Fréttablaðið - 10.10.2019, Síða 38
200 kr.
af hverri seldr
i
pakkningu re
nna
til Bleiku
Slaufunnar
Baby Foot er stoltur styrktaraðili Bleiku Slaufunnar
Baby Foot er fótaumhirðuvara sem
fjarlægir dauðar húðfrumur og harða
húð, þannig að fæturnir verða
silkimjúkir
Baby Foot fæst m.a. í Hagkaup, Krónunni og apótekum um land allt
Rannsóknir hafa sýnt að stuðningur og ráðgjöf getur haft verulega jákvæð áhrif á
bata og það sama gildir um jafn-
ingjastuðning, að finna að einhver
hefur gengið í gegnum svipaða
hluti og hefur skilning á því.
„Þegar einhver greinist með
krabbamein þá hefur það áhrif
á alla sem standa honum næst,
bæði þann veika, fjölskyldu og
vini. Þá er mikilvægt að vita hvert
hægt er að leita eftir stuðningi.
Það er okkar tilfinning hjá Ráð-
gjafarþjónustu Krabbameinsfé-
lagsins að of margir fara í gegnum
ferlið einir og án þess að leita eftir
stuðningi. Það er gríðarlega mikil-
vægt að fá stuðning og ráðgjöf.
Ef fólk fer eitt og án stuðnings í
gegnum þetta þá má segja að verið
sé að velja erfiðari og oft f lóknari
leið en nauðsynlegt er, sem má
líkja við það að fara Fjallabaks-
leiðina í stað þess að fara hringinn
á malbikinu,“ segir Sigrún Lillie
Magnúsdóttir, forstöðumaður
Ráðgjafarþjónustu Krabba-
meinsfélagsins.
Krabbameinsfélagið gaf nýlega
út leiðbeiningabækling sem
kallast Léttu þér lífið í lyfjameð-
ferð, ráð fyrir þig, ættingja og vini.
Bæklingurinn er lítill og nettur
og passar vel í veski eða vasa. Í
bæklingnum eru ráðleggingar til
þeirra sem standa frammi fyrir
lyfjameðferð og einnig góð ráð
fyrir þá sem standa sjúklingnum
næst.
„Bæklingurinn er byggður á
erlendri fyrirmynd. Sá bæklingur
heitir Quick fixes while on chemo
og er eftir Cally Nurse. Okkur
fannst hann einfaldur og aðgengi-
legur og eftir að hafa fengið leyfi
höfundar fórum við í það að gefa
út sams konar bækling á íslensku
með aðstoð kvenna með reynslu.“
Konur úr hópnum „Kastað til
bata“, aðstoðuðu við gerð þessa
bæklings og gáfu ráðin sem þar
má finna. „Kastað til bata“ er
endurhæfingarverkefni fyrir
konur sem lokið hafa meðferð við
brjóstakrabbameini. Bæklingur-
inn liggur frammi á krabbameins-
deildum og á þeim stöðum þar
sem lyfjameðferð er gefin.
Krabbameinsfélagið býður upp
á ráðgjöf og stuðning fagfólks en
einnig upp á stuðningsnet sem
hægt er að leita til. Í stuðnings-
netinu eru einstaklingar sem veita
jafningjastuðning og hafa sjálfir
Stuðningur skiptir sköpum
Þegar fólk greinist með krabbamein skiptir stuðningur og ráðgjöf gríðarlega miklu máli, jafnt
fyrir þann sem greinst hefur með krabbamein sem og fyrir fjölskyldu hans og vini.
Sigrún Lillie Magnúsdóttir segir mikilvægt að fá stuðning og ráðgjöf þegar fólk greinist með krabbamein. FRÉTTABLAÐIÐ/SIGRTRYGGUR ARI
Fólki
vegnar
betur ef það
leitar sér
aðstoðar en
það reynist
mörgum
erfitt að
biðja um
hjálp.
Sigrún Lillie
Magnúsdóttir
Léttu þér lífið í lyfjameðferðRáð fyrir þig, ættingja og vini
greinst með krabbamein eða eru
aðstandendur. Þeir hafa allir lokið
stuðningsfulltrúanámskeiði.
„Við vitum að rannsóknir sýna
að fólki vegnar betur ef það leitar
sér aðstoðar en það reynist mörg-
um erfitt að biðja um hjálp. Við
sjáum enn þetta með Þ-in þrjú.
Þola, þrauka og þegja. Það gagnast
alveg, en yfirleitt bara í ákveðinn
tíma. Það er svo margt hægt að
gera og það er algjör synd þegar
fólk kemur mjög seint að leita sér
aðstoðar, það er svo mikilvægt að
þiggja aðstoð, og upplifa sig ekki
einan.“ segir Sigrún.
6 BLEIKA SLAUFAN 1 0 . O K TÓ B E R 2 0 1 9 F I M MT U DAG U R