Hlynur - 15.12.1962, Side 17
Gunnar Vigfússon
Gunnar Vigf ússon skrifstofustjóri hjá
Kaupfélagi Ár-
sextugur
nesinga Selfossi
varð sextugur 13.
okt. s. 1. Gunnar
er einn af elztu og
þrautreyndustu
starfsmönnum
samvinnusamtak-
anna á Suður-
landi, og hefur
unnið hjá þeim í
rúm 40 ár.
Gunnar er fæddur að Flögu í
Skaftártungu, fór í Samvinnuskól-
ann og útskrifaðist þaðan vorið 1922.
Gekk þá þegar um haustið í þjón-
ustu Kaupfélags Hallgeirseyjar og
var þar þangað til hann í nóvember
1936 réðst til K.Á. á Selfossi hvar
hann hefur starfað síðan og lengst
af sem skrifstofustjóri.
Gunnar er tvíkvæntur, fyrri konu
sína Maríu Brynjólfsdóttur missti
hann. Seinni kona hans er Oddbjörg
Sæmundsdóttir.
Óð skal hefja
hugdjarfur
glatt sé á góðri stund.
Hyllum Gunnar
heiðursmanninn,
sextuga sæmdarkempu.
Borinn nær mörkum
nýrrar aldar
anda og almanaks
í nálægð vatna
og svartra sanda
vormaður, verkglaður.
Vænn meiður
af völdum stofni
tryggur við föðurtún,
þótt tvítugur
leggði und fót
lönd á öðrum slóðum.
Sat hesta
söng rímur
síst með stúrna brá.
Fjóra tygi
frjóstu ára
samvinnu liðsemd iagði.
Vopnfimur
víða barðist
vettvangi hugar á.
Pennahagur,
tafltraustur,
bridge garpi lýðir lutu.
Hnýsinn í einkalíf
liðinna.
Hver er ái hvers?
Ættfróður
ættum kunnur
seggja á Suðurlandi.
Neitaði ei víni
í vinahópi,
vísur þá vífum kenndi.
Hjálpsamur,
hlýlyntur,
starfsbræðrum styrkur góður.
Reisti Hvol
við Heljarslóð.
á og eyjum nær.
Heimili traust
húsbónda bjuggu
húsfreyju listahendur.
Megir þú, Gunnar,
gengi fagna
lífs um langa daga.
Brosi þér sól
af björtum himni,
lýsi þér mildur máni.
Virðing okkar
allra áttu
óskipta, alla stund.
Hyllum svo Gunnar,
heiðursmanninn,
sextuga sæmdarkempu.
Árni Guðmundsson.
HLYNUR 17