Fréttablaðið - 01.06.2007, Blaðsíða 68

Fréttablaðið - 01.06.2007, Blaðsíða 68
Heimóttaskapur hefur sjaldnast þótt mönnum til framdráttar en í hverju felst hann þegar á hólminn er komið? Á morgun verður opnuð sýning þar sem umfjöllunarefnið er „útkjálkamennska“ auk þess sem málþing er skipu- lagt af sama tilefni. Sýning listahóps sem kennir sig við „The Provincialists“ verður opnuð í Gerðarsafni kl. 15 á morg- un en þar er á ferðinni hópur nor- rænna listamanna sem hittist fyrst í skandínavíska listamannabú- staðnum í Róm árið 2004. Sýningin ferðast hingað frá Færeyjum, með ýmsum viðbótum, og geymir verk eftir fjóra listamenn frá Íslandi, Færeyjum, Svíþjóð og Noregi. Þórdís Alda Sigurðardóttir myndlistarmaður segir að þó hún hafi ekki oft leitt hugann að út- kjálkamennsku áður en hún komst í kynni við kollega sína suður í Róm, hafi sú hugmynd samt skotið sér niður við ýmis tækifæri. Hún segir að það sem sameini hópinn nú sé sú staðreynd að þau komi öll frá stöðum sem liggja utan hring- iðunnar myndlistinni. „Við búum ekki á stöðum þar sem straum- ar og stefnur eru ákvarðaðar. Við erum öll á jaðrinum - við Norður- landaþjóðirnar og einnig þeir sem búa fyrir utan stærstu menning- arborgir heimsins.“ Þórdís Alda nefnir að ólík tækifæri bjóðist listafólki utan heimsborga mynd- listarinnar og að í rótunum búi ákveðinn kraftur. Þrátt fyrir stór- kostlegar framfarir í samskiptum og meiri hreyfanleika er útkjálk- amennskan enn þá til en ein for- senda sýningarinnar er að norð- ursvæðin í heild ásamt okkar litlu höfuðborgum séu hluti af hinni hnattrænu „útkjálkalist“. „Það er ekki eins og við séum að gera eitthvað sérstaklega út frá þessari hugmynd, við gerum að sem við verðum að gera,“ út- skýrir Þórdís Alda. „Hugsanlega munu aðrir koma auga á tengsl verkanna fremur en við sjálf – það verður spennandi að sjá hvort gestir sýningarinnar komi auga á einhvers konar samnefnara í túlk- un eða myndheimi verkanna.“ Í augum þátttakendanna snýst sýningin ekki um einangrunar- stefnu heldur fyrst og fremst sátt við uppruna sinn. „Okkur finnst já- kvætt að vera einfaldlega það sem maður er – og fara ekkert í graf- götur með það. Þetta snýst ekki um staðfræði heldur um það sem við getum gert – það sem stendur okkur næst og líka það sem hefur áhrif á okkur, hvort sem það kemur úr okkar nánasta umhverfi eða við þurfum líka að teygja okkur þang- að sem straumarnir eru - það er jú partur af nútímanum.“ Verk Þórdísar Öldu, innsetning- in „Út í bláinn“, vísar til ferðalag- anna – þarfar mannsins til að skoða sig um í heiminum og öllu sem því fylgir, bæði jákvætt og neikvætt. „Það er afstætt hvað vekur undr- un og furðu – okkur finnst margt skrýtið þegar við erum erlendis og við erum skrýtin í augum ann- arra,“ áréttar Þórdís Alda. Náttúran er einnig mikilvægur þáttur í verki hennar líkt og í verk- um færeysku listakonunnar Astri Luihn sem sýnir málverk og prent á sýningunni en þau vinnur hún mikið til út frá gömlum goðsögn- um. Þriðji listamaðurinn, Norð- maðurinn Ane Lahn, sýnir vídeó- verk í Gerðarsafni en verk hans þrjú bera yfirskriftir heimsálf- anna Ameríku, Afríku og Evrópu. Sænska listakonan Madeleine Park vinnur einnig með vídeó en innsetning hennar Disco Molec- ule hverfist um þær efnafræði- legu breytingar sem verða innra með manninum þegar hann upp- lifir tilfinningalegt áreiti. Park hefur herbergi á neðri hæð safns- ins til umráða en þar sendir hún einnig út hljóð er byggja þessum líffræðilegu umskiptum í bland við dúndrandi diskótóna lagins „I Feel Love“ með Donnu Summer. Málþing tengt sýningunni hefst í fyrramálið kl. 10 og fer fram í húsakynnum ReykjavíkurAka- demíunnar við Hringbraut. Mark- mið málþingsins er að skapa vett- vang fyrir gagnrýnar og áhuga- verðar umræður um hugtakið „provincialism“, sem gæti útlagst sem sveitamennska á íslensku. Frummælendur þar koma víða en lengst ferðast Theaster Gates Jr., listamaður og kennari við lista- deildina í Chicago-háskóla sem einnig mun fremja gjörning á opn- uninni ásamt hljóðfæraleikurum. Þá munu Arna Mathiesen, arki- tekt sem búsett er í Osló, Guð- mundur Oddur Magnússon,próf- essor við Listaháskóla Íslands, Viðar Hreinsson bókmenntafræð- ingur og Hulda Rós Guðnadóttir, fræði- og listamaður einnig ræða hugtakið frá mismunandi sjónar- hornum og beita því á samtímalist sem og samfélagið almennt. Mál- þingið verður haldið á ensku og er opið öllum. Sýningin stendur til 24. júní, en hún verður sett upp í Hamar í Noregi nóvember og í framhald- inu í Chicago í Bandaríkjunum. Nánari upplýsingar um verkefnið má sjá á heimasíðunni www.prov- incialists.com
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.