Fréttablaðið - 01.06.2007, Blaðsíða 8

Fréttablaðið - 01.06.2007, Blaðsíða 8
Hagspá fyrir árin 2007 – 2010 Greiningardeild Landsbankans býður til morgunverðarfundar þriðjudaginn 5. júní 2007 á Hótel Nordica frá kl. 8:30-10:00. Á fundinum kynnir Greiningardeild Landsbankans nýja hagspá fyrir árin 2007 – 2010. • Af hverju er krónan svona sterk? • Hvað felst í viðskiptahallanum? • Hvert stefnir fasteignamarkaðurinn? • Hver eru brýnustu verkefni hagstjórnar? Í lokin verða fyrirspurnir og umræður. Dagskrá: 8:30 Sigurjón Þ. Árnason, bankastjóri, setur fundinn. 8:40 Björn Rúnar Guðmundsson, forstöðumaður Greiningardeildar og Lúðvík Elíasson, sérfræðingur, fjalla um sýn deildarinnar á þróun efnahagsmála. Boðið verður upp á léttan morgunverð frá kl. 8:15. Fundurinn er öllum opinn og aðgangur ókeypis. Skráning fer fram á www.landsbanki.is - staðan hér heima og alþjóðastraumar Spennandi tímar í efnahagsmálum Ólafur Ragnar Gríms- son, forseti Íslands, fjallaði um samvinnu í stjórnmálum í ræðu sinni við setningu Alþingis í gær. Sagði hann valdavægi á lýðveldis- tíma slíkt að fyrr eða síðar ynnu nánast allir með öllum. Samvinna reyndist þýðingarmeiri en ágrein- ingur. Mál væru afgreidd í ríkari mæli með samkomulagi allra flokka þótt ágreiningur yrði aldrei umflúinn með öllu. „Mikilvægt er að þingheimur allur kappkosti jafnan að ólík afstaða til deilumála fari ekki svo úr böndum að þjóðin lamist vegna deilna og nái ekki að nýta dýrmætan samtaka- mátt,“ sagði Ólafur Ragnar. Hann ræddi einnig um breytta fjölmiðlun og sagði margraddaða umræðu í sérhverjum miðli ótví- ræða framför frá fyrri árum þegar flokksmálgögnin hefðu þrengt að og umræðuþættir ljósvakamiðla verið fáir. Ólafur Ragnar sagði ótvíræðan trúnað fólginn í að vera kjörinn alþingismaður. „Að axla æðstu ábyrgð sem lýðræðið veitir, vera falið að setja lög sem móta örlög einstaklinga, þjóðarinnar.“ Óskaði hann alþingismönnum til hamingju með traustið og bauð nýja þingmenn sérstaklega velkomna í þingsal. Á þingsetningarfundinum var Sturla Böðvarsson Sjálfstæðis- flokki kjörinn forseti Alþingis og Ásta R. Jóhannesdóttir Samfylking- unni fyrsti varaforseti. Í ávarpi gerði Sturla takmarkað traust landsmanna til Alþingis að umtalsefni og sagðist telja umræðu- hætti þingsins eiga þar nokkra sök. Hvatti hann þingmenn til að bæta um enda ætti það að vera hlutverk þingmanna að setja þann svip á lög- gjafarsamkomuna að hún nyti virð- ingar og hefði trúverðugleika. Sturla sagðist telja tíma til kom- inn að endurskoða skipulag þing- umræðu. Kvaðst hann ekki eiga við styttri umræður heldur skýrari skoðanaskipti, betra skipulag og betri undirbúning. Þá sagði Sturla eitt mikilvægasta verkefni forsætisnefndar þingsins að skapa þingmönnum landsbyggðar- kjördæmanna hagfelldari starfs- aðstæður. Forystumenn stjórnarflokkanna hafa ákveðið að Gunnar Svavarsson Samfylkingunni verði formaður fjárlaganefndar þingsins og Bjarni Benediktsson formaður utanríkis- málanefndar. Mikilvægt að þjóðin nýti samtakamátt Samkomulag og samvinna var inntak ræðu forseta Íslands við setningu Alþingis í gær. Gunnar Svavars- son verður formaður fjárlaganefndar og Bjarni Benediktsson formaður utanríkismálanefndar. Námsmatsstofnun sendi í gær öllum grunnskólum landsins niðurstöður samræmdu prófanna í tíunda bekk og má búast við að nemendur fái ein- kunnirnar sínar í dag eða næstu daga. Sigurgrímur Skúlason, sviðs- stjóri Námsmatsstofnunar, segir að skólastjórarnir ákveði hvenær börnin fái einkunnir sínar. „Skóla- stjórar afhenda niðurstöðurnar og þeir ákveða með hvaða hætti þeir gera það. Einhvern tímann fengu krakkarnir ekki að sjá einkunn- irnar fyrr en á útskriftardegi en mér skilst að það sé að breytast upp til hópa,“ segir hann. Hátt í fimm þúsund nemendur þreyttu samræmd próf í tíunda bekk, þar af nokkrir nemenda úr áttunda og níunda bekk.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.