Fréttablaðið - 01.02.2017, Blaðsíða 16

Fréttablaðið - 01.02.2017, Blaðsíða 16
Í dag 19.05 Keflavík - Njarðvík Sport 3 19.35 West Ham - Man.City Sport 2 19.50 Man Utd. - Hull Sport 19.15 Stjarnan - Snæfell Ásgarður 19.15 Keflavík - Njarðvík Keflavík 19.15 Grindavík - Valur Grindavík 19.15 Haukar - Skallagrím. Ásvellir Davíð Þór aftur í lanDslið- ið eftir átta ára fjarveru Heimir Hallgrímsson, landsliðs- þjálfari íslands í knattspyrnu, valdi í gær þá átján leikmenn sem skipa hópinn sem mætir Mexíkó í vináttulandsleik í las vegas á mið- vikudaginn í næstu viku. Heimir valdi alls sjö nýliða eða mark- vörðinn frederik schram, varnar- mennina Daníel leó Grétarsson og adam Örn arnarson, miðju- mennina Kristin frey sigurðsson og tryggva Hrafn Haraldsson og sóknarmennina Kristján flóka finnbogason og árna vilhjálms- son. Það vekur athygli að Davíð Þór viðarsson, fyrirliði íslands- meistara fH, er í hópnum en hann hefur ekki spilað fyrir íslenska landsliðið síðan 2009. allur hóp- urinn er á vísi. Enska úrvalsdeildin Bournemouth - C. Palace 0-2 0-1 Scott Dann (47.), 0-2 Benteke (90.) Sunderland - Tottenham 0-0 Arsenal - Watford 1-2 0-1 Younes Kaboul (10.), 0-2 Troy Deeney (13.), 1-2 Alex Iwobi (58.). Swansea - Southampton 2-1 1-0 Alfie Mawson (38.), 1-1 Shane Long (58.), 2-1 Gylfi Þór Sigurðsson (70.). Gylfi lagði upp fyrra markið og tryggði Swansea mikil- vægan sigur í öðrum leiknum í röð. M´brough - West Brom 1-1 Burnley - Leicester 1-0 1-0 Sam Vokes (87.) Liverpool - Chelsea 1-1 0-1 David Luiz (25.), 1-1 Georginio Wijn- aldum (57.). Diego Costa klúðraði víti. 1 . f e b r ú a r 2 0 1 7 M I Ð V I K U D a G U r16 s p o r t ∙ f r É t t a b L a Ð I Ð fótboLtI viðar Örn Kjartansson skoraði tvö mörk fyrir Maccabi tel aviv þegar liðið gerði jafntefli við Hólmar Örn eyjólfsson og félaga í Maccabi Haifa, 2-2, í ísraelsku úrvalsdeildinni í fótbolta í fyrradag. sport Tíu mörk í fjórða landinu Viðar er búinn að skora 58 mörk í 94 deildarleikjum og á 131 mínútna fresti sem atvinnumaður í Evrópu og Asíu. Hann hefur alls skorað 75 mörk í öllum keppn- um í Noregi (31), Kína (13), sví- þjóð (17) og Ísrael (14). Markaskorarar eru verðmætir 1. janúar 2014 Vålerenga kaupir Viðar á 120 þúsund evrur 20. janúar 2015 Jiangsu Sainty kaupir Viðar á 2,25 milljónir evra 27. janúar 2016 Malmö FF kaupir Viðar á 325 þúsund evrur 30. áGúst 2016 Maccabi Tel Aviv kaupir Viðar á 3,5 milljónir evra Hann spilaði aðeins eina leiktíð í norsku úrvalsdeildinni en varð þar markakóngur með 25 mörk í 29 leikjum. Ævinýraþráin greip um sig þegar kínverska liðið jiangsu sainty gerði honum tilboð sem hann gat ekki hafnað. í Kína var viðar Örn grátlega nálægt því að skora tíu mörk en hann setti níu mörk í 28 leikjum. Þar skoraði viðar mark á 230 mín- útna fresti sem er hans langversti árangur síðan hann byrjaði að raða inn í efstu deild árið 2013. sé litið á heildarfjölda marka í öllum keppnum má fullyrða að viðar Örn hafi skorað tíu mörk að lágmarki í fimm löndum en ekki fjórum því selfyssingurinn bætti við fjórum mörkum fyrir jiangsu sainty í kínverska bik- arnum sem liðið vann. Tveir erfiðir kaflar viðar Örn byrjaði ekki vel með Malmö í svíþjóð og heill- aði ekki beint stuðningsmenn í fyrstu leikjunum. en þegar stíflan brast gerði hún það með látum. viðar skor- aði á endanum fjórtán mörk í 19 leikjum fyrir sænska stór- liðið þrátt fyrir að spila aðeins hálfa leiktíðina. Hann hafnaði meira að segja í 2.-3. sæti marka- listans og hjálpaði Malmö að verða meistari. líf framherjans getur verið erfitt eins og viðar Örn fékk aftur að kynn- ast í ísrael. Þar gekk hann í gegnum mánuð án þess að skora. liðið var heldur ekkert að skora og þjálfarinn rekinn en þar sem viðar var keyptur fyrir metupphæð til Maccabi var skuldinni skellt að stórum hluta á hann. „Það var þvílík pressa á okkur og stuðningsmennirnir voru á móti okkur. Þetta endaði með því að þjálfarinn var rekinn. fjölmiðlarnir á svæðinu kenndu mér um þetta allt saman. Þetta var nú samt þannig að í þessum leikjum fékk ég varla færi. Þetta var bara í hausnum á okkur en undanfarið hefur þetta lagast og við erum farnir að vinna leiki aftur,“ sagði viðar í samtali við íþrótta- deild á dögunum. tíunda markið er komið í hús í fjórða landinu og nú er bara að sjá hvort viðar verði markakóngur í öðru landinu en hann er aðeins einu marki á eftir efsta manni og nóg eftir af deildinni. tomas@365.is Malmö Sænska úrvals- deildin 2016 l14 mörk í 19 leikjum l17 mörk í deild og bikar l2. til 3. sæti á markalistanum Skoraði á 113 mínútna fresti Skoraði í 47% leikjanna 1 tvenna 2 þrennur Fylkir Pepsi-deildin á Íslandi 2013 l13 mörk í 22 leikjum l18 mörk í deild og bikar l1. til 3. sæti á markalistanum Skoraði á 152 mínútna fresti Skoraði í 55% leikjanna 1 tvenna Engin þrenna Ísraelska úrvalsdeildin 2016/17 l10 mörk í 17 leikjum l13 mörk í deild og bikar l2. til 3. sæti á markalistanum Skorar á 132 mínútna fresti Skorar í 41% leikjanna 3 tvennur 0 þrennur Vålerenga Norska úrvals- deildin 2014 l25 mörk í 29 leikjum l31 mark í deild og bikar lMarkakóngur Skoraði á 104 mínútna fresti Skoraði í 55% leikjanna 4 tvennur 2 þrennur ÚTSALA! H E I L S U R Ú M A R G H !!! 0 10 21 7 #1 2 (* Mi ða ð v ið 12 má na ða va xta lau sa n r að gr eið slu sa mn ing m eð 3, 5% lá nt ök ug jal di og 40 5 k r. g re iðs lug jal di) ROYAL ALEXA Tvöfalt pokagormakerfi, millis tíf, fimm svæðaskipt með Þrýstij öfnunar svampi ásamt botn og fótum. (Stærð 153x200 cm) Á MÁNUÐI AÐEINS 13.269 kr.* FULLT VERÐ 212.979 kr. ÚTSÖLUVERÐ 149.086 kr. Viðar Örn Kjartansson fagnar hér einu af mörkum sínum fyrir ísraelska félagið Maccabi Tel Aviv en framherjinn hefur verið í stuði að undanförnu. NordiCPHoToS/GETTy Viðar Örn Kjartansson, skoraði sitt tíunda mark í ísraelsku deildinni á mánudag og er nú búinn að skora að minnsta kosti tíu deildarmörk í fjórum löndum. Það verður seint sagt að þessi mörk viðars arnar hafi komið á óvart. síðan í Pepsi-deildinni 2013 þegar hann skaust upp á stjörnuhimininn hefur hann ekki gert annað en að skora. Mörkin hans tvö á mánudaginn voru mörk númer níu og tíu í ísra- elsku úrvalsdeildinni en það tók hann aðeins 17 leiki að skora þessi tíu mörk. Hann er nú búinn að skora tíu mörk í fjórum deildum í fjórum löndum; íslandi, noregi, svíþjóð og ísrael. Nálægt tíu í fimmta landinu eftir að skora þrettán mörk í 22 leikjum í Pepsi-deildinni fékk viðar Örn tækifæri í noregi þar sem hann sannaði sig sem alvöru markaskorari.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.