Fréttablaðið - 01.02.2017, Blaðsíða 42

Fréttablaðið - 01.02.2017, Blaðsíða 42
Tilkynningar um merkis atburði, stórafmæli og útfarir má senda á netfangið timamot@365.is. Auglýsingar á að senda á auglysingar@frettabladid.is eða hringja í síma 512 5000. Þema þessarar fyrirlestraraðar hjá okkur í Listfræðifélaginu eru átök í íslensku listalífi og myndlist. Ég er að taka fyrir nokkuð merkilegt tímabil en það er fimmti áratugurinn – eða frá 1942 til 1952, þegar heilmikið gerð­ ist í íslenskri myndlist. Það komu þarna inn sterkir nýir straumar, bæði með yngra fólki, listamönnum sem fóru í nám eftir seinni heimsstyrjöldina og komu svo heim og svo líka sumir þeirra eldri sem fóru að fást meira við nýstárlega list, jafnvel abstrakt. Þar urðu harðvítugar deilur bæði á milli listamanna og svo á milli listamanna og sumra pólitíkusa til dæmis, en þeir töldu þetta tómt rugl og að það ætti bara að mála landslag og fallegar myndir. Þannig að þetta er dálítið lykiltímabil í íslenskri myndlist því að það má segja að á þessum tíma taki íslenskir listamenn sér algjört vald yfir eigin listsköpun; þeir fara að þróa nýja myndlist og koma inn með nýjar stefn­ ur í andstöðu við suma innanlands – þeir taka að mörgu leyti mikla áhættu með því. Undir lok þessa tímabils, 1952, þá kemur hópur ungra listamanna heim úr námi, aðallega í París, og fara að halda sýn­ ingar á hreinræktuðum abstraktmyndum og smátt og smátt næstu árin má segja að abstraktið hafi tekið yfir á Íslandi á meðan að eldri myndlistin – landslagið, manna­ myndir og svona hafi smátt og smátt horf­ ið eða hætt að vera leiðandi stíll í íslenskri myndlist. Nokkrar lykilpersónur sem koma fram í fyrirlestrinum eru Þorvaldur Skúlason, Nína Tryggvadóttir, Svavar Guðnason, Hörður Ágústsson og fleiri. Þetta eru allt nöfn sem eru með stærstu nöfnum í íslenskri listasögu og sem tóku þátt í þessari ákveðnu byltingu sem varð á þessum tíma,“ segir Jón Proppé um það efni sem hann mun taka fyrir í erindi sínu. „Þessi fyrirlestur og þessar fyrirlestra­ raðir okkar eru leið til að bæði fjalla um mikilvæg atriði í íslenskri listasögu og listalífi almennt og líka að vissu leyti til að kynna fyrir fólki hverslags rann­ sóknum og störfum við listfræðingar erum að sinna, svo að fólk fái einhverja hugmynd um það og að það geti verið spennandi. Þessir fyrirlestrar hafa verið vel sóttir og það er mjög gaman að halda þá,“ segir Jón að lokum. Fyrirlesturinn verður haldinn í hádeginu í dag í Safna­ húsinu Hverfisgötu og er hann öllum opinn. stefanthor@frettabladid.is Átök í íslenskri listasögu Fyrirlestraröðin Átakalínur í íslenskri myndlist er haldin af Listfræðifélagi Íslands. Í dag mun listfræðingurinn Jón Proppé flytja erindi sitt Blátt strik: átökin um abstraktið. Jón Proppé listfræðingur. Elskuleg móðir okkar, Hanna (Jóhanna Katrín) Pálsdóttir myndlistarmaður og fyrrverandi bankastarfsmaður, andaðist á Landspítalanum þriðjudaginn 24. janúar. Jarðsungið verður frá Lindakirkju föstudaginn 3. febrúar klukkan 15.00. Blóm og kransar vinsamlegast afþakkaðir. Þeim sem vilja minnast hennar er bent á Hjálparstarf kirkjunnar eða líknarfélög. Páll Jónsson, Anna Pála Vignisdóttir og fjölskylda. Innilegar þakkir til allra sem sýndu okkur samúð og hlýhug vegna andláts og útfarar ástkærrar móður okkar, tengdamóður, sambýliskonu, ömmu og langömmu, Ásbjargar Ingólfsdóttur Sérstakar þakkir fær starfsfólk Skjóls fyrir frábæra umönnun og hjálp síðustu ár. Sigurþór Stefánsson, Ingólfur Stefánsson, Stefán Stefánsson, Hafdís Jónsdóttir, Garðar Árnason, Matthildur Leifsdóttir, Óskar Markússon, barnabörn og barnabarnabörn. Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma, langamma og langalangamma, Petra Guðrún Stefánsdóttir lést á hjúkrunarheimilinu Víðihlíð, Grindavík, aðfaranótt 28. janúar. Útför hennar verður gerð frá Grindavíkurkirkju föstudaginn 3. febrúar klukkan 14.00. Þeim sem vilja minnast hennar er bent á Minningarsjóð Hjalta Pálmasonar hjá Björgunarsveitinni Þorbirni, sími 893-8626. Stefanía Björg Einarsdóttir Ólafur Þór Þorgeirsson Magnús Andri Hjaltason Hjörtfríður Jónsdóttir og fjölskyldur. Móðir mín, dóttir okkar, systir og mágkona, Ásdís Mjöll Guðnadóttir andaðist í Kaupmannahöfn laugardaginn 28. janúar. Bálför verður gerð í Kaupmannahöfn. Minningarathöfn á Íslandi verður auglýst síðar. Kjartan Helgi Sigurðsson Lilja Bergsteinsdóttir Guðni Kolbeinsson Hilmir Snær Guðnason Bryndís Jónsdóttir Bergdís Björt Guðnadóttir Kristján Reinholdsson Kristín Berta Guðnadóttir Hörður Sveinsson og fjölskyldur. Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, Halldóra Ármannsdóttir Löngumýri 38, Selfossi, lést á hjúkrunarheimilinu Ási 25. janúar. Útförin fer fram frá Selfosskirkju föstudaginn 3. febrúar kl. 13.00. Guðmar Þór Hauksson Ármann Hauksson Elín Hauksdóttir Guðlaugur A. Stefánsson Magni Freyr Hauksson barnabörn og barnabarnabörn. Móðir mín, systir okkar og frænka, Anna Samúelsdóttir frá Siglufirði, síðast til heimilis á Hrafnistu, Boðaþingi, lést á Landspítalanum 7. janúar síðastliðinn. Útförin hefur farið fram í kyrrþey. Við sendum starfsfólki Boðaþings kærar þakkir fyrir hlýja og góða umönnun. Kristjana Magnúsdóttir Páll B. Samúelsson Elín Jóhannesdóttir Sigríður Samúelsdóttir Gunnar Herbertsson systkinabörn og fjölskyldur þeirra. Ástkær eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir og afi, Björn Þór Jónsson Heiðarvegi 10, Reyðarfirði, lést fimmtudaginn 26. janúar á gjörgæsludeild Landspítalans við Hringbraut. Útför hans fer fram frá Reyðarfjarðarkirkju laugardaginn 4. febrúar kl. 14.00. Bryndís Steinþórs Jón Þór Björnsson Júlíana Vilhjálmsdóttir Anna Þórunn Björnsdóttir Steinþór Björnsson Andrea Björk Sigurvinsdóttir og barnabörn. Elsku sonur okkar, bróðir, mágur, frændi og barnabarn, Ragnar Egilsson Holtsflöt 9, Akranesi, lést á heimili sínu þann 27. janúar. Jarðarförin fer fram frá Akraneskirkju föstudaginn 3. febrúar kl. 13. Þeim sem vilja minnast hans er bent á Von, kt: 490807-1010, banki: 0513-26-3147, sem er styrktarsjóður gjörgæslunnar á Landspítalanum í Fossvogi. Anna Arnardóttir Egill Guðnason Örn Egilsson Sif Agnarsdóttir Margrét Egilsdóttir Guðjón Birgir Tómasson Svana Jónsdóttir Örn Óskar Helgason og frændsystkini hins látna. Hörður Kristbjörn Jónsson Vogatungu 85a, Kópavogi, lést á Vífilsstöðum 22. janúar.Útförin hefur farið fram í kyrrþey að ósk hins látna. Hjartans þakkir til allra sem sýndu okkur samúð og hlýhug við andlát hans. Anna Margrét Þorsteinsdóttir Jón Ragnar Harðarson Aðalheiður Þorsteinsdóttir Svanlaug Elín Harðardóttir Theodór Skúli Þórðarson Jóna Björk Guðmundsdóttir Jóhannes Sigurbjörnsson barnabörn og barnabarnabörn. Elskuleg systir okkar, mágkona og fósturmóðir, Guðlaug Björnsdóttir verður jarðsungin frá Hafnar fjarðarkirkju þann 3. febrúar kl. 13.00. Sigurlaug Björnsdóttir, Björn Pálsson Sigurður Björnsson, Sieglinde Björnsson Nanna, Ólöf, Sveinbjörn, Helga og Guðrún Björnsbörn Elskuleg móðir okkar, stjúpmóðir, tengdamóðir, systir, amma og langamma, Helga Hobbs verður jarðsungin frá Seltjarnarneskirkju fimmtudaginn 2. febrúar kl. 13. Gunnar Kvaran Guðný Guðmundsdóttir Helga Hafsteinsdóttir Alexander Jóhannesson Guðmundur Hafsteinsson Anna Benassi Guðrún Hafsteinsdóttir Jón Árni Þórisson Dröfn H. Farestveit Arthur Farestveit Guðrún Skúladóttir Gunndór Sigurðsson barnabörn og barnabarnabörn. 1 . f e b r ú a r 2 0 1 7 M I Ð V I K U D a G U r18 t í M a M ó t ∙ f r É t t a b L a Ð I Ð tímamót
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.