Fréttablaðið - 10.10.2019, Side 52
Gerðu þær breytingar sem
þarf til að auka virði og
seljanleika þíns fyrirtækis,
sé ætlun þín að selja í náinni
framtíð.
Dagskrá:
Hvernig virkar sambúð þjóðvega
og þéttbýlis?
Margrét Silja Þorkelsdóttir deildarstjóri
tæknideildar Vegagerðarinnar á Akur
eyri fjallar um mikilvægt samstarf
sveitarfélaga og Vegagerðar allt frá
skipulagsstigi og til framkvæmd vega.
Hún fer yfir hvað Vegagerðin leggur til í
umferðaröryggisáætlunum sveitarfélaga
og hvaða aðgerðir stuðla að bættu
umferðaröryggi í þéttbýli, sér í lagi utan
höfuðborgarsvæðisins.
Umferðaröryggisáætlun - til hvers?
Svanhildur Jónsdóttir sviðsstjóri sam
gangna hjá VSÓ Ráðgjöf greinir frá
rannsóknarverkefni þar sem hún skoðar
hvaða ávinningur hefur orðið af gerð
umferðaröryggisáætlana hjá nokkrum
sveitarfélögum.
Umferðaröryggi í þéttbýli
Hvernig getum við aukið öryggi
og fækkað slysum í umferðinni ?
Vegagerðin býður til morgun verðar
fundar um umferðaröryggi í þéttbýli
á Grand Hótel 15. október.
Myrkur, rysjótt veður og slæmt skyggni
eru fylgifiskar haustsins. Þessar að
stæð ur hafa truflandi áhrif á öku menn
og gangandi vegfarendur og auka
hættu á slysum. Þá er mikilvægt að
finna svar við spurningunni: Hvernig
getum við aukið öryggi og fækkað
slys um í umferðinni?
Öruggt umhverfi skóla
Kolbrún Guðný Þorsteinsdóttir, sér
fræðingur í öryggis og fræðsludeild á
Sam göngustofu, segir frá umferðar
öryggis áætlunum skóla, það er hvernig
best sé að skipuleggja umhverfi skóla,
göngu leiðir barna og hvernig má fræða
börn um öruggustu leiðina til og frá
skóla. Einnig segir Kolbrún stuttlega frá
samstarfi Samgöngustofu og bæjar
félaga á síðustu tveimur árum.
Frá sjónarhóli lögreglunnar
Sigríður Björk Guðjónsdóttir, lögreglu
stjóri höfuðborgar svæðisins, ræðir
umferðaröryggi í þéttbýli út frá sjónarhóli
lögreglunnar á Höfuðborgarsvæðinu.
Fundarstjóri er G. Pétur Matthíasson
upplýsingafulltrúi Vegagerðarinnar.
Leitað verður svara við þessari stóru
spurningu á morgunverðarfundi
Vegagerðarinnar í Hvammi
á Grand Hótel Reykjavík,
þriðjudaginn 15. október
klukkan 8 til 10.
Boðið verður upp á morgunverð
milli 8 og 8:30. Allir eru velkomnir.
Skráning fer fram í gegnum tix.is.
Allar nánari upplýsingar
á www.vegagerdin.is
ÖRYGGI
FRAMSÝNI
ÞJÓNUSTA
FAGMENNSKA
Fundinum verður streymt
á facebooksíðu Vegagerðarinnar.
Margrét Silja
Svanhildur
Kolbrún Guðný
Sigríður BjörkG. Pétur
Kynslóðaskipti eru að verða í mörgum fyrirtækjum og þá spyrja eigendur sig hvort
rekstrinum sé best borgið hjá erf-
ingjum eða hvort skynsamlegt sé
að selja. En hvers virði er fyrirtækið
þitt?
Heilmikil fræði hafa skapast í
kringum hvernig skal verðmeta
fyrir tæki en vandamálið við f lest-
allar þær aðferðir er að viðkomandi
þarf að hafa mikla skoðun á fram-
tíðinni og ótal breytum í rekstri
félagsins. Þar vandast nefnilega
málið. Verðmatsaðferðir þessar
byggja að mestu leyti á því að virði
fyrirtækis sé samtala núvirts sjóð-
streymis út í hið óendanlega. En
hvernig metur þú sjóðstreymi
félagsins mörg ár fram í tímann
með nákvæmum hætti? Þú gerir
það ekki.
Undirritaður hefur komið að
fjölmörgum fyrirtækjaviðskiptum
bæði sem fjárfestir hjá Alfa Fram-
tak og ráðgjafi og séð fjölmargar
aðferðir við mat á virði fyrirtækja.
Hugmyndin er þó ekki að fara í
fræðilegar útskýringar á verð-
matslíkönum enda ætti það ekki að
vera fyrsta skref að mínu mati þegar
fyrirtæki er metið. Þegar ég hugsa
um virði fyrirtækis þá geri ég það út
frá tveimur víddum. Annars vegar
út frá þeim áhættuþáttum sem ég
sé í rekstrinum og huglægu mati á
líkum á að slík áhætta raungerist og
hins vegar út frá þeim tækifærum
og vaxtarmöguleikum sem félag-
ið býr yfir. Því meiri áhættu sem
ég þarf að bera sem fjárfestir þeim
mun hærri kröfu til ávöxtunar geri
ég til félagsins sem þýðir að öðru
óbreyttu lægra verð fyrir seljanda.
Ef mörg tækifæri eru hins vegar til
staðar til að vaxa og auka sölu og
þjónustu þýðir það að óbreyttu
hærra verð fyrir seljanda. Þannig
hef ég tamið mér að spyrja nokk-
urra lykilspurninga til að hjálpa
mér að skilja áhættu og tækifæri
sem fylgir eignarhaldi á viðkom-
andi fyrirtæki.
Dæmi um spurningar sem ég spyr
mig eru hvort horfur séu jákvæðar
eða neikvæðar fyrir markaðinn sem
fyrirtækið starfar á, hvort stjórn-
endateymi sé sterkt, áreiðanlegt
og viljugt til að halda áfram rekstri
félagsins, og hvort viðskiptavinir
séu tryggir og versli endurtekið
hjá félaginu. Ekki er alltaf skýrt
svar við þessum spurningum en að
fara í gegnum svona hugsunarferil
hjálpar að meta áhættu og fram-
tíðarmöguleika félagsins.
Það sem ég sé oft sem stærsta
áhættuþáttinn hjá litlum og
meðalstórum fyrirtækjum er að
eigandinn er oftar en ekki lykil-
starfsmaður fyrirtækisins og hefur
f lesta þræði rekstursins í höndum
sér. Mikilvægt er að enginn einn
aðili sé ómissandi enda eykur það
áhættu á áföllum ef eitthvað kemur
fyrir viðkomandi. Þess vegna ætti
eigandinn/lykilstarfsmaðurinn að
byrja að huga að þessum málum
nokkrum misserum áður en selt er
ef hámarka á verðmæti rekstrarins.
Ef rekstur félags stendur og fellur
með þér eða einum starfsmanni þá
áttu lítil seljanleg verðmæti í rekstr-
inum.
En skiptir arðsemi engu máli? Jú,
viðkomandi fyrirtæki með jákvæð-
ar horfur, öflugt stjórnendateymi og
trygga viðskiptavini gæti vel verð-
lagt vöru og þjónustu sína svo lágt
að engin afkoma er eftir fyrir hlut-
hafa þess. Viðskipti eiga nefnilega
að mínu mati að vera einhvers virði
fyrir báða aðila, þann sem selur og
þann sem kaupir. Því er mikilvægt
að skoða í sinni einföldustu mynd
hversu mikið er bankareikningur
félagsins að vaxa á hverju ári, hversu
stórum hluta er hægt að ráðstafa í
arð til hluthafa og hvert er hlutfall
arðs af tekjum. Fyrirtæki með lága
framlegð eru í eðli sínu viðkvæmari
fyrir áföllum þar sem lítið má út af
bregða áður en hagnaður snýst í tap.
Aftur komum við að því að aukin
áhætta þýðir lægra verð.
Að lokum þarf að velta því upp
hversu viðkvæm samkeppnisstaða
félagsins er. Er hætta á að missa
stóra viðskiptavini, er auðvelt að
koma inn á markaðinn og fara í
samkeppni eða þarf mikla þekk-
ingu og fjármagn til þess? Er vöru-
merkið með mikla góðvild hjá við-
skiptavinum eða er þeim sama við
hvern þeir versla? Frábært dæmi
eru fyrirtæki eins og Brauð & Co
og World Class sem hafa byggt upp
tryggan viðskiptavinahóp sem lítur
varla á vöru samkeppnisaðilans.
Taktu stöðumat á þessum þáttum
og fáðu álit frá aðilum sem þú
treystir og hafa viðeigandi þekk-
ingu. Gerðu þær breytingar sem
þarf til að auka virði og seljanleika
þíns fyrirtækis, sé ætlun þín að selja
í náinni framtíð.
Svo hvers virði er fyrirtækið þitt,
eða ætti ég að segja hversu áhættu-
samt er fyrirtækið þitt?
Hvers virði er
fyrirtækið þitt?
Árni Jón
Pálsson
partner hjá
Alfa Framtak
Save the Children á Íslandi
1 0 . O K T Ó B E R 2 0 1 9 F I M M T U D A G U R26 S K O Ð U N ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð