürgen Klopp þarf helst að finna lausn á vand- ræðum liðsins í varnarleiknum ef félagið ætlar að gera atlögu að öllum fjórum titlunum sem eru í boði. – kpt Varnarlína Liverpool ekki að sýna sitt rétta andlit á heimavelli Dries Mertens skorar mark Napoli á Anfield í vikunni. NORDICPHOTOS/GETTY 2 9 . N Ó V E M B E R 2 0 1 9 F Ö S T U D A G U R44 S P O R T ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð 2 9 -1 1 -2 0 1 9 0 5 :3 5 F B 0 9 6 s _ P 0 6 3 K .p 1 .p d f F B 0 9 6 s _ P 0 5 8 K .p 1 .p d f F B 0 9 6 s _ P 0 3 4 K .p 1 .p d f F B 0 9 6 s _ P 0 3 9 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 2 4 5 F -6 3 2 4 2 4 5 F -6 1 E 8 2 4 5 F -6 0 A C 2 4 5 F -5 F 7 0 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 1 B F B 0 9 6 s _ 2 8 _ 1 1 _ 2 0 1 C M Y K
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.