Hlynur - 15.12.1962, Side 26
Stjórn Starfsmannafélags SIS í Reykjavik kjörin á síðasta aðalfundi. Gylfi
Sigurjónsson Búvörudeild, GuSrún Árnadóttir Innflutningsdeild, Hrólfur
Halldórsson formaSur Véladeild, Ragnar Sigurjónsson Skipadeild og Leifur
Unnar Ingimarsson Iðnaðardeild.
Aðalfundur SF/SÍS í Reykjavík
Aðalfundur Starfsmannafélags SÍS
var haldinn í Sambandssalnum 23.
október s. 1. Fráfarandi formaður
Eysteinn R. Jóhannsson flutti skýrslu
um störf stjórnarinnar á síðasta
starfstímabili. Starfsemin hafði ver-
ið svipuð og undanfarin ár, utan
hvað leitað hafði verið eftir landi
er lægi að vatni þar sem byggja
mætti sumarhús fyrir starfsmenn
Sambandsins. Ekki kvað formaður
neinn heppilegan stað hafa fengist
sem réttlætt gæti að skálinn í
Skammdal væri seldur, og voru fund-
armenn því sammála.
Að skýrslu formanns lokinni flutti
fráfarandi gjaldkeri Árni Reynisson
yfirlit um fjárreiður félagsins og
gerði grein fyrir fjárhagnum. Hinar
ýmsu nefndir Starfsmannafélagsins
fluttu síðan skýrslur um starfsem-
ina, og höfðu margar þeirra starf-
að vel að málum sínum.
Lífeyrissjóð SÍS bar á góma á
fundinum og var eftirfarandi tillaga
frá Arnóri Valgeirssyni, Eysteini R.
Jóhannssyni og Matthíasi Kristjáns-
syni samþykkt. „Aðalfundur Sf/SÍS
haldinn í Sambandssalnum 23.—10.,
1962 felur nýkjörinni stjórn félagsins
að hlutast til um. að framvegis verði
gerð grein fyrir reikningum Lífeyris-
sójs SÍS á aðalfundi Slf/SÍS ár
hvert“.
Hér á eftir fer svo listi yfir þá
sem kjörnir voru í trúnaðarstöður
félagsins fyrir næsta kjörtímabil.
Aðalstjórn:
Formaður: Hrólfur Halldórsson.
Meðstj.:
Gylfi Sigurjónsson, Guðrún Árna-
dóttir, Leifur Unnar Ingimarsson,
Ragnar Sigurjónsson.
Varamenn:
Geir Magnússon, Matthías Kristjáns-
son.
Skemmtinefnd:
Einar Kjartansson, Guðrún Árnadótt-
ir, Gunnar Gunnarsson,
Ólafur G. Sigurðsson, Bragi Ragn-
arsson.
Varamenn:
Guðbjörg Einarsdóttir, Ríkharð Sig-
urbaldursson.
Skálanefnd:
Ragnar Sigurjónsson, Ágústa Þor-
26 HLYNUR