Fréttablaðið - 01.02.2017, Blaðsíða 6

Fréttablaðið - 01.02.2017, Blaðsíða 6
mánudaga-föstudaga 7.30 -17.30 laugardaga 8.00 -16.00 sunnudaga 9.00 -16.00 Austurströnd 14 • Hringbraut 35 Fálkagata 18 • Dalbraut 1 ....................................................Sími: 561 1433 www.bjornsbakari.is 3 TEGUNDIR AF SÚRDEIGSBRAUÐUM VELDU GÆÐI! PREN TU N .IS ................................................ Skemmdir skoðaðar Hermenn skoða þak níu hæða íbúðahúss í Donetsk-borg í Úkraínu. Þetta stærðarinnar gat kom á þakið við skothríð Úkraínuhers. Átökin um Donbass-hérað Úkraínu hafa nú staðið yfir í nærri þrjú ár. Nordicphotos/AFp Samfélag Þingflokkur Vinstri grænna hefur lagt fram frumvarp á þingi um að lengja fæðingaror- lofið úr níu mánuðum í tólf. Svan- dís Svavarsdóttir, segir mikilvægt að fara í þessa kerfisbreytingu sem fyrst. „Þetta er mikilvægt. Þarna er um að ræða grundvallarmál fyrir allar smábarnafjölskyldur óháð efna- hag,“ segir Svandís. „Samfélagið virðist ekki taka þátt í lífi barna milli fæðingarorlofs og leikskóla. Það er tímaskekkja.“ Frumvarpið gerir ráð fyrir að fæðingarorlofið lengist í tveimur þrepum, áramótin 2018 og 2019. Í ársbyrjun 2019 eiga foreldrar fimm mánaða fæðingarorlofsrétt hvort um sig og tvo mánuði til skiptanna. Þorsteinn Víglundsson félags- málaráðherra leggur til í þingmála- skrá hækkun á fæðingarorlofi en telur ekki ráðlegt að lengja orlofið að sinni. Er það sama afstaða og Sam- tök atvinnulífsins lögðu til á síðasta kjörtímabili þegar samtökin lögð- ust gegn lengingu orlofs en studdu hækkun greiðslna úr sjóðnum. „Nú þarf að brúa bilið. Það á ekki að fara eftir félagslegri stöðu og efnahag hvort barnafjölskyldur geti dekkað þetta bil. Okkar frumvarp kemur til móts við fleiri og er að okkar mati réttari forgangsröðun en ríkisstjórn Samtaka atvinnulífsins er að vinna að,“ bætir Svandís við. – sa Vilja lengja fæðingarorlof upp í heilt ár Svandís Svavarsdóttir, segir að samfélagið nái ekki að taka þátt í lífi barna milli fæðingar­ orlofs og leikskóla og vill lengja orlofið upp í ár. Okkar frumvarp kemur til móts við fleiri og er að okkar mati réttari forgangsröðun en ríkisstjórn Samtaka atvinnu- lífsins er að vinna að. Svandís Svavarsdóttir, þingflokksformaður Vinstri grænna Á þessu sést að lífsviðurværi 43 starfsmanna þessara tveggja fyrirtækja er í uppnámi Vilhjálmur Birgisson, formaður Verkalýðsfélags Akraness 12 mánuðir yrði fæðingaror- lofið í stað níu mánaða. atvinnumál HB Grandi hefur tilkynnt að hætt hafi verið við framkvæmdir við fiskþurrkun fyrirtækisins á Akranesi. Starfsemi fiskþurrkunarinnar var hætt í apríl í fyrra, og voru markaðsaðstæður ástæða þess. Illa hefur gengið að selja þurrkaðar afurðir vegna lítillar kaup- getu í Nígeríu sem virðist ekki vera að sækja í sig veðrið, eins og segir í tilkynningu. Þegar þurrkun var hætt störfuðu 26 manns við hana. Þrettán þeirra var tryggð atvinna í öðrum starfs- stöðvum HB Granda á Akranesi en hinir hafa unnið við tilraunavinnslu í húsi fiskþurrkunarinnar. Þeim hefur nú einnig verið boðin vinna í öðrum starfsstöðvum félagsins. Rekstur fiskþurrkunarinnar hefur verið mjög umdeildur á Akranesi vegna lyktarmengunar frá vinnsl- unni. Var verkfræðistofa fengin til að skipa starfshóp til að meta aðgerðir vegna lyktarmengunarinnar eftir að bæjarstjórn samþykkti að hún yrði stækkuð. Hópur heimamanna hefur krafist þess að vinnslan verði færð fjær íbúabyggð. Vilhjálmur Birgisson, formaður Verkalýðsfélags Akraness, skrifar af þessu tilefni pistil á heimasíðu félags- ins og lýsir áhyggjum sínum af þróun síðustu daga, en á dögunum var til- kynnt að sautján starfsmönnum málmendurvinnslufyrirtækisins Miklar sviptingar á Akranesi í atvinnumálum í upphafi árs Markaður fyrir þurrkaðar afurðir í Nígeríu er hruninn. FréttAblAðið/GVA GMR á Grundartanga hafi verið sagt upp störfum. Þeir voru flestir félags- menn Verkalýðsfélags Akraness og vinnur félagið að því að halda utan um réttindi starfsmanna í ljósi þessa, upplýsir Vilhjálmur. „Á þessu sést að lífsviðurværi 43 starfsmanna þessara tveggja fyrirtækja er í uppnámi og vonandi ná sem flestir starfsmenn sem um ræðir að finna sér ný störf sem fyrst,“ bætir Vilhjálmur við. – shá 1 . f e b r ú a r 2 0 1 7 m i Ð v i K u D a g u r6 f r é t t i r ∙ f r é t t a b l a Ð i Ð
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.