Fréttablaðið - 05.01.2019, Side 77
Viðburðir eru svo margbreyti-legir og viðskiptavinirnir ólíkir, þannig að það er gott
að geta gripið til verkfæra sem
gera upplifanirnar áhrifamiklar og
ógleymanlegar óháð því um hvaða
viðburð er að ræða,“ segir Anna
Katrín Guðmundsdóttir hjá Tríó
Events Reykjavík.
„Það er einnig mikilvægt að hafa
sérhæfingu á viðburðastjórnunar-
sviðinu og hjá okkur er það fram-
leiðsla á kvikmyndaefni, sýningar-
hald og verkefnastýring stærri
verkefna og viðburða.“
Heppin með viðskiptavini
„Viðburðabransinn er gríðarlega
skemmtilegt umhverfi til að vera
í, enda gengur hann út á að gera
frumlega og skemmtilega hluti,“
bætir Ýr Gunnlaugsdóttir við, „en
maður þarf að vera á tánum og
fylgjast vel með svo hægt sé að
bjóða upp á nýjar hugmyndir og
ferska vinkla fyrir viðskiptavini.
Viðskiptavinurinn þarf líka að vera
til í að dansa, en við höfum verið
einstaklega heppin með þá. Ekkert
er eins skemmtilegt og að sjá hug-
myndirnar lifna við og verða að
veruleika.“
Reynsluboltar við stýrið
Tríó Events var stofnað árið 2016.
„Við erum tiltölulega ungt
fyrirtæki en starfsmenn okkar eru
reynsluboltar á viðburðasviðinu
því starfsferill okkar hefur verið
í upplifunarhönnun, miðlun og
viðburðastjórnun á ólíkum vett-
vangi,“ upplýsir Anna Katrín.
Viðburðir Tríó Events eru orðnir
ansi fjölbreyttir á þeim rúmu
tveimur árum sem fyrirtækið
hefur starfað; allt frá árshátíðum,
fundum, ráðstefnum, partíum,
starfsdögum og fleiru.
„Nýjasta verkefnið okkar var
verkefnastjórnun við framleiðslu á
nýrri náttúruminjasýningu í Perl-
unni á vegum Náttúruminjasafns
Íslands sem lauk með glæsilegri
opnun 1. desember síðastliðinn.“
Fjölbreytt bakland
„Við höfum stórt bakland sem eru
frábærir samstarfsaðilar á sviði
skemmtana, veitinga, tækni og
ýmiss konar sérfræðiþjónustu í
mannauðsmálum. Baklandið er
vissulega umsvifamikið en styrkur
okkar felst líka í því að yfirbygging
Tríó Events er lítil. Því erum við
ávallt snögg til verka og hagkvæm-
ur samstarfsaðili,“ segir Ýr.
Tríó Events er í Bláu húsunum á
Suðurlandsbraut 48. Sími 771 1919.
Sjá nánar á trioevents.is eða á face
book.com/TrioEventsReykjavik.
Þær Anna Katrín Guðmundsdóttir og Ýr Gunnlaugsdóttir hjá Tríó Events eru
sannkallaðir reynsluboltar þegar kemur að skipulagningu á viðburðasviðinu.
MYND/SIGTRYGGUR ARI
Árshátíðum og ráðstefnuhaldi eru fundnir fallegir staðir.
Nýjasta verkefni
Tríó Events
var verkefna-
stjórnun við
framleiðslu á
nýrri náttúru-
minjasýningu
í Perlunni á
vegum Nátt-
úruminjasafns
Íslands sem
lauk með glæsi-
legri opnun
1. desember
síðastliðinn.
Heillandi viðburðir eru aðalsmerki Tríó Events. Þrautir og skemmtilegir leikir eru stundum viðfangsefni í hvataferðum.
Ekkert eins skemmtilegt og
að sjá hugmyndirnar lifna við
Hjá Tríó Events starfar einvala lið með áratuga reynslu í skipulagningu og hönnun viðburða. Fyrir
tækið er ungt en afkastamikið, hagkvæmur samstarfsaðili með stórt bakland og snöggt til verka.
8 KYNNINGARBLAÐ 5 . JA N ÚA R 2 0 1 9 L AU G A R DAG U RRÁÐSTEFNUR OG VIÐBURÐIR