Fréttablaðið - 10.10.2019, Side 28

Fréttablaðið - 10.10.2019, Side 28
Fólk er kynningarblað sem býður auglýsendum að kynna vörur og þjónustu í formi viðtala og umfjallana. Í blaðinu er einnig hefðbundið rit- stjórnarefni. Blaðið fylgir Fréttablaðinu daglega. Umsjónarmenn efnis: Elín Albertsdóttir, elin@frettabladid.is, s. 550 5761 | Hjördís Erna Þorgeirsdóttir | hjordiserna@frettabladid.is s. 550 5767 | Oddur Freyr Þorsteinsson, oddurfreyr@ frettabladid.is s. 550 57686 | Sandra Guðrún Guðmundsdóttir, sandragudrun@frettabladid.is, s. 550 5762 | Þórdís Lilja Gunnarsdóttir, thordisg@frettabladid.is, s. 550 5768 Útgefandi: Torg ehf Ábyrgðarmaður: Kristín Þorsteinsdóttir Sölumenn: Arnar Magnússon, arnarm@frettabladid.is, s. 550 5652, Atli Bergmann, atli@frettabladid.is, s. 550 5657, Jón Ívar Vilhelmsson, jonivar@ frettabladid.is, s. 550 5654, Jóhann Waage, johannwaage@frettabladid.is, s. 550 5656, Ruth Bergsdóttir, ruth@frettabladid.is, s. 550 5653, Ný versun Optical Studio á Hafnartorgi er glæsi­lega hönnuð, búin full­ komnum tækjakosti og vetrarlínu frá frægustu hönnuðum heims. Kjartan Kristjánsson, eigandi Opti­ cal Studio, er brautryðjandi á sviði gleraugnaverslunar á Íslandi. „Fyrir 22 árum var brotið blað í starfsemi Optical Studio þegar fyrirtækið hóf að bjóða upp á gler­ augu á fríhafnarsvæðinu í Leifs­ stöð,“ útskýrir Kjartan. „Þá lá fyrir að ekki yrði mikið um viðskipti með sjóngleraugu í Leifsstöð nema að hið hefðbundna afgreiðsluferli með sérútbúin gleraugu styttist niður í þann tíma sem algengt er að taki að fá sér einn kaffibolla á meðan beðið er eftir flugi.“ Niðurstaðan var sú að vinnslu­ ferlið mætti ekki taka lengri tíma en fimmtán mínútur. „Þetta stutta vinnsluferli á sérút­ búnum gleraugum varð því bylting fyrir viðskiptavininn. Það á við um öll gleraugu sem eru með einn styrkleika en margskipt gleraugu eru sérpöntuð og tekur um 10 til 14 daga,“ upplýsir Kjartan. Verðlaunuð sjóngler frá Leica Í nýrri verslun Optical Studio á Hafnartorgi nota sjóntækja­ fræðingar nýjan og fullkominn tækjabúnað. „Þar eru sjónmælingar sem gerðar eru í opnu rými að japanskri fyrirmynd og kallast „Table top re­ fraction system“,“ útskýrir Kjartan. Helstu nýjungar hjá Optical Studio eru sjóngler frá hinum virta ljósmyndaframleiðanda Leica sem unnu strax til verðlauna á nýaf­ staðinni gleraugnasýningu í París í september. „Leica gengur svo langt að mark­ aðssetja þessi nýju gler með þeirri yfirlýsingu að hin hefðbundnu margskiptu gler séu komin á enda­ stöð og að nú taki við margskipt gler sem hafi nýjar víddir. Það eru sannarlega merkilegar fréttir fyrir alla sem nota margskipt gler því eins og þeir vita er það lessvæðið í glerjunum sem hefur haft tak­ markað sjónsvið og mætti gjarnan vera stærra,“ segir Kjartan. Optical Studio er eitt af fyrstu gleraugnafyrirtækjum Evrópu til að hefja sölu á nýju glerjunum frá Leica og er umboðsaðili Leica Eyecare á Íslandi. „Leica fullyrðir að bjögunaráhrif nýju glerjanna séu 50 til 65 prósent minni en í þeim glerjum sem nú eru á markaði og því er gleðilegt að geta boðið upp á það allra besta hér heima,“ segir Kjartan. Ný og sjóðheit tískuvara Verslanir Optical Studio skarta nú ómótstæðilegum vetrarlínum frá Gucci, Tom Ford, Balenciaga, Saint Lauren, Celine og Cartier, en þessir heimsfrægu birgjar sendu vetrar­ línur sínar til Optical Studio um leið og nýja verslunin var opnuð á dögunum þó að varan verði ekki komin í verslanir í Evrópu fyrr en 15. október. „Við erum því með nýja og sjóð­ heita tískuvöru sem skrautfjöður Optical Studio við þessi skemmti­ legu tímamót. Umhverfið á Hafnar­ torgi er að taka á sig stórborgar­ mynd og við finnum að gestir og gangandi eru mjög jákvæðir á þennan nýja miðborgarkjarna,“ segir Kjartan sem býður alla sína viðskiptavini velkomna í nýja og glæsilega sérverslun Optical Studio á Hafnartorgi. Optical Studio er á Hafnartorgi við Tryggvagötu 25. Pantanir á sjón- mælingu eru í síma 511 5800 og yfir 1.100 bílastæði eru í bílastæða- húsinu undir Hafnartorgi. Nánari upplýsingar á optical.is Sjónmælingar á Hafnartorgi fara fram í opnu rými að japanskri fyrirmynd. Í nýrri verslun Optical Studio á Hafnartorgi nota sjóntækja- fræðingar nýjan og fullkominn tækjabúnað. Kjartan og starfsfólk hans bjóða viðskiptavini hjartanlega velkomna. Kjartan er hæstánægður með að vera kominn á Hafnartorg og segir viðskiptavini sína ánægða í stórborgarlegri umgjörð miðbæjarins. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON BRINK Vetrarlínan frá helstu tískurisum heims fæst nú þegar í Optical Studio. Ný verslun Optical Studio á Hafnartorgi er í hvívetna á heimsmælikvarða. Framhald á síðu 2 ➛ 2 KYNNINGARBLAÐ FÓLK 1 0 . O K TÓ B E R 2 0 1 9 F I M MT U DAG U R

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.