Fréttablaðið - 05.01.2019, Page 46
UMHVERFISVERÐLAUN ATVINNULÍFSINS
FRAMTAK ÁRSINS – 2016
ÍSLENSKA ÁNÆGJUVOGIN
2017
Við hvetjum jafnt konur sem karla til að sækja um.
Umsóknarfrestur er til og með 17. janúar 2019.
Sótt er um á vef ON, on.is/framkvaemdastjori, þar
sem finna má nánari upplýsingar um starfið.
Starf framkvæmdastjóra ON
Það eru spennandi tímar framundan hjá ON og við leitum að leiðtoga til að móta framtíðina með okkur.
Við horfum til manneskju sem býr yfir frumkvæði, umhyggju og umbótavilja til að marka stefnu fyrirtækisins
og leiða hóp framúrskarandi fagfólks með brennandi áhuga á framþróun, góðri þjónustu, umhverfisvænum
lausnum og ábyrgri nýtingu náttúruauðlinda.
Orku- og
umhverfismál
eru framtíðin
JAFNLAUNAVOTTUN
2018–2021www.on.is
Hvers vegna ON?
Við framleiðum og seljum rafmagn til allra landsmanna, auk þess að framleiða heitt vatn fyrir
höfuðborgarsvæðið. Við erum leiðandi í umhverfisvænum orkuskiptum á Íslandi og nýsköpun í
nýtingu auðlindastrauma. Við höfum sett okkur metnaðarfull loftslagsmarkmið og viljum nýta
auðlindir af ábyrgð og nærgætni til að bæta lífsgæði í nútíð og framtíð, okkur öllum til heilla.
Hjá okkur ríkir jákvæður starfsandi sem einkennist af sterkri liðsheild, uppbyggilegum
skoðanaskiptum og virðingu í samskiptum. Við bjóðum upp á fyrsta flokks aðbúnað og
fjölskylduvænan vinnutíma. Það eru krefjandi og skemmtileg verkefni í leiðslunum hjá ON.