Fréttablaðið - 05.01.2019, Page 75

Fréttablaðið - 05.01.2019, Page 75
„Með auknu af- þreyingarfram- boði á Vestur- landi eins og Into the Glacier í Langjökli, heitu pottunum í Krauma og hinum ýmsu hvataferðum sem boðið er upp á á Snæ- fellsnesi hefur eftirspurn eftir því að stoppa og skoða sig um á Vesturlandi aukist,“ segir Jóel Hjálmars- son hótelstjóri. B59 hótel er nýjasta hótelið af fimm sem heyrir undir Capital Hotels keðjuna hér á landi. Það svarar eftirspurn eftir hóteli sem býður upp á fundarað- stöðu, gistingu, mat og afþreyingu úti á landi en er samt í námunda við borgina. „Hingað til hefur slík hótel helst verið að finna á Suðurlandi en með auknu afþreyingarfram- boði á Vesturlandi eins og Into the Glacier í Langjökli, heitu pott- unum í Krauma og hinum ýmsu hvataferðum sem boðið er upp á á Snæfellsnesi hefur eftirspurn eftir því að stoppa og skoða sig um á Vesturlandi aukist,“ segir hótel- stjórinn Jóel Hjálmarsson. Þá hefur hótelið verið vinsælt til funda- og ráðstefnuhalds enda fyrsta flokks aðstaða fyrir hendi. Á hótelinu eru 76 tveggja manna herbergi, rétt um hundrað manna ráðstefnusalur og hundrað manna veitingasalur þar sem boðið er upp á morgunmat, hádegismat, kvöld- mat og kaffi. „Í kjallaranum er svo heilsulind með heitum potti, gufu, sánu og slökunarsvæði sem er upplagt að nýta eftir ráðstefnu- og funda- höld,“ segir Jóel. „Við getum líka tekið við stærri viðburðum en þá erum við í samstarfi við Borgar- byggð um menntaskólann og menningarhúsið Hjálmaklett sem er staðsettur hinum megin við götuna. Þar er stór salur sem getur tekið allt að 220-250 manns. Ef umfangið er slíkt erum við svo líka í samstarfi við önnur hótel á svæðinu,“ útskýrir Jóel. Hann segir hin ýmsu fyrirtæki og stofnanir nú þegar hafa nýtt sér aðstöðuna til fundahalds og fléttað saman við það afþreyingu og slökun. „Það hefur gefist afar vel og þykir gott að geta brotið vinnuna upp með því að gera eitthvað skemmtilegt.“ Fyrsta flokks funda- aðstaða í Borgarnesi B59 hótel er nýtt fjögurra stjörnu hótel í Borgarnesi. Þar er fyrirtaks aðstaða til funda- og ráðstefnuhalds og auk þess spennandi afþreyingarmöguleikar allt í kring. n Æfingin skapar meistarann Æfðu þig með því að tala upphátt og helst fyrir framan lítinn áheyr- endahóp. Æfingar losa ræðumenn við óþarfa hikorð og þagnir. n Að vinna með salinn Reyndu að eiga svolítið samtal við áheyrendur áður en ræðan sjálf hefst. Með því hefurðu tök á að ná augnsambandi við vinaleg andlit í hópnum, losa um mögulegan kvíða og létt andrúmsloftið í salnum. Ef þú horfir svo aftur á vinalega mann- eskju í fyrsta fjórðungi salarins, á meðan á ræðu þinni stendur, munu þeir sem sitja manneskjunni á vinstri hönd halda að þú beinir orðum þínum að þeim. Það sama á við um næsta fjórðung og með því skynjarðu ræðu þína sem samtal við fólkið í salnum. n Andaðu rólega Ef þú finnur fyrir sviðsskrekk er gott ráð að draga andann djúpt og sjá sjálfan sig fyrir sér halda vel heppnaða ræðu. Það er eðlilegt að vera taugaóstyrkur fyrstu mínút- urnar en svo er mikilvægt að breyta mögulegu óöryggi í jákvæða orku. n Ekki lesa ræðuna af blaði Talaðu frá hjartanu eða notaðu minniskort frekar en að lesa Tíu heilræði fyrir ræðumenn Allir geta lært að flytja góða ræðu. Bestu ræðumennirnir flytja skýr skilaboð í einföldum ræðum sem fela í sér markvissar sögur sem sanna gildi hennar í upphafsorðum, miðju og endi ræðunnar. Gott er að mynda augn- samband við vinaleg andlit í hópnum áður en formlegt ræðuhald hefst. NORDIC PHOTOS/ GETTY ræðuna beint af blaði. Ef þú skyndi- lega manst ekki hvað þú ætlaðir að segja geturðu dregið andann djúpt, kíkt laumulega á minniskortið og í framhaldinu vitað upp á hár hvað þú ætlaðir að segja næst. n Notaðu söguna strax Byrjaðu fyrst á frásögn sem hrífur í stað þess að þakka kynninum fyrir eða lýsa því yfir hversu ánægður þú ert að vera á staðnum. Ræðan ætti að snúast um aðeins einn hlut og því ætti að vera auðvelt að koma sér strax að efninu án þess að gefa allt frá sér í upphafi leiks. Farðu beint í markvissa sögu sem tengist efninu og leyfðu áheyrendum að vita svolítið um hvað ræðan verður. n Bein í baki Reyndu að halda fallegri líkams- stöðu og bera höfuðið hátt þegar þú gengur á svið og stendur í pontu. Ímyndaðu þér að höfðinu sé haldið uppi líkt og á strengjabrúðu. n Hafðu ræðuna einfalda Gleymdu flóknum PowerPoint- kynningum og endalausum gögnum. Fókuseraðu frekar á eitt málefni og láttu það verða eins og samtal. Ræður eru í raun gagns- lítið form samskipta og fólk man sjaldnast allt sem það heyrir. Því er best að hafa skilaboðin einföld og skýr. Bestu ræðurnar innihalda ein markviss skilaboð og fáeinar góðar sögur til að koma skilaboðunum enn betur til skila. n Hafðu ræðuna stutta Góð ræða ætti ekki að vera lengri en tíu mínútur í flutningi, en fimm til sjö mínútur er til fyrirmyndar. Ef miðað er við sjö mínútur ætti undirbúin og æfð ræða að vera heldur styttri til að gera ráð fyrir málpásum og viðbrögðum áheyr- enda. n Notaðu afslappaða líkamstjáningu Ef þú krossleggur handleggi eða rígheldur í hendur þínar á maga skynja áheyrendur taugaóstyrk þinn og verða minna móttækilegir fyrir ræðunni. Reyndu að láta sjást að þér líði vel og þú hafir gaman af því að standa frammi fyrir áheyr- endum. Um leið verða þeir opnari gagnvart þér og því sem þú vilt koma á framfæri. Ef þú ert spenntur fyrir málefninu verða áheyrendur það líka. n Slakaðu á Þú getur aldrei orðið annar en sá sem þú ert. Hins vegar geturðu orðið besta útgáfan af sjálfum þér. Þú þarft ekki að tala í belg og biðu eða með ákveðnum stíl. Sýndu bara ástríðu, sannfæringu og hollustu við málstað þinn og þá skiptir engu þótt þú komir ræðunni frá þér í rólegheitum, mjúklega eða hvernig sem stíllinn þinn nú er. Heimild: Forbes Er ráðstefna á döfinni? R ÁÐSTEFNUR Við hjá Iceland Travel Ráðstefnum höfum áratuga reynslu af skipulagningu ráðstefna og funda. Við bjóðum uppá alhliða þjónustu í tengslum við ráðstefnur og fundi. radstefnur@icelandtravel.is 6 KYNNINGARBLAÐ 5 . JA N ÚA R 2 0 1 9 L AU G A R DAG U R RÁÐSTEFNUR OG VIÐBURÐIR
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.