Fréttablaðið - 10.10.2019, Side 34

Fréttablaðið - 10.10.2019, Side 34
Á upp- boðinu verða boðin upp sérsmíðuð gullhálsmen og gullnæla, sú eina sem framleidd er í átakinu í ár. Þessar aðalslaufur eru úr 14 k gulli með bleikum demöntum. Guðbjörg Kristín Ingvarsdóttir sem framleidd er í átakinu í ár. Þessar aðalslaufur eru frábrugðnar hinum að því leyti að þær eru úr 14 karata gulli með bleikum mann- gerðum demöntum sem hafa sömu eiginleika og efnasamsetningu og náttúrulegir demantar,“ upplýsir Guðbjörg og allur ágóði rennur beint til Krabbameinsfélagsins. „Þetta eru einstakir skartgripir og sannkölluð listasmíð hjá Guð- björgu. Það verður spennandi að sjá hvar þessir kostagripir lenda eftir uppboðið og við hvetjum alla sem kunna að meta fallega og vandaða hönnun til að leggja þessum mikilvæga málstað lið,“ segir Halla Þorvaldsdóttir, fram- kvæmdastjóri Krabbameinsfé- lagsins. Starfið er oft erfitt en líka ofsalega gefandi. Fólk kemur til okkar með áhyggjur, sorg og áföll enda er viðfangsefnið þungbært,“ segir Halldóra Björg Sævarsdóttir, framkvæmdastjóri Krabbameinsfélags Akureyrar og nágrennis (KAON). Félagið er aðildarfélag Krabba- meinsfélags Íslands og var stofnað í nóvember árið 1952. Það opnaði leitarstöð á Akureyri í ágúst 1969 og fyrstu móttöku og skrifstofur félagsins á níunda áratugnum. „Allir sem greinast með krabba- mein og aðstandendur þeirra geta sótt ráðgjöf og stuðning til okkar, ásamt því að taka þátt í skemmti- legu félagsstarfi. Ætli það sé ekki vegna þess að ég er textílkennari að mér finnst skipta miklu máli að vera með handverk sem bæði kynin geta tekið þátt í,“ segir Hall- dóra í öflugu starfi KAON sem er með aðstöðu á Glerárgötu 34. „Það skiptir miklu máli fyrir okkur að vera sýnileg í samfélag- inu. Flestir vilja þó ekki vita af okkur fyrr en þeir greinast en við viljum helst að allir viti af okkur og nýti sér þjónustuna því hingað er gott að koma til að tala út, fá stuðning og lausn hinna ýmsu mála,“ segir Halldóra sem starfar með þremur öðrum ráðgjöfum í Glerárgötunni þar sem er opið fjóra daga í viku frá klukkan 10 til 16. „Starfið hjá okkur er alltaf að aukast og hefur vaxið hratt síðast- liðin þrjú ár. Við sjáum nú með haustinu að fólk er að koma um leið og það, eða aðstandandi þess, greinist í stað þess að bíða með að klára fyrst meðferð og koma svo. Ég held að það sé vegna okkar góða samstarfs við heilsugæsluna, sjúkrahúsið og lækna sem benda sjúklingum á að fara til okkar sem fyrst. Það er mikilvægt að koma strax því það erfiðasta í sjúkdóms- ferlinu er öll biðin sem tekur við, bið eftir niðurstöðum, bið eftir meðferð og svo framvegis. Þá skiptir máli að geta komið í KAON til að fá stuðning og ráðgjöf og eitt- hvað skemmtilegt að fást við til að dreifa huganum og stytta biðina,“ segir Halldóra sem situr einnig í stjórn Krabbameinsfélags Íslands. „Við finnum fyrir þörfinni fyrir KAON og bregðumst við henni. Batahorfur hafa sem betur fer batnað með margar tegundir krabbameins og nú eru mjög margir á lífi sem greinst hafa en glíma við ýmsa fylgikvilla eftir veikindin. Við bjóðum því upp á aðstoð og endurhæfingu, sund- leikfimi, leikfimi í líkamsræktar- stöðvum og jóga einu sinni í viku. Það er nauðsynlegt að hlúa að bæði líkama og sál og skiptir miklu máli þegar kemur að fylgikvillum meðferða og sjúkdómsins því við viljum hjálpa fólki að komast aftur út í lífið,“ segir Halldóra. Aðild að Krabbameinsfélagi Íslands eiga 22 svæðafélög og 7 stuðningshópar. Aðildarfélögin eru sjálfstæð og starfa eftir eigin félagslögum. Það eru ákveðin tákn sem ég hafði til hliðsjónar við hönnun slaufunnar. Þegar maður horfir á hálsmenið blasir við blóm sem hringar sig niður slaufuna og vísar í vellíðan og jákvæðni. Hringurinn utan um blómið táknar svo kvenlega orku og vernd,“ útskýrir Guðbjörg Kristín Ingvarsdóttir, gullsmiður og skartgripahönnuður Aurum. Guðbjörg hefur haft veg og vanda af undurfagurri Bleiku slaufunni í ár. „Innblásturinn sótti ég í íslenska náttúru eins og glöggt má sjá. Þegar haft var samband við mig og ég beðin um að hanna slaufuna í ár hafði ég verið að vinna að 20 ára afmælislínu Aurum í þó nokkurn tíma og hluti af því vinnuferli smellpassaði inn í hönnun Bleiku slaufunnar. Það verður því spenn- andi að fylgjast með framhaldinu og verður jafnvel hægt að fá sér eyrnalokka úr afmælislínunni sem passa vel við hálsmenið eða Bleiku slaufuna. Þetta er tenging sem mér þykir ákaflega vænt um.“ Karlar bera hálsmenið líka Guðbjörg hefur frá upphafi fylgst vel með hönnun Bleiku slaufunnar. „Bleika slaufan er frábært framtak og samstarf Krabbameins- félags Íslands við Félag íslenskra gullsmiða er til fyrirmyndar. Það er gott fyrir gullsmiði að geta lagt þessu þarfa málefni lið og það vekur athygli á þeim út á við. Mér þykja algjör forréttindi að fá að taka þátt í þessu verkefni og vinna með því frábæra fólki sem kemur að því einstaka starfi sem unnið er hjá Krabbameinsfélaginu,“ segir Guðbjörg. Hún sá Bleiku slaufuna sína fljótt fyrir hugskotssjónum. „Slaufuformið sjálft er frekar einfalt form að vinna með og er það því ákveðin áskorun að gera það að sínu. Í ár var ákveðið að Bleika slaufan yrði eingöngu hálsmen og er það í fyrsta sinn. Mér finnst það skemmtileg tilbreyting og veit að karlmenn hafa líka verið að bera það. Sjálfri finnst mér ekkert síðra fyrir karlmenn að bera hálsmen en nælu og vitaskuld eiga þeir að vera alls ófeimnir við það,“ segir Guðbjörg. „Ég hef tekið eftir að yngri kyn- slóðir karlmanna eru óragari við að skarta Bleiku slaufunni um hálsinn enda er það sýnilegt tákn um samstöðu og stuðning við mikilvægt verkefni sem snertir okkur öll,“ segir Guðbjörg og bendir á að hægt sé að nota menið sem nælu með því að þræða sikris- nælu í gegnum krókinn sem keðjan hangir á. Ánægjulegt ferli Í Aurum gerði Guðbjörg einn- ig glæsilega viðhafnarútgáfu af Bleiku slaufunni. „Viðhafnarútgáfan er stærra hálsmen og kom það út í þremur útgáfum; silfri, silfri með bleikri emaleringu og gylltu silfri. Við gerðum 240 eintök sem seldust upp á aðeins þremur dögum enda þykir eftirsóknarvert að eiga Bleiku slaufuna í viðhafnarbúningi. Sjálf á ég gylltu slaufuna sem er í algjöru uppáhaldi og við teymið mitt erum hæstánægð með hvað slaufan fór vel af stað og hitti svona vel í mark,“ segir Guðbjörg með stolti og gleði. „Mér þykir ákaflega gleðilegt og mikils virði að geta komið að samfélagsmálum með þessum hætti. Aurum hefur á síðustu árum stutt góðgerðarfélög bæði til lengri og skemmri tíma en það samræmist mínum gildum og fyrirtækisins. Vinnan við Bleiku slaufuna var einstaklega ánægjulegt ferli og þetta er skartgripur sem lifir, tímalaust hálsmen sem hægt er að bera áfram.“ Gullslaufur boðnar upp Bleiki dagurinn er á morgun, föstu- daginn 11. október, en á þriðju- daginn 15. október klukkan 16 verða boðnar upp tvær gullslaufur til styrktar Bleiku slaufunni. „Um er að ræða sérsmíðað gullhálsmen og gullnælu, þá einu Útgefandi: Torg ehf Veffang: frettabladid.isÁbyrgðarmaður: Jóhanna Helga Viðarsdóttir Sölumaður auglýsinga: Ruth Bergsdóttir, ruth@frettabladid.is, s. 694 4103, Glæsileg viðhafnarútgáfa Bleiku slaufunnar í ár er í þremur útgáfum. Guðbjörg var að vinna að 20 ára afmælislínu Aurum þegar hún var beðin um að hanna Bleiku slaufuna og hluti af því vinnuferli passaði vel inn í hönnun slaufunnar. FRÉTTABLAÐIÐ/ ANTON BRINK Framhald á síðu 2 ➛ Halldóra Björg er framkvæmdastjóri KAON. FRÉTTABLAÐIÐ/SIGTRYGGUR ARI Mikilvægt að koma sem fyrst Aðildarfélög Krabbameinsfélags Íslands á landsbyggðinni vinna öflugt starf með krabba- meinsgreindum og aðstandendum þeirra sem njóta þar dýrmæts stuðnings og ráðgjafar. Það erfiðasta í sjúkdómsferlinu er öll biðin sem tekur við og þá er gott að geta komið í KAON til að fá stuðning og ráðgjöf og fást við eitthvað skemmtilegt til að dreifa huganum. 2 BLEIKA SLAUFAN 1 0 . O K TÓ B E R 2 0 1 9 F I M MT U DAG U R

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.