Fréttablaðið - 29.11.2019, Blaðsíða 82
Blakkát geta verið mis-gáfuleg eins og þjóðin veit nú þegar alltof vel. Hressandi birtingar-mynd er að plana utan-landsferðir eftir einn,
eða tuttugu og einn, en svo hálfa
leiðina út á Kef lavíkurf lugvöll
hljómar Magaluf og Bene ekkert
svo vel. Iceland Air Connect f lýgur
hins vegar frá Reykjavíkurflugvelli
beint til Grænlands, fríhöfn og allt,“
segir rapparinn Erpur Eyvindarson,
einnig þekktur sem Blaz Roca.
„Ísland er búið að vera heitasti
áfangastaður ferðalanga heimsins
núna í nokkur ár en almennt eru
ferðamenn að sækja norður. Græn-
land á þannig framtíðina fyrir sér
en ballið er rétt að byrja, þegar
nýi alþjóðaflugvöllurinn og þjóð-
vegurinn verða reddí á allt eftir að
breytast,“ segir Erpur.
„Í dag ferðast menn um þetta risa-
vaxna land með þyrlum, bátum og
snjófarartækjum, lítill túrismi
þannig séð. Svo það er sérstaklega
spennandi að skella sér núna. Túr-
istarnir fatta það bráðum, hérna á
Íslandi til dæmis borga menn tugi
þúsunda til að skoða sílamáva og
veiða ufsa en þegar maður fer rétt
út fyrir byggðarlög Grænlands sér
maður þvílíkar ófreskjur; rostunga,
ísbirni og haugana af stórhvelum.“
Hann segir Nuuk vera frekar
nútímalega.
„Þarna getur þú keypt ferska
exótíska ávexti, kókoshnetur og
einhverja veislu og næsta búð við
hliðina græjar þig með alls konar
hvalkjöti og sauðnauti,“ segir Erpur.
„Snjósleðar og mótorhjól eru
reyndar bönnuð innan borgar-
marka og þú sérð f leiri Porsche
heldur en hundasleða, en engu að
síður mjög frábrugðið og spenn-
andi. Við vorum sem sagt með
matar og menningar pop-up, Blaz-
Roca rapp festival og KO.RE setti
kóreskan götumat sinn í græn-
lenskan búning, var með hreindýr
og selkjöt við gríðarlega ánægju
heimamanna,“ segir Erpur.
„Við fylltum þarna skemmtistað-
inn Manhattan og létum íslenskar
Kópavogsrímur föndra við mann-
skapinn. Við gerum það sama núna
um helgina í Færeyjum á hinum
hálf íslenska Sirkus í Þórshöfn.
Það verða með okkur rapparar af
svæðinu og hráefnið verður það
líka, eflaust grindhvalur og pysju-
vængir með kimchi.“
Næsti þátturinn af Landanum á
RÚV verður mikið til undirlagður
af Grænlandsævintýri þeirra Erps
og félaga.
„Svo verða frændur okkar í Fær-
eyjum í sviðsljósinu þessa helgi,
fólk getur fylgst með Instagramm-
inu minu og Snapchatti. Atlantic
Airways f lýgur reyndar frá Kefla-
víkurflugvelli en fyrir vikið er f lug-
ið sneggra, enda þota sem um ræðir,
en ekki huggulegu spaðarellurnar
sem ferja mann til Grænlands.“
steingerdur@frettabladid.is
Erpur á
Grænlandi
Rapparinn Blaz Roca lagði land undir fót nú
í haust og fór til Grænlands, þar sem hann
skemmti. Með honum í för var veitinga-
maðurinn Atli Snær, sem rekur staðinn
KO.RE í Mathöllinni á Granda.
Erpur og Dj Moonshine hljóðmaður með meiru. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON BRINK
Erpur segir tíma til kominn að fólk hætti að fara til
sólarlanda í ölæði þegar vel og beint liggur við að
skreppa yfir til nágranna okkar Grænlendinga. Erpur kynntist auðvitað frábæru fólki á norðurslóðum.
Markús og Erpur í Grænlandsför sinni.
Ferðin var í samstarfi við veitingastaðin KO.RE og Atli Snær, eigandi og aðalkokkur staðarins, matreiddi kóreskan
mat með grænlensku ívafi fyrir gesti sem fannst ekki ónýtt að fá heitan og vel kryddaðan og mat í köldu norðrinu.
Snapchat:
babarinn
Instagram:
slakibabarinn
2 9 . N Ó V E M B E R 2 0 1 9 F Ö S T U D A G U R68 L Í F I Ð ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
LÍFIÐ
2
9
-1
1
-2
0
1
9
0
5
:3
5
F
B
0
9
6
s
_
P
0
9
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
9
6
s
_
P
0
8
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
9
6
s
_
P
0
0
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
9
6
s
_
P
0
1
5
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 2
4
5
F
-1
4
2
4
2
4
5
F
-1
2
E
8
2
4
5
F
-1
1
A
C
2
4
5
F
-1
0
7
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
1
B
F
B
0
9
6
s
_
2
8
_
1
1
_
2
0
1
C
M
Y
K