Hlynur - 15.12.1962, Blaðsíða 16
Tryggvi Jóhannesson er
hér viS litunartækin
Þetta er 6 ári3 sem hann
er hjá Gefjuni, og kvaðst
hann kunna ágætlega við
sig þarna nema hvaS hit-
inn og hávaðinn væri
stundum dálítið þreytandi.
Og svo er auðvitað ekki
alltaf gaman að vera inni
þegar úti er sól og sumar,
en sumarfríið bætir það
upp, og það að geta verið
inni þegar úti er bylur og
frosti.
Kjartan Sumarliðason hitt-
um við þar sem hann stóð
við spunavéiina. Kjartan
hefur verið í 14 ár á Gefj-
un. Er við inntum hann
eftir hvort ekki væri nokk-
ur vandi að hugsa um
svona miklar vélasamstæð-
ur sem spunavélarnar,
sagði hann að það yrði allt
af að hafa vakandi auga
með þráðunum, skeyta
saman, og greiða úr flækj-
um ef eitthvað útaf bæri.
Jóhann Guðmundsson var
nýorðinn aðstoðarverk-
stjóri í loðbandsdeild þeg-
ar HLYNUR hitti hann að
máli Jóhann sem verið
hefur í 28 ár í Gefjun
sagðist byrja að vinna kl.
5 á morgnana og ynni til
5 á daginn, nema á laugar-
dögum þá væri byrjað kl.
5 á morgnanna og unnið
til kl 1.
16 HLYNUR