Fréttablaðið - 01.02.2017, Blaðsíða 13

Fréttablaðið - 01.02.2017, Blaðsíða 13
Í Fréttatímanum 14. janúar sl. birtist viðtal við Rob Jonqu­iére, hollenskan lækni, sem mælti fyrir líknardeyðingu lækna á dauðvona sjúklingum, eins og löglegt hefur verið í Hollandi frá 2002. Einnig kynnti hann skoðanir sínar á fundi Siðfræðiráðs lækna 10. janúar síðastliðinn. Markmið þessarar greinar er að lýsa þeim þremur ólíku kerfum sem við lýði eru í heiminum við líknardeyðingu, þannig að upplýst umræða verði í íslensku samfélagi um þessi mál. Líknarmeðferð hérlendis Líknarmeðferð sem stunduð er hérlendis og erlendis felst í því að lina þjáningar deyjandi sjúkl­ inga án ásetnings um að stytta líf þeirra. Hún á uppruna sinn í Hospice­hreyfingunni. Engin takmörk eru á því hvað má gefa mikið af lyfjum í þeim tilgangi, jafnvel þó það þurfi að svæfa sjúklinginn líknarsvefni, þó svo það kunni að stytta líf hans. Það er gert samkvæmt lögmálinu um tvennar afleiðingar: „Það er rétt­ mætt við sérstakar aðstæður að framkvæma verknað sem hefur auk þeirrar góðu afleiðingar sem stefnt er að, aðrar afleiðingar, sem aldrei er réttlætanlegt að stefna að af ráðnum hug.“ Höfundur lög­ málsins er heimspekingur kaþ­ ólsku kirkjunnar Thomas Aquinas (1225­1274). Þannig getum við veitt fullnægjandi líknarmeðferð án þess að það sé ásetningur að stytta líf sjúklingsins. Aðstoð við sjálfsvíg í Sviss Aðstoð við sjálfsvíg var leyfð í Sviss 1948, með því að fella niður þá lagagrein sem bannaði það. Ekki veit ég til að önnur ríki hafi tekið upp þetta fyrirkomulag. Upp úr 1980 var komið á fót fyrstu einkareknu leikmanna­ stofnuninni sem aðstoðaði fólk við sjálfsvíg. Eina skilyrðið er að ekki séu neinir fjárhagslegir hags­ munir fyrir hendi. Ekki eru nein skilyrði fyrir því að um dauð­ vona sjúklinga sé að ræða og dæmi er um að frískur maki hafi fylgt dauðvona eiginkonu sinni í dauðann. Einstaklingar leita sjálfir til stofnunarinnar með ósk um aðstoð þeirra sem þar starfa við sjálfsvíg sitt. Lögð er áhersla á staðfestingu á að hann hafi óskað eftir aðstoðinni, skriflega eða á myndbandi. Læknar koma þar ekki nærri. Viðkomandi verður sjálfur að tæma þann lyfjabikar sem leiðir hann til dauða, geti hann það ekki verður ekkert af sjálfsvíginu. Að sjálfsvíginu loknu er kallað á lögregluna sem stað­ festir það. Ekkert opinbert eftir­ lit hefur verið með starfseminni hingað til, né hefur þessi aðstoð við sjálfsvíg verið bundin við svissneskan ríkisborgarétt. Aðstoð lækna við sjálfsvíg í Norður-Ameríku Mörg ríki í Bandaríkjum Norður­ Ameríku og í Kanada hafa tekið upp strangt kerfi með opinberu eftirliti og fer þeim ríkjum fjölg­ andi. Ekki geta aðrir lagt fram beiðni um aðstoð við sjálfsvíg en þeir sem eru heimilisfastir í ríkinu og þarlendir ríkisborg­ arar. Skilyrði er að sjúklingurinn sé dauðvona innan skamms tíma og þarf það að vera staðfest af tveimur læknum. Beiðni sjúkl­ ingsins þarf að vera vel ígrunduð og sjúklingurinn vera vitrænt skýr og með óskerta dómgreind. Framkvæmdin er öll í yfirumsjón læknisins. Sjúklingurinn þarf sjálfur að tæma þann lyfjabikar sem leiðir hann til dauða, annars verður ekkert af því. Bein líknardeyðing í Hollandi Auk Hollands hafa Belgía og Lúxemborg tekið upp þetta fyrir­ komulag. Forsendurnar eru jafn strangar og við aðstoð lækna við sjálfsvíg í Norður­Ameríku. Staðfest þarf að vera af tveimur læknum að sjúklingurinn sé dauðvona. Einnig þarf beiðni sjúklingsins að vera vel ígrunduð og sjúklingurinn vitrænt skýr og með óskerta dómgreind. Fram­ kvæmdin er alfarið í höndum læknis sjúklingsins, sem gefur honum tvær sprautur sem leiða sjúklinginn til dauða. Læknirinn gefur síðan skýrslu til opinberrar eftirlitsnefndar. Aðeins í þessu kerfi er hægt að deyða sjúkling sem ekki getur gert það með eigin hendi og að gera lífsskrá um að vera deyddur við ákveðnar aðstæður, þar sem framkvæmdin er ekki í höndum sjúklingsins sjálfs. Í næstu grein verður gerð grein fyrir þeim rökum sem þarf að íhuga við val á hvernig við viljum hafa dánaraðstoð á Íslandi. Höfundur hefur unnið á sjúkra- húsum sem veita líknarmeðferð í 30 ár og er einnig heimspekimennt- aður. Líknarmeðferð, aðstoð við sjálfsvíg eða bein líknardeyðing – Fyrri grein Í upphafi árs 2014 tóku gildi lög hér á Íslandi um endurnýjanlegt eldsneyti í samgöngum á landi. Lögin kveða á um að frá og með 1. janúar 2015 skuli sölu aðilar eldsneytis á Íslandi tryggja að minnst 5% af orkugildi árlegrar heildar­ sölu á eldsneyti til notkunar í sam­ göngum á öllu landinu séu endurnýjan­ legt eldsneyti. Í þessari umræðu eins og annarri eru allmargir á öndverðum meiði og t.a.m. hafa verið skrifaðar greinar og haldnar ræður um ókosti þessarar laga­ setningar. Þar er talað um að lögin þýði einungis að við flytjum inn miklu dýrara eldsneyti sem hafi að auki takmarkaðan umhverfisávinning eða m.ö.o. að fjár­ munir streymi úr landi í vafasamt elds­ neyti og bíleigendur tapi milljörðum. Í fyrsta lagi er algerlega rangt að umhverfisávinningur sé ekki til staðar enda hefur endurnýjanlegt eldsneyti afar sterkar sjálfbærnikröfur. Það þýðir að það endurnýjanlega eldsneyti sem við flytjum inn dregur sannanlega úr losun miðað við áframhaldandi jarðefnaelds­ neytisnotkun. Í öðru lagi hefur þessi söluskylda á umhverfisvænu eldsneyti markað mikil tímamót í orkuskiptum í samgöngum á Íslandi, sér í lagi fyrir innlenda fram­ leiðslu á eldsneyti. Vegferðin frá einokun jarðefnaeldsneytis er því hafin og innlend framleiðsla hefur tekið verulega við sér með tilheyrandi atvinnu­ og verðmæta­ sköpun. Þegar lögin tóku gildi var ekki mikið um innlenda framleiðslu á endur­ nýjanlegu eldsneyti en lögin hafa skapað svigrúmið og galopnað markaðinn. Árleg eldsneytisnotkun í samgöngum á landi á Íslandi er í kringum 300 milljónir lítra, 5% af þeim markaði eru þá um 15 milljónir lítra. Í lögunum stendur einn­ ig: „endurnýjanlegt eldsneyti sem unnið er úr lífrænum eða ólífrænum úrgangs­ efnum sem ekki er unnt að nýta til mann­ eldis eða sem dýrafóður má telja tvöfalt.“ Þetta þýðir að t.d. metan framleitt úr líf­ rænu sorpi telur tvöfalt sem aftur þýðir að ef allt endurnýjanlega eldsneytið fellur undir þessa grein þarf 7,5 milljónir lítra til að uppfylla lögin. Innlendir framleiðendur Í dag framleiða nokkur fyrirtæki á Íslandi umhverfisvænt innlent eldsneyti sem uppfyllir áðurnefnd ákvæði um endur­ nýjanlega orku í samgöngum. Carbon Recycling International ehf. nýtir íslenska raforku, koltvísýring og vatn til framleiðslu metanóls sem nota má sem íblöndunarefni í bensín og notað er við framleiðslu á lífdísli. SORPA bs. og Norðurorka hf. framleiða metan úr lífrænum úrgangi. Framleiðsla SORPU er vottuð með svansmerki og er eina eldsneytið sem hlotið hefur þann umhverfisstimpil. Lífdísill ehf. og Orkey ehf. framleiða lífdísil úr dýrafitu og notaðri steikingar­ olíu. Miðað við núverandi framleiðslu og þau áform sem félögin hafa um fram­ leiðsluaukningu eru líkur á að eftir 2–3 ár verði innlend framleiðsla yfir 10 milljónir lítra, sem þýðir að hún getur staðið undir öllu því magni sem þarf til að uppfylla lögin. Sem dæmi má nefna að öll olíu­ félögin á Íslandi velja að nota erlenda íblöndun í bensín frekar en að nota íslenskt metanól. Þess vegna er metanól sem framleitt er á Íslandi í dag flutt út og notað í lífdísilframleiðslu erlendis. Væri t.d. eitthvað óeðlilegt að styðja við inn­ lenda og umhverfisvæna eldsneytisfram­ leiðslu á sama hátt og við erum tilbúin að gera með innlenda og umhverfisvæna matvælaframleiðslu? Er ekki ávinningur­ inn sambærilegur? Er það í alvöru vilji einhverra að hætta þessari íblöndunar­ skyldu til að geta brennt meira af gömlu og ódýru en jafnframt ósjálfbæru, meng­ andi og loftslagsbreytandi olíunni? Innlent eldsneyti í samgöngum Guðmundur Haukur Sigurðarson stjórnarformaður Orkeyjar ehf. Björn H. Halldórsson framkvæmdastjóri SORPU bs. Benedikt Stefánsson framkvæmdastjóri viðskiptaþróunar CRI ehf. Sigurður Ingólfsson framkvæmdastjóri Lífdísils ehf. Helgi Jóhannesson forstjóri Norðurorku hf. Björn Einarsson öldrunarlæknir á Landakoti-LSH Líknarmeðferð sem stund- uð er hérlendis og erlendis felst í því að lina þjáningar deyjandi sjúklinga án ásetn- ings um að stytta líf þeirra. Sem dæmi má nefna að öll olíufélögin á Íslandi velja að nota erlenda íblöndun í bensín frekar en að nota íslenskt metanól. 8.30 Íslensk máltækni og atvinnulífið. Björgólfur Jóhannsson, formaður Samtaka atvinnulífsins. Ávarp menntamálaráðherra. Kristján Þór Júlíusson. Íslenska í stafrænum heimi. Eiríkur Rögnvaldsson, prófessor við Háskóla Íslands. Áhrif máltækni á rekstur og þjónustu fyrirtækja. Birna Ósk Einarsdóttir, framkvæmdastjóri sölu og þjónustu hjá Símanum. Á íslensku má alltaf finna svar. Þórarinn Eldjárn, rithöfundur og skáld. Að tala íslensku við tölvur. Jón Guðnason, lektor við Háskólann í Reykjavík. Málið og atvinnulífið. Guðfinna S. Bjarnadóttir, ráðgjafi. Menntaverðlaun atvinnulífsins 2017. Forseti Íslands, Guðni Th. Jóhannesson, afhendir verðlaunin. 10.15 Kaffi og með því. Fræðslusjóðir og fræðsluaðilar kynna sig á Menntatorgi. 10. 45 Menntastofur samtaka í atvinnulífinu. A) Fagháskólinn B) Tækniþróun og breyttar áherslur í menntamálum C) Hæfni fræðsla og arðsemi í ferðaþjónustu. Fundarstjóri: Pétur Blöndal, framkvæmdastjóri Samáls. Allir velkomnir – ekkert þátttökugjald. Vinsamlegast skráið þátttöku á vef SA: www.sa.is NÝJASTA MÁLTÆKNI & VÍSINDI Menntadagur atvinnulífsins Fimmtudaginn 2. febrúar á Hilton Reykjavík Nordica kl. 8.30-12.15 s k o ð u n ∙ F R É T T A B L A ð i ð 13M i ð V i k u D A G u R 1 . F e B R ú A R 2 0 1 7
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.