Fréttablaðið - 05.01.2019, Page 89
Listaverkið Arnaldur Jóhannsson er ellefu og hálfs árs og hann hlakkar til að
verða fullorðinn. Hvað langar hann
þá að verða?
Mig langar að verða annaðhvort
leikari eða atvinnugolfari.
Hefurðu prófað að leika? Já, já. Það
var í Hörpu. Ég hef verið í hlutverk-
um í óperum, meðal annars í einni
af frægustu óperum í heimi, Toscu.
Var í öllum sýningunum á henni og
svo tók ég líka þátt í Hans og Grétu
núna í haust. Þar lék ég piparköku-
dreng.
Ertu svona góður söngvari? Já, ég
get verið það.
Ertu að læra söng? Nei, en ég er í
Drengjakór Reykjavíkur. Ég söng
með kórnum í Toscu auk þess að
fara með hlutverk altarisdrengs.
Ertu góður í golfi líka? Ég er ágæt-
ur. Við erum að fara til Spánar um
páskana að spila.
Hvernig líst þér á íslenskt þjóð-
félag? Bara vel, þó ég hafi nú ekki
spáð mikið í það, enda skildi ég
ekkert í áramótaskaupinu.
Hvað gerir þú helst í frístundum?
Ég er oft að leika við vini mína og
er ágætlega mikið úti í fótbolta, en
þó lítið núna í jólafríinu. Svo hef
ég mjög sjaldan rennt mér á bretti
í vetur, það er svo lítill snjór. En ég
æfi körfu með Stjörnunni og hef
spilað á franskt horn síðan ég var
sex ára.
Áttu systkini. Ég á tvær systur sem
eru 25 og 23 ára og eru báðar að fara
að eiga afmæli.
Svo þú ert langyngstur. Já, ég er
örverpið.
Fékkstu einhverja jólagjöf sem þig
langaði í? Já, ég fékk nýjan golfpoka
og nýja golfkylfu.
Lestu bækur eða ertu meira í tölv-
unni? Ég les ágætlega mikið og er
stundum alveg ofan í tölvunni en
hætti oftast um leið og ég er beðinn
að hætta.
Varstu úti í sprengingunum um
áramótin? Já, við vorum sextán
saman og sprengdum mikið framan
við húsið. Það var mjög gaman.
Leikari eða
atvinnugolfari
Arnaldur Jóhannsson hefur sungið og leikið í
tveimur óperum í Hörpu. Svo spilar hann á horn.
Arnaldur hefði gjarnan viljað komast oftar á bretti í vetur. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR
ÉG LES ÁGÆTLEGA
MIKIÐ OG ER STUND-
UM ALVEG OFAN Í TÖLVUNNI EN
HÆTTI OFTAST UM LEIÐ OG ÉG
ER BEÐINN AÐ HÆTTA.
Nú fer að líða að því að jólatrén hverfi úr stofunum og jólasveinarnir til
fjalla. Kannski ætlar þessi sveinki að kippa tveimur trjám með sér.
„Og hvað eigum við
eiginlega að gera við
þessa þríhyrninga,“
spurði Kata snúðug.
„Þetta eru endalausir
þríhyrningar.“ „Ekki
alveg endalausir,“ sagði
Lísaloppa. „Við eigum að
telja alla þá þríhyrninga
sem við getum séð út úr
myndinni og þá líka þá
þríhyrninga sem verða til
úr öðrum.“ „Þú meinar
ekki bara þessa einföldu
heldur líka þá sem verða
til eins og þessi stóri
utan um þá alla?“ spurði
Kata. „Já einmitt,“ sagði
Lísaloppa. Konráð horfði
á þessa þríhyrningamynd
og byrjaði að telja í
huganum, hann fann að
hann ruglaðist oft þegar
hann var farinn að sjá
þríhyrninga alls staðar
í myndinni.
Konráð
á ferð og flugi
og félagar
334
Getur þú talið hvað eru margir þríhyrningar í þessari mynd?
?
? ?
?
?
Lausn á gátunni
SVAR: 13?
5 . J A N Ú A R 2 0 1 9 L A U G A R D A G U R40 H E L G I N ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
KRAKKAR