Fréttablaðið - 05.01.2019, Síða 101

Fréttablaðið - 05.01.2019, Síða 101
Lífið í vikunni 30.12.18- 05.01.19 SÍMAR AUGLÝSINGADEILDIR – AUGLÝSINGASTJÓRI: Jóhanna Helga Viðardóttir johannahelga@frettabladid.is ALMENNAR AUGLÝSINGAR: SÍMI 550 5050: Gústaf Bjarnason gustaf@frettabladid.is, Hjördís Zoëga hjordis@frettabladid.is, Sigfús Örn Einarsson sigfus@frettabladid.is, Valdimar Birgisson valdimar@frettabladid.is Örn Geirsson orn.geirsson@frettabladid.is FÓLK/SÉRBLÖÐ SÍMI 550 5077: Atli Bergmann atli@frettabladid.is, Arnar Magnússon arnarm@frettabladid.is, Jón Ívar Vilhelmsson jonivar@frettabladid.is, Ruth Bergsdóttir ruth@frettabladid.is. FÓLK OG SÉRBLÖÐ EFNI: Elín Albertsdóttir elin@frettabladid.is og Ragnheiður Tryggvadóttir heida@frettabladid.is RAÐAUGLÝSINGAR /FASTEIGNIR SÍMI 550 5056: Hrannar Helgason hrannar@frettabladid.is, Viðar Ingi Pétursson vip@frettabladid.is ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR SÍMI 550-5055: Arna Rut Kristinsdóttir arnarut@frettabladid.is, Guðrún Inga Grétarsdóttir gudruninga@frettabladid.is FAXAFENI 5 Reykjavík 588 8477 DALSBRAUT 1 Akureyri 588 1100 SKEIÐI 1 Ísafirði 456 4566 STILLANLEG RÚM • HEILSURÚM OG -DÝNUR • GAFLAR • SÆNGUR • KODDAR • SVEFNSÓFAR • STÓLAR • SÆNGURFÖT, O.FL. 60%A F S L ÁT T U R A L LT A Ð ÚTSALA VEFVERSLUN www.betrabak.is OPIN ALLAN SÓLARHRINGINN VÖLVUSPÁIN Völvan spáði ýmsu óvæntu eins og því að það myndi fjara undan Facebook, átökum á vinnumarkaði, áframhaldi #metoo-byltingarinnar og ákveðnum væringum í borgar- málunum. Ótrúlegt innsæi. NÝJASTA VIÐBÓTIN Í LISTAFLÓRU LANDSINS Postprent er vef- síða þar sem ís- lenskir listamenn geta selt prent af verkunum sínum á auðveldan hátt. Bak við verkefnið eru þeir Viktor Weisshappel Vilhjálmsson og Þórður Hans Baldursson en þeir eru báðir lista- menn auk þess sem Þórður er forritari. Svokallað „match made in heaven“. LOTTA FER Á NAGLADEKK Leikhópurinn Lotta er á faraldsfæti um þessar mundir og sýnir leikrit sitt Rauðhettu um allt land langt fram í mars. Nagladekkin verða því undir Lottu-bílnum næstu mánuð- ina sýnist okkur hér á Lífinu. ÆVINTÝRALAND HJALTALÍN SNÝR AFTUR Ofurgrúppan Hjaltalín snýr aftur með miklum látum. Nýju lagi með ægifögru nýju myndbandi var sleppt í hendurnar á þjóðinni auk þess sem miðasala hófst á stærðar- innar tónleika í Eldborg. Mögulega er svo plata á leiðinni … Þarna var leiklistardraum-urinn að byrja,“ segir Hilmir Snær Guðnason sem lék aðalhlutverkið í verkinu Tóm ást fyrir 30 árum sem Herranótt, leikfélag MR, setti upp. Verkið gerist í fjarlægri framtíð, í Reykjavík árið 2019. Þá lendir ungur geimprins hér í borg og leitar að ástinni. Til að gera langa sögu stutta finnur hann sína heittelskuðu á jap- önskum veitingastað, svokölluðum sushi-stað. Leikurinn berst síðan frá sólkerfi til sólkerfis, vetrarbraut til vetrarbrautar en fer þó aldrei lengra en í 23. víddina. Þetta var fyrsta leikritið sem Sjón skrifaði. Síðan hefur töluvert vatn runnið til sjávar og mörg verðlaun fallið í hans skaut. Leikstjóri var Kol- brún Halldórsdóttir og Hilmir Snær í aðalhlutverki. Kári Schram kvik- myndagerðarmaður sá um tæknilega hlutann og búningarnir og gervin sem Dominique Poulain sá um vöktu sérstaka athygli. Tónlistina gerði Þór Eldon. „Ég man að þetta var skemmtilegt verk og gekk töluvert lengi. Ég man að það komu krakkar úr öðrum skólum til að kíkja á okkur. Þetta sló alveg í gegn,“ segir Hilmir. „Prinsinn gekk um með hjartsláttarmæli til að finna ástina. Það væri gaman að sjá þetta aftur,“ segir Hilmir en hann gegndi formannsembættinu hjá leik- félaginu það árið. benediktboas@frettabladid.is Nútíminn með augum Sjóns árið 1989 Fyrir 30 árum frumsýndi leikfélag MR verkið Tóm ást eftir Sjón. Verkið gerðist í fjarlægri framtíð, nánar tiltekið árið 2019, og fjallar um ungan geimprins sem lendir hér í borg og leitar að ástinni. Hilmir Snær leikari var formaður leikfélags MR þegar verkið Tóm ást var sett upp fyrir 30 árum. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR Kolbrún Halldórs- dóttir leikstýrði verkinu. Úr dómi um sýninguna Það er óhætt að segja að Sjón hafi með þessu verki sínu hitt menntaskólanemana í hjarta- stað. Gáskinn og húmorinn féllu þarna í frjóan jarðveg og þótt áhorfendur hafi skemmt sér vel, þá held ég að leikararnir hafi skemmt sér enn betur. Sjálfsagt má ýmislegt finna að útfærslu leiksins, og kannski helst það að hrollurinn og lífsháskinn á óræðum brautum ástarinnar hefði mátt vera meiri. En margt var stórsnjallt og hugmyndaríkt í notkun ljósa, skyggni- lýsingar og kvikmynda, og furðuverurnar í verkinu voru einfaldlega frábærar. Úr dómi Ólafs Gíslasonar fyrir Þjóðviljann 1989 Um sýninguna Leikritið ber heitið „Tóm ást“ og hefst árið 2019 í Reykjavík. Ungur og glæsilegur geimprins leggur upp í leit að kvonfangi. Hann finnur konuna á japönsku veitinga- húsi í Reykjavík þar sem hún vinnur sem gengil- beina. Meginefni sögu- þráðarins má segja mjög sígilt. Prinsinn tapar sinni heittelskuðu fljótlega, leitar hennar ákaft og að lokum ná þau saman á ný eins og vera ber í sígildum  ástarsögum. Leitin ber hann vetrarbrauta á milli, sólkerfi úr sólkerfi, allt til 23. víddarinnar. Sjón gerði sitt fyrsta leikverk þar sem umfjöllunarefnið var Reykjavík árið 2019. 5 . J A N Ú A R 2 0 1 9 L A U G A R D A G U R52 L Í F I Ð ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.