Fréttablaðið - 29.11.2019, Blaðsíða 76

Fréttablaðið - 29.11.2019, Blaðsíða 76
Hvað? Hvenær? Hvar? Föstudagur hvar@frettabladid.is 29. NÓVEMBER 2019 Tónlist Hvað? Sálmasöngur við orgelleik Hvenær? 17.00-17.30 Hvar? Dómkirkjan í Reykjavík Flytjendur eru söngkonan Guð- björg Hilmarsdóttir og organistinn Kári Þormar. Aðgangur er ókeypis. Orðsins list Hvað? Loftslagsfundur Festu og Reykjavíkurborgar Hvenær? 13.00-16.00 Hvar? Kaldalón í Hörpu Hvað? Áhrif ríkisfjármála á norska hagkerfið Hvenær? 14.00 Hvar? Sölvhóll, fundarherbergi í Seðlabankanum Frummælandi: Arnaldur Sölvi Kristjánsson, sérfræðingur hjá norska fjármálaráðuneytinu. Hvað? Uppljómun. Dulræn reynsla föður eftir lát sonar Hvenær? 20.00 Hvar? Lífspekifélagið, Ingólfsstræti 22 Björn Hjálmarsson, barna- og ungl- ingageðlæknir, heldur erindi sem er opið öllum áhugasömum. Myndist Hvað? Sýningin Augnablik Hvenær? 18.00-20.00 Hvar? Litla gallerý, Strandgötu 19, Hafnarfirði Þversnið af verkum Jóns Baldurs Hlíðberg síðustu 30 ár, fuglar, fiskar, fornverur og örlítil upplifun af f lóru landsins. Hann verður á staðnum við opnun. Dans Hvað? Tangó praktika og milonga Hvenær? 21.00-24.00 Hvar? Kramhúsið, Skólavörðustíg Argentínskur tangó dunar. Dj er Hlynur og gestgjafar Sigríður & Hlynur. Opni tíminn ókeypis, milongan 1.000 kr. Sýning á náttúrurlífsmyndum Jóns Baldurs Hlíðberg verður opnuð í Litla gallerýi við Strandgötu í Hafnarfirði. Nærbuxnanjósnar-arnir eftir Arndísi Þórarinsdóttur er framhald af Nær-bu xnaverksmiðj-unni sem kom út í fyrra og fjallar um sömu persónur, Gutta og Ólínu. „Gutti er svolítið meðvirkur, prúður drengur sem þolir ekki neitt vesen. Ólína er skvetta sem dregst að öllu veseni,“ segir Arndís. „Í fyrri bókinni stóð til að rífa nærbuxnaverksmiðjuna en vinunum tókst að koma í veg fyrir það og í staðinn var opnuð samfélagsmiðstöð, Rumpurinn. Í framhaldsbókinni eru Gutti og Ólína aðalspaðarnir í þessari sam- félagsmiðstöð en nýráðinn hús- vörður hendir þeim út. Þau brjótast inn og sjá að eitthvað einkennilegt er á seyði, ýmislegt er horfið, þar á meðal mikilvæg nærbrók frá kon- ungskomunni 1874 sem var sér- saumuð fyrir Kristján IX. Gamal- menni sem hefur haldið þarna til er gufað upp og sömuleiðis kanína sem nýverið hefur eignast unga. Svo Gutti og Ólína leggja af stað með kanínuungann Svölu Björgvins til að rannsaka málið,“ segir Arndís. Borgaraleg óhlýðni Spurð af hverju hún hafi ákveðið að skrifa framhaldsbók segir hún: „Ég var komin með sögusvið og per- sónur sem voru í skemmtilegu sam- spili. Mér fannst freistandi að segja f leiri sögur af þessum persónum frekar en að finna upp hjólið. Ég skynja líka að krökkum finnst gaman að hitta aftur gamla kunn- ingja.“ Bókin er nýkomin út en Arndís hefur þegar fengið góð viðbrögð. „Það að blanda saman prakkara- legu fyrirbæri eins og nærbuxum og virðulegu fyrirbæri eins og löngu dauðum kóngi kitlar krakka. Ég hef frétt af börnum sem lesa bókina yfir morgunmatnum og börnum sem neita að fara að sofa á kvöldin af því að þau vilja lesa. Bókin hefur því valdið borgaralegri óhlýðni á einhverjum heimilum, sem er hið besta mál.“ Hjarta og erindi Þegar Arndís er spurð hvað henni finnist verða að vera til staðar svo barnabók virki svarar hún: „Hjarta og erindi. Börn bregðast við skemmtilegum karakterum, áhugaverðu sögusviði og húmor en ef erindið er ekkert þá fellur allt hitt um sjálft sig og lesandinn man ekki eftir bókinni viku eftir að hafa lesið hana.“ Hún segist vera komin með byrjun á bók númer þrjú. „Sjö ára sonur minn, aðstoðarmaður minn, veit svo alveg hvað á að gerast í bók númer tíu! Hann er upphafsmaður- inn að öllu saman. Þegar hann var fimm ára spurði ég hann hvernig sögu hann vildi lesa. Hann sagði að sagan ætti að vera um vélmenni sem gæti skotið nærbuxum. Ég stóðst ekki mátið að reyna að verða við þessari ósk og úr varð Nærbuxna- verksmiðjan.“ Nærbrók Kristjáns IX „Mér fannst freistandi að segja fleiri sögur af þessum persónum.“ FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR ÉG HEF FRÉTT AF BÖRNUM SEM LESA BÓKINA YFIR MORGUNMATNUM OG BÖRNUM SEM NEITA AÐ FARA AÐ SOFA Á KVÖLDIN AF ÞVÍ ÞAU VILJA LESA." Nærbuxnanjósnar- arnir er ný barna- bók eftir Arndísi Þórarinsdóttur. Segir hjarta og er- indi verða að vera til staðar í barna- bókum. Kolbrún Bergþórsdóttir kolbrunb@frettabladid.is BÆKUR Hvítidauði HHH H Ragnar Jónasson Útgefandi: Bjartur Fjöldi síðna: 380 Ragnar Jónasson er einn þeirra íslensku glæpasagnahöfunda sem hafa getið sér gott orð fyrir glæpa- sögur sínar á erlendri grund auk þess sem hann nýtur mikilla vin- sælda hérlendis. Í nýjustu bók sinni, Hvítidauði, sýnir Ragnar að hann nær óðum betri tökum á þessu formi með haglega fléttaðri sögu. Glæpurinn sem um ræðir er framinn árið 1983. Hjúkrunarfræð- ingurinn Tinna mætir alltaf fyrst á morgnana í vinnuna á berklahælið og því verður það hennar hlutskipti á rigningarmorgni að koma að líki samstarfskonu sinnar sem greini- lega hefur verið myrt. Það er þó bara byrjunin og atburðirnir á berkla- hælinu verða örlagavaldar í lífi bæði starfsmanna þar, lögreglufólksins sem rannsakar málið og síðast en ekki síst af brotafræðingsins Helga sem þrjátíu árum síðar velur sér þessa atburði sem efni í lokaritgerð og tekur því upp þráð rannsóknar- innar að nýju. Berklar eru skelf ilegur sjúk- dómur og er nafn bókarinnar dregið af þeim en sjúkdómurinn var oft kallaður hvítidauði vegna þess fölva sem lagðist yfir sjúklingana. Berklarnir, berklahælin sem stofnuð voru og það samfélag sem þar var hefur orðið ýmsum að sagnaefni, meðal annars hefur Arnaldur Indriða- son gert þessu efni góð skil í sínum bókum. Þrátt fyrir nafn þessarar bókar er hún ekki um berklana sjálfa nema að litlu leyti þó vissulega komi þeir við sögu enda gerast glæpirnir á berklahæli. Hvítidauði kemur við á þremur tímaskeiðum, um miðja öldina, árið 1983 og svo 2012, sem ekki tengj- ast öll í f ljótu bragði en f léttast fimlega saman að lokum og f léttan er langt frá því að vera fyr- irsjáanleg heldur tekur söguþráðurinn nokkrar óvæntar beygjur áður en lausnin er í sjónmáli. Inn í söguna f léttast svo gamlir kunningjar úr fyrri bókum Ragnars, lögreglukonan Hulda Hermanns- dóttir og samstarfsmenn hennar, þó þau séu frekar í bakgrunni í þessari bók en sá hluti sögunnar sem gerist 2012 skarast einmitt við atburði í annarri bók Ragnars þar sem Hulda er í aðalhlutverki. Þá er einnig snert á ýmsum samfélagsmálum eins og alkóhólisma, heimilisofbeldi og ein- manaleika sem er sívaxandi vanda- mál í nútímasamfélagi. Hvítidauði er ljómandi glæpa- saga, persónugalleríið fjölbreytt og mannlegt og vel haldið utan um þræði. Brynhildur Björnsdóttir NIÐURSTAÐA: Spennandi og vel fléttuð glæpasaga.  Morðin á berklahælinu 2 9 . N Ó V E M B E R 2 0 1 9 F Ö S T U D A G U R62 M E N N I N G ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð 2 9 -1 1 -2 0 1 9 0 5 :3 5 F B 0 9 6 s _ P 0 7 6 K .p 1 .p d f F B 0 9 6 s _ P 0 6 9 K .p 1 .p d f F B 0 9 6 s _ P 0 2 1 K .p 1 .p d f F B 0 9 6 s _ P 0 2 8 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 2 4 5 F -4 0 9 4 2 4 5 F -3 F 5 8 2 4 5 F -3 E 1 C 2 4 5 F -3 C E 0 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 6 A F B 0 9 6 s _ 2 8 _ 1 1 _ 2 0 1 C M Y K
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.