Fréttablaðið - 01.02.2017, Blaðsíða 8

Fréttablaðið - 01.02.2017, Blaðsíða 8
heilbrigðismál „Ég er að kalla eftir því að það verði farið ofan í alla þætti málsins,“ segir Þórólfur Guðnason, sóttvarnalæknir en hann vill að gripið verði til opin- berra aðgerða til að stemma stigu við útbreiðslu kynsjúkdóma á Íslandi. Niðurstöður úr gagna- banka embættisins sýna að smit- uðum hefur fjölgað jafnt og þétt á undanförnum árum – einkum á það við um sárasótt og lekanda. „Það er ákveðin fræðsla sem þarf líka að fara af stað fyrir ungmenni. Hún er í gangi í skólum landsins, en það þarf að skerpa á því starfi. Þetta er þróun sem við sjáum í nálægum löndum, sem er nákvæmlega eins og hér,“ segir Þórólfur sem segir það greinilegt að kynslóðirnar sem ekki muna óttann vegna HIV-farald- ursins hegði sér samkvæmt því. Eins þurfi að tryggja hreinar nálar fyrir sprautufíkla og endurskipuleggja hvernig hægt er að nálgast fólk sem er smitað. Hann bendir á að allt kosti þetta peninga, mannafla og mikla vinnu. Þórólfur segir að bætt meðferð vegna HIV sé afar jákvæð, en feli í sér vissa hættu. „Það er eins og menn haldi að þeir séu ekki smit- andi lengur og gleyma þess vegna FÖSTUDAGA KL. 21:15 ÞÖKKUM FRÁBÆRAR VIÐTÖKUR SÓLI HÓLM @SoliHolmHorfði á Steypustöðina í gær. LOLaði oft og hlakka til að sjá meira. Bjössi smiður frábær. „Ertu að gefa mér þúsundkall?“. #Steypustöðin LOGI BERGMANN @logibergmann Djöfull er maður búinn að bíða lengi eftir einhverju svon a. #Steypustöðin ARON EINAR @ronnimall Ræningjarnir i hagkaup #Steypustöðin þessi veisla byrjar vel! ÁGÚST HALLDÓRSSON @AgustHalldorsÍ 35 mín fór engin úr fjölskyldunni í síma eða í-pad, brosti og hló. Sem þýðir að þátturinn var mjög góður.#Steypustöðin 365.is Sími 1817 9.990 kr. á mánuði Tryggðu þér áskrift fyrir aðeins 333 kr. á dag Stöðug fjölgun síðustu ár Sárasótt l Á árinu 2016 greind- ust 33 tilfelli af sára- sótt en árin 2014 og 2015 greindust 23 tilfelli hvort árið um sig. + Af þeim sem greindust með sjúk- dóminn árið 2016 voru 88% karlmenn sem stunda kynlíf með öðrum körlum líkt og árin á undan. Lekandi l Á undanförnum þremur árum hefur staðfestum lekanda tilfellum fjölgað jafnt og þétt. Á árinu 2016 greindust 86 til- felli, sem er nánast tvöföldun frá fyrri árum. l Karlar voru í miklum meirihluta sem fyrr (74%). Talið er að smit tengist sam- kynhneigð í yfir 70% tilfella. l Fjölónæmir stofnar af lekandabakteríum hafa ekki greinst hér á landi, en víða erlendis er slíkt sýklalyfjaónæmi vaxandi vandamál. Klamydía l Klamydía er langal- gengasti kynsjúk- dómurinn hér á landi með u.þ.b. 2.000 tilfelli sem greinast árlega. Kynjahlutfallið hef- ur haldist nokkuð óbreytt, en 60% af þeim sem greindust með klamydíu voru konur. HIV-sýking l Á árinu 2016 greind- ust óvenju margir einstaklingar með HIV-sýkingu, eða 27 einstaklingar, sem er meira en tvöfalt fleiri en á árunum 2014 og 2015. l Af þeim sem greindust voru 20 karlmenn en sjö konur. Af þeim sem greindust voru sjö samkynhneigðir (35%), sjö gagnkyn- hneigðir (35%) en sex voru með sögu um sprautunotkun (30%). l Óvenju margir, eða sex einstaklingar, greindust með alnæmi, sem er lokastig sjúkdóms- ins. Að auki voru þrír einstaklingar með merki um langt genginn sjúkdóm. ferðaþjónusta Markaðsrannsókn sýnir mikinn áhuga asískra ferða- manna á beinu flugi til Íslands. Ferðavefritið Anna.aero valdi flug- leiðina Keflavík-Hong Kong sem „óflognu flugleið vikunnar“ nýlega og byggði á leitarniðurstöðum frá ferðabókunarrisanum SkyScanner. Þessi niðurstaða er þannig til- komin að Anna.aero leitaði til Isavia og fór þess á leit að listaðar yrðu upp nokkrar flugleiðir sem Isavia renndi hýru auga til. Þegar sá listi lá fyrir var hann borinn undir SkyScanner sem nýtti gögn sín til að kanna áhuga ferðalanga. Niður- staðan var að mesti áhuginn var á leggnum á milli milljónaborgar- innar Hong Kong og Íslands, og var leitað 230.000 sinnum að þessari leið á nýliðnu ári. Þess má geta að ferðabókunarsíðan þjónustar rúm- lega 60 milljónir manna á hverjum mánuði. Guðni Sigurðsson, upplýsinga- fulltrúi Isavia, segir það ekkert launungarmál að Isavia hafi sett sér það markmið að reyna að fá flugfélög til að fljúga beint frá Asíu til Íslands. Finnair hefur bráðlega beint flug á milli Helsinki og Kefla- víkur sem mun bæta samgöngurnar til Asíu mikið, en beint flug sé vissu- lega lokatakmarkið. Niðurstaða könnunarinnar staðfesti greinilegan áhuga á Íslandi hjá ferðamönnum í Asíu, en eins megi líta til þeirra tækifæra sem flugleið sem þessi myndi gefa íslenskum sjávarútvegs- fyrirtækjum við að opna nýja fersk- fiskmarkaði – og þá jafnvel í Hong Kong. Leiðin yrði alltaf farin á lang- drægum breiðþotum, sem geta auð- veldlega flutt mikið magn af fiski í beinu farþegaflugi. Í grein Anna.aero er talið líklegast að flugfélagið Cathay Pacific myndi bæta flugleiðinni við leiðakerfi sitt, en félagið flýgur nú þegar til 13 áfangastaða í Evrópu. Eins er minnst á Icelandair. Í því sambandi er þó vert að minnast á yfirlýstan áhuga Skúla Mogensen á því að WOW air tengi Ísland við Asíu – nokkuð sem hann segir að sé „aðeins spurning um tíma“, og verði að veruleika á allra næstu árum. Hlynur Sigurðsson, framkvæmda- stjóri Flugstöðvar Leifs Eiríkssonar, víkur að því í viðtali við Anna.aero að nú þegar fjölgi ferðamönnum frá Asíu hratt hérlendis. Hlynur bendir á að þegar flug- leiðir frá Asíu eru bornar saman þá tekur aðeins klukkustund lengur að fljúga til Keflavíkur en til Kaup- mannahafnar. svavar@frettabladid.is Hundruð þúsunda leita að beinu flugi Á áttundu milljón manna búa í Hong Kong sem er í kallfæri við Kína – eins og myndin sýnir. FréttabLaðIð/EPa Stjórnvöld þurfa að koma að málum Kynslóðir eru vaxnar úr grasi sem muna ekki eftir HIV-faraldrinum og það kemur fram í kynhegðun þeirra. Óvenju margir greindust með HIV á síðasta ári. Útbreiðsla kynsjúkdóma á Íslandi undanfarin ár krefst aðkomu stjórnvalda að mati sóttvarnarlæknis. Sárasótt getur farið mjög illa með menn, og ekki síst þungaðar konur. Það eru mjög miklar líkur á því að barnið verði vanskapað eða lifi ekki af. Þórólfur Guðnason sóttvarnalæknir öðrum sjúkdómum sem blossa þá upp,“ segir Þórólfur. Menn hafa gleymt öðru, segir Þórólfur, en það er sú staðreynd að kynsjúkdómarnir sem um ræðir eru dauðans alvara. „Að fá HIV þýðir ævilanga meðferð vegna sjúkdóms- ins. Sárasótt getur farið mjög illa með menn, og ekki síst þungaðar konur. Það eru mjög miklar líkur á því að barnið verði vanskapað eða lifi ekki af,“ segir Þórólfur. svavar@ frettabladid.is Áhugi ferðamanna í Asíu á ferðum til Íslands kemur glöggt í ljós í gagnabanka ferðabók- unarrisans SkyScanner.  Kynslóðir eru vaxnar úr grasi sem muna ekki eftir HIV-faraldrinum og það kemur fram í kynhegðun þeirra. NordIcPHotoS/GEttyImaGES 1 . f e b r ú a r 2 0 1 7 m i ð V i K u D a g u r8 f r é t t i r ∙ f r é t t a b l a ð i ð
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.