Hlynur - 15.12.1962, Blaðsíða 15
Þetta er Sigurður V. Jónsson sem
verið hefur 15 ár á Gefjun. Sigurð-
ur er í fágunardeiid svokallaðri, þar
sem kambgarnið og teppin eru press-
uð og fáguð.
Þessi unga stúlka heitir Harpa Geir-
dal og er 15 ára. Þegar HLYNUR
spurði hana hvernig henni líkaði
að vinna hérna, sagði hún að sér
líkaði ágætlega. Annars værí hún
í skóla á vetrum en ynni aðeins
hér á sumrin, og á myndinni er hún
við þrinningu.
Rósa Þorvaldsdóttir er hér við pillingu.
Hennar verk er að yfirfara vefnaðinn,
áður en hann er settur í stranga, líta
eftir göllum og gera við ef hægt er.
Vinnutími Rósu er frá kl. 1 á daginn
til 10 á kvöldin.
Við hittum Sigurð Garðarsson þar
sem hann stóð við vefstólinn, og
var að vefa húsgagnaáklæði. Sig-
urður sagðist vinna frá 5—5 á
daginn. hávaðinn væri ekki svo
mikill þegar maður færi að venj-
ast honum, enda væru flestir með
bómull í eyrunum þar sem háv-
aðinn væri ærandi. Vefnaðurinn
gengur misjafnlega, er þetta frá
50—100 metrar á sólarhring í
hverjum stól.
HLYNUR 15