Hlynur - 15.12.1962, Blaðsíða 31
Um félagslíf og
fleira hjá KEA
Framhald af bls. 12.
byggðu skálann í upphafi því þeir
þurftu að bera allt efnið í hann
langar leiðir.
Þá byrjaði núna í haust nýr þátt-
ur í félagsiífi okkar, föndurnám-
skeið þar sem stunduð er bastvinna
og ýmislegt annað föndur. Þátttak-
endur fyrsta kvöldið voru 14 og má
telja það góða byrjun.
-—Þetta er nú töluvert félagslíf
finnst mér. En hvað með árshátíð
og Þorrablót hjá ykkur?
— Við höfum haft þann hátt á að
slá þessum tveim skemmtunum sam-
an í eina mikla hátíð. Það er bara
orðið erfitt vegna fólksfjölda nú-
orðið, það er varla hægt að koma því
öllu fvrir á einum stað.
það því trúa mín, að aldreigi hafi
skálinn verið betur varinn en nú er,
þar sem konur þessar standa fremst
í fylkingunni, en hið vasklegasta
riddaralið að baki þeirra, að verja
skálasölumönnum vegarins.
Kæra samstarfsfólk og heiðruðu
gestir. Nú tel ég óhætt fyrir þá, sem
sofnað hafa undir ræðu þessari að
fara að rumska. Ég er að verða bú-
inn. Ég vildi að endingu óska ykkur
þess, að maturinn hafi smakkast, og
ykkur verði hann að góðu, og að
þið eigið öll eftir að skemmta ykkur
sem allra bezt.
Páll Heiðar.
Svo er það eitt sem ekki má gleym
ast. og það er skaktúr sem við för-
um á hverju hausti með Snæfellinu
út á Eyjafjörð og Grímseyjarsund.
í þessum túrum fæðast margir kviðl-
ingar og góðir. Baldur Eiríksson er
þar fremstur í flokki með sínar bráð-
snjöllu vísuj-. Hann er líka alltaf með
sinn fasta þátt á árshátíðinni hjá
okkur og lætur þá hvern hafa sitt
í bundnu máli. Þátttakendur eru
þetta 25—30 manns og oftast farið
um fimm á sunnudagsmorgni og
komið síðla dags aftur til baka.
— Þið hafið Lífeyrissjóð hjá KEA,
Frímann?
— Jú, við höfum lífeyrissjóð, en
hann er bara ekki löggildur eða með
öðrum orðum að meðlimir hans
greiða fullt almannatryggingasjóðs-
gjald t;l ríkisins, og fá þess vegna
lífeyri frá tveim aðilum, sjóðnum
og Tryggingastofnuninni.
— Hvað greiðið þið mikið í sjóð-
inn?
—■ Starfsmenn greiða 3% af laun-
um sínum á móti jafnmiklu framlagi
frá félaginu. Hámarkslánaupphæð
hefur verið 125 þús. og þeir eru
ekki ófáir starfsmennirnir sem hafa
eignast þak yfir höfuðið gagngert
fyrir tilstuðlan sjóðsins.
— Segðu mér, Frímann, er ennþá
haldið þeirri góðu venju að hafa
Postulafundina svokölluðu?
— Postulafundirnir eru ennþá
haldnir einu sinni í mánuði með
kaupfélagsstjóra, fulltrúum hans og
söludeildarstjórunum. Þar er rabb-
að saman um ýmislegt sem er að
að gerast í kaupfélaginu á hverjum
tíma, og er venjan að deildarstjór-
arnir sjái um fundina til skiptis, boð-
un þeirra og undirbúning.
— Og að lokum hvernig líður
Krumma?
— Krummi er ennþá á lífi og kem
ur út af og til, oftast um jólaleytið.
—k
HLYNUR 31