Fréttablaðið - 01.06.2007, Blaðsíða 1
Atli
Gíslason,
þingmaður
Vinstri grænna,
fylgdi öðrum
þingmönnum
ekki inn í
Dómkirkjuna
við þingsetningu
í gær. Með því
vildi hann sýna
samstöðu með
samkynhneigðum.
„Þetta voru ekki nein mótmæli
gegn þinginu eða kirkjunni,“
segir Atli. „Ég vildi bara
persónulega sýna samstöðu með
samkynhneigðum og styðja þá í
baráttunni um að prestar megi
gefa þá saman í hjónaband.“
Hann segir þingsetninguna
sjálfa hafa verið prýðilega, fyrir
utan þegar stjórnarflokkarnir
beittu meirihlutavaldi til að
fresta kjöri í þingnefndir.
„Svona ofbeldi á fyrsta degi
boðar ekki gott.“ Tekist var á um
þingsköp á fyrsta fundi nýkjörins
þings.
dýrin stór og smáFÖSTUDAGUR 1. JÚNÍ 2007
Fiskmarkaður í
portinu
Páfagaukur og upp-
rennandi stjarna
Fiskmarkaður verður opnaður á morgun í port-
inu við Vín og skel að Laugavegi 55. Hann verður
opinn um helgar í sumar. Vín og skel er líka með
sérstakan matseðil í tilefni hátíðar hafsinsKristjá N
En stólar Kristján Nói á gott veður eða er hann
búinn að byggja yfir portið? „Við erum að fá tjald
og þar inni verðum við með markaðinn S
við á að grilla lík hé
Ein matsk. safieða eitt hylki
Jói
Fel
F
A
B
R
I K
A
N
Reykingabann 1.júní.
Af því tilefni bjóðum við okkar
geysivinsælu Stubbahús á
afsláttarverði. 3 stærðir.
Pöntunarsími: 564 1783 ,
896 1783
Stubbahus.is
www.innval.is
Rennihurðafataskápar
mikill afsláttur af tveimur sýningarskápum, til afgreiðslu strax.
Eikarskápur 270 cm á breidd og glerskápur 286 cm á breidd. Gildir aðeins í dag.
Borið hefur á áfengisneyslu í svoköll-
uðu VIP-rými Laugardalsvallar á leikjum í
Íslandsmótinu í knattspyrnu í sumar en þetta
er bannað með öllu samkvæmt reglum
Knattspyrnusambands Íslands. Áfengissala
og áfengisneysla er stranglega bönnuð á
leikjum samkvæmt reglum KSÍ.
Þórir Hákonarson, framkvæmdastjóri KSÍ,
vildi ekki tjá sig um einstaka atvik sem kynnu
að hafa komið upp en sagði það skýra stefnu
KSÍ að áfengisneysla væri bönnuð á vallar-
svæðum þar sem leikir færu fram. „Það
verður auðvitað ekki hvikað frá þeirri stefnu
að áfengisneysla, og sala áfengis, á leikjum
er bönnuð og það á við um allt vallarsvæðið
þar sem leikurinn fer fram. Þetta yfirbyggða
rými á Laugardalsvelli fellur að sjálfsögðu
undir það líka og það er ekki hugsað sem
áhorfendasvæði þar sem útvaldir geta verið
að höndla með áfengi. Stefna KSÍ í þessum
efnum er skýr og frá henni verður ekki vikið.
Félögin sem hafa afnot af aðstöðunni þegar
heimaleikir þeirra fara fram verða hins vegar
að bera ábyrgð á því að þessari stefnu sé
framfylgt.“
Fréttablaðið náði myndum af því á dögun-
um er Framarar buðu til veislu í fyrrnefndu
rými á Laugardalsvelli er leikur Fram og FH
fór fram en þar sjást greinilega stæður af
Stella Artois-bjórkössum fyrir utan rýmið,
sem voru fyrir boðsgesti.
Brynjar Jóhannesson, framkvæmdastjóri
Fram fótboltafélags, segir félagið hafa nýtt
rýmið til samkvæma þar sem boðsgestir komi
saman til þess að ræða málin. „Það hafa verið
haldin boð í þessu rými þar sem við bjóðum
styrktaraðilum og öðrum boðsgestum upp á
veitingar. Það hefur bara verið kaffi og
brauð.“ Að öðru leyti vildi Brynjar ekki tjá
sig um málið en hann þvertók fyrir að áfengi
væri í boði fyrir boðsgesti.
Sigríður S. Júlíusdóttir, fulltrúi á stjórn-
sýslu- og starfsmannasviði Reykjavíkurborg-
ar sem veitir vínveitingaleyfi, segir slíkar
umsóknir ekki hafa borist vegna veisluhalda
á Laugardalsvelli. Aðeins þarf vínveitinga-
leyfi ef selja á áfengi en ekki ef bjór er í boði
í einkasamkvæmum.
Reglur og stefna KSÍ kveða hins vegar á
um að áfengisneysla á leikjum sé bönnuð og á
það jafnt við um landsleiki og leiki í Íslands-
móti. „Öll meðferð áfengis er óheimil og eins
að fara með drykkjarföng inn á völlinn,“ segir
meðal annars í heilsíðuauglýsinu frá KSÍ
vegna leiks Íslands og Liechtenstein sem
fram fer á Laugardalsvelli á morgun.
Bjór fyrir útvalda á vellinum
Áfengi hefur verið í boði fyrir útvalda í VIP-rými Laugardalsvallar á leikjum í sumar. KSÍ bannar áfengi þar
sem leikir fara fram. „Bara kaffi og brauð hjá okkur,“ segir framkvæmdastjóri Fram.
Í eigu
Michaels Jackson
„Fögur loforð hjá nýrri
ríkisstjórn en er eitthvað inni-
hald í þeim orðaflaumi?“ sagði
Guðjón Arnar Kristjánsson, for-
maður Frjálslynda flokksins, í
umræðum um stefnuræðu for-
sætisráðherra á Alþingi í gær.
Guðjón kvaðst reiðubúinn að
styðja ríkisstjórnina til góðra
verka en vegna fyrri verka Sjálf-
stæðisflokksins hefði hann
ástæðu til að efast.
Fjallaði hann sérstaklega um
stöðu sjávarbyggða í erfiðleikum
og sagði „kvótabraskskerfið“
byggja á stórgölluðum lögum frá
Alþingi.
Guðni Ágústsson, formaður
Framsóknarflokksins, gagnrýndi
margt í sáttmála nýrrar stjórnar
og sagði hana ekki skynja að við
vaxandi efnahagsvanda væri að
etja.
Steingrímur J. Sigfússon, for-
maður Vinstrihreyfingarinnar –
græns framboðs, sagði ríkis-
stjórnina fara illa af stað í
umhverfismálum, misjafn skiln-
ingur forystumanna hennar á
þýðingu ákvæða stjórnar-
sáttmála um Þjórsárver væri til
vitnis um það.
Í ræðu sinni fór Geir H. Haarde
forsætisráðherra yfir stjórnar-
sáttmálann og Ingibjörg Sólrún
Gísladóttir utanríkisráðherra fór
nánar í saumana á stefnumálum
stjórnarinnar í utanríkismálum.
Sat hjá í kirkju-
ferð þingmanna