Hlynur - 15.12.1962, Side 6
Silfurmerki
Páll
Ragnheiður
Guðmundur
Ingveldur
Páll Jóhannsson Snæfeld.
Fæddur 12. jan. 1893 að Sævarenda í Loðmundarfirði,
N.-Múlasýslu. Foreldrar: Jóhanna Pálsdóttir og Jóhann B.
Snæfeld. Bjuggu lengst af í Mjóafirði.
Páll stundaði lengi vel sjómennsku og tók smáskipa-
próf á ísafirði. Til Reykjavíkur fluttist hann árið 1907
og hélt þar áfram sama starfi þar til hann haustið 1935
réðist til Sambands ísl. samvinnufélaga. Vann hann
þar í frystihúsinu Herðubreið við afgreiðslustörf og
vélgæzlu, fyrst sem daglaunamaður í þrjú ár, og síðan
sem fastráðinn starfsmaður frá því í ágústmánuði 1938.
Páll Jóhannsson Snæfeld hefir á árinu 1962 starfað hjá
Sambandi ísl. samvinnufélaga í 27 ár.
Páll er tvíkvæntur. Fyrri kona hans var Elísabet
Thorarensen, Ijósmóðir. Síðari kona hans er Guðlaug
Bjarnadóttir.
Ragnheiður Hannesdóttir.
Fædd að Syðri-Ey á Skagaströnd, Húnavatnssýslu, 23.
maí 1895. Foreldrar: Sigríður Jónsdóttir og Hannes
Magnússon. Var fyrst afgreiðslustúlka í bókabúð Þor-
steins M. Jónssonar á Akureyri. Réðist til Gefjunar á
Alkureyri 24. ágúst 1935 og starfaði þar þangað til
hún fluttist til Reykiavíkur haustið 1954. Vann áfram
við afgreiðslustörf hjá Gefjun-Iðunn í Reykjavík og hefir
starfað þar síðan.
Ragnheiður Hannesdóttir hefir á árinu 1962 starfað
hjá Sambandi ísl. samvinnufélaga í 27 ár.
Guðmundur Guðmundsson, klæðskeri.
Fæddur að Rifgirðingum, Snæfellsnessýslu, 13. febr-
úar 1905. Foreldrar: Ólöf Helgadóttir og Guðmundur
Jónsson, lengst af búsett í Stykkishólmi.
Nam klæðskeraiðn á árunum 1925 til 1929 hjá And-
ersen og Sön í Reykjavík. Tók sveinspróf þaðan árið
1929. Vann síðan hjá því firma næstu tvö ár, og síðan
á ýmsum stöðum hér í bænum fram til ársins 1937.
Réðst þá til Sambands ísl. samvinnufélaga og hefir unn-
ið við pressingar á Saumastofu Gefjunar ávallt síðan
Guðmundur Guðmundsson hefir á árinu 1962 starfað hjá
Sambandi ísl. samvinnufélaga í 25 ár.
Ingveldur Einarsdóttir.
Fædd í Reykjavík 21. september 1902. Foreldrar: Guð-
ríður Guðmundsdóttir og Einar Einarsson verkamaður
í Reykjavík. Stundaði ýmsa daglaunavinnu, en þegar
Samband ísl. samvinnufélaga byrjaði á Garnahreinsun
hér í Reykjavík, fékk Ingveldur vinnu þar haustið
1923 og hefir unnið þar síðan, þann tíma sem Garna-
hreinsunin hefur verið starfrækt ár hvert. Ingveldur
Einarsdóttir hefir árið 1962 unnið samtals hjá Sam-
bandi ísl. samvinnufélaga í 25 ár.
6 HLYNUR