Fréttablaðið - 10.10.2019, Síða 70

Fréttablaðið - 10.10.2019, Síða 70
EN MIKILVÆGAST AF ÖLLU HVAR ÉG DETT Í GREMJU, SAMANBURÐ OG GAGNRÝNI Á SJÁLFA MIG OG AÐRA. ÞAÐ ERU TILFINNINGAR OG HUGSANIR SEM ÉG HEF EKKERT MEÐ AÐ GERA. Mér fannst mikil-vægt að platan ætti sama fæð-ingardag og ég eftir þriggja ára meðgöngu og sköpunarvinnu. Rótin er á sama tíma uppgjör og nýtt upphaf en uppgjörið felst í því að gera hlutina algjörlega á eigin forsendum. Fara aftur í rótina, kjarnann og sköpun- ina sem er áreynslulaus og kemur af sjálfu sér. Lögin á plötunni voru aldrei samin eða sköpuð í pressu. Hvorki tímapressu né pressu á að þurfa að vera eitt eða neitt eða enda á einn eða annan hátt. Þess vegna fengu allir upprunalegu textarnir að halda sér nánast eins og þeir fæddust. Uppgjörið felst líka í því að allt sem ég geri frá og með Rót- inni í tónlist, hvort heldur sem er að mæta í viðtöl eða koma fram, er líka á mínum eigin forsendum með það að markmiði að næra og gefa mér og öðrum.“ Þurfti að setja pásu á femínískan aktífisma Lára hefur talað opinskátt um að hafa þurft að breyta virkilega til eftir að hafa upplifað kulnun í starfi árið 2017. „Þá var ég verkefnastjóri í kynjuðum fjármálum hjá Reykja- víkurborg og formaður KÍTÓN, félags kvenna í tónlist. Ég vann yfir mig og var að sinna verkefnum sem tóku á mig. Mannréttindi skipta mig miklu máli og mér fannst oft erfitt að berjast fyrir einhverju sem mér þótti svo sjálfsagður hlutur, að opinberu fjármagni sé varið þannig að allir vaxi og að konur þurfi ekki að upplifa fordóma í starfi sem þær brenna fyrir. Ég þurfti að setja pásu á femínískan aktífisma á þessum tíma og gera eitthvað allt annað.“ Lára segir vel ganga að halda nýjum takti þó það geti tekið á. „Ég hef verið í fullu starfi við að gramsa í sjálfri mér, fara í gegnum lag fyrir lag, skoða hvað þarf að vinna með, hvað ég þarf aðstoð með, hvar ég get beðið um leiðsögn og stuðning. Hvar ég þarf að treysta á sjálfa mig. En mikilvægast af öllu hvar ég dett í gremju, samanburð og gagnrýni á sjálfa mig og aðra. Það eru tilfinn- ingar og hugsanir sem ég hef ekkert með að gera,“ segir Lára. Sjálfsmildi og sjálfsást Lára segir að eftir að hún lenti á vegg hafi hún farið að skoða hvað það væri í raun sem hún þyrfti á að halda og segist fegin því að hafa mætt fullum skilningi eiginmanns- ins á því að þurfa að taka sér tíma. „Ég er í raun enn tveimur árum síðar að taka mér tíma og tel það algjör- lega það mikilvægasta sem við getum gert fyrir okkur.“ Á þessum tíma segist Lára hafa kynnst sere- mónísku kakói og Tinnu Sverris- dóttur sem síðar varð meðeigandi hennar að Súkkulaðisetrinu Anda- gift, fyrirtæki sem þær reka ásamt Signýju Leifsdóttur. „Slagorðin okkar eru sjálfsmildi og sjálfsást. En það er það sem við iðkum alla daga. Æfum okkur í að bera virð- ingu fyrir okkur sjálfum, finna virðið okkar. Virða líkamann og allt sem hann gerir og hefur að geyma. Við förum líka í dýpri vinnu við að skoða mynstrin okkar, hugsanir og tilfinningar. Minna okkur á að við erum ekki hugsanir okkar og til- finningar. Andagift er griðastaður þar sem við mætum okkur sjálfum og öðrum nákvæmlega þar sem við erum. Við þurfum ekki að bera grímurnar okkar, hlutverk og varnir inni í þeim griðastað. Við leyfum okkur að vera auðmjúk og hrá. Við höldum námskeið, opna tíma dag- lega með hugleiðslu og tónheilun og retreat bæði hér heima og erlendis. Í öllu sem við gerum bjóðum við upp á seremóníal kakó sem er stút- fullt af andoxunarefnum og magn- esíumi og hjálpar okkur dýpra inn í slökun.“ Ég er forréttindakona Lára er komin af tónlistarfólki og segir tónlistina innbyggða í gen hennar. „Afi og amma voru laga- höfundar og foreldrar mínir eru listafólk. Ég byrjaði 10 ára að semja ljóð og lesa þau upphátt í stofunni heima. Ég fékk að velja mér hljóð- færi og lærði fyrst á blokkf lautu, síðan á píanó í átta ár og svo klass- ískan söng. Ég er forréttindakona og geri mér grein fyrir því að ekki hafa allir svona ríkan aðgang að námi sem þessu en ég bý að þessu alla ævi. Þegar ég svo var 19 ára keypti ég mér gítar og leigði mér DVD-kennslu- diska í gítarleik. Ég æfði mig heilu og hálfu dagana og samdi fyrstu plötuna mína á gítar það ár.“ Lára starfar jafnframt sem tónheilari og segist þannig tengjast sköpunar- krafti sínum á mjög heilandi hátt. „Ég myndi líka segja að tónlist sé mín heilun, bæði að hlusta á hana, losa um tilfinningar í gegnum texta og að búa til fallegar melódíur.“ Fékk ung niðurrífandi gagnrýni Lára segist í gegnum tíðina marg- oft hafa ætlað að hætta í tónlistar- bransanum enda sé hann krefjandi. „Hann byggir oft á samanburði og samkeppni sem er umhverfi sem ég þrífst illa í. Ég var mjög ung þegar ég byrjaði að gefa út plötur og þurfti að lesa gagnrýni sem einkenndist af niðurrifi. Það hafði mjög mikil áhrif á sjálfsmynd mína. Mér var kennt snemma að segja já við öllum til- boðum og verkefnum, jafnvel þótt það gæfi mér ekkert. Ég man eftir stundinni þar sem ég stóð á nær- fötunum í bakherbergi skemmti- staðarins Nasa þar sem ég átti að stíga á svið sem dansari með tón- listarkonunni Peaches. Umboðs- maðurinn minn taldi það mjög gott fyrir feril minn og tengslanetið. Þá sagði ég „stopp – hvaða vitleysa er þetta?““ Lára hefur þó alltaf snúið aftur í tónlistina enda er hún stór partur af henni. „Hún kemur frá hjartanu. Ég vil segja satt og gefa af mér. Ég vil geta starfað í tónlistarbransanum í sama hráleika og heiðarleika og ég starfa í Andagift og ég veit að það er undir mér komið. Rótin minnir mig á það.“ Lára segir tónlist plötunnar rólega, fallega og hlýja. „Hljóð- heimurinn er töfrandi og spenn- andi. Plötuna vann ég með Sóleyju Stefáns og Alberti Finnboga og þau eiga stóran part af hljóðheimi henn- ar en allt ferlið var mjög áreynslu- laust og gott.“ Lára verður með útgáfutón- leika í Bæjarbíói Hafnarfirði þann 31. október næstkomandi. bjork@frettabladid.is Leitaði aftur í rótina Tónlistarkonan Lára Rúnarsdóttir varð 37 ára í síðustu viku og gaf þá út plötuna Rótina sem hún segir afrakstur þess að hafa gramsað í sjálfri sér og að platan marki á sama tíma uppgjör og nýtt upphaf. Lára rekur Súkkulaðisetrið Andagift ásamt þeim Tinnu Sverrisdóttur og Signýju Leifsdóttur undir slagorðunum sjálfsmildi og sjálfsást sem þær iðka sjálfar alla daga. FRÉTTABLAÐIÐ/SIGTRYGGUR ARI 1 0 . O K T Ó B E R 2 0 1 9 F I M M T U D A G U R44 L Í F I Ð ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð LÍFIÐ

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.