Fréttablaðið - 01.06.2007, Blaðsíða 6
Smart og létt á fæti
heilsteypt glös á tilboðsverði
R
V
62
36
A
Rekstrarvörur
1982–200725ára
Tilboðið gildir
út júní 2007
eða meðan
birgðir endast.
Þórunn Helga Kristjánsdóttir,
sölumaður hjá RV
Á tilboði íjúní 2007 heilsteypt rauðvínsglös,hvítvínsglös, bjórglös,kampavínsglös og sérríglös
Imperial 42 cl rauðvínsglös
12 stk.
1.925 kr.
Maldive 36 cl bjórglös
6 stk.
854 kr.
Skynsöm leið til að hætta því þú hættir á eigin hraða.
NicoBloc hindrar allt að 99% af nikótíni og tjöru í filternum.
Þú venur þig af nikótíni áður en þú drepur í.
Karlmaður á fimmtugsaldri, Ingólfur
Elíesersson, hefur verið dæmdur í Hæstarétti í
tveggja ára fangelsi fyrir kynferðisbrot gegn ungri
þroskaheftri konu. Honum var jafnframt gert að
greiða henni 800 þúsund krónur í miskabætur. Þar
með staðfesti Hæstiréttur dóm Héraðsdóms
Reykjavíkur.
Maðurinn framdi kynferðisbrotið gegn ungu
konunni í september 2005. Hún vann á vernduðum
vinnustað, í gróðurhúsi, og var maðurinn stuðnings-
fulltrúi hennar þar. Hann kom til hennar þar sem
hún var við vinnu sína og bað hana um að koma með
sér heim. Hún neitaði því.
Um kvöldið fór hún á fótboltaæfingu í Hagaskóla.
Er hún kom út af henni beið maðurinn í bíl sínum
fyrir utan. Þau fóru síðan heim til hans á gistiheimili
Hjálpræðishersins, þar sem hann bjó um þær mundir.
Þar hafði maðurinn tvívegis samræði við konuna.
Hún var 33 ára þegar þetta átti sér stað og í
sambúð með þroskaheftum einstaklingi. Var það mat
dómsins að framburður hennar hefði verið trúverð-
ugur og borinn fram í mikilli einlægni. Maðurinn
hefði brugðist trúnaðartrausti hennar og misnotað
sér þroskahömlun hennar á grófan hátt.
Braut gegn þroskaheftri konu
Meginmarkmið stjórn-
málanna er að bæta kjör almenn-
ings og skapa fjölskylduvænt og
umhverfisvænt samfélag og sam-
keppnishæft umhverfi fyrir
atvinnulífið.
Þetta sagði Geir H. Haarde for-
sætisráðherra í stefnuræðu sinni á
Alþingi í gærkvöldi.
Geir rakti áform ríkisstjórnar-
innar eins og þau eru fram sett í
stjórnarsáttmálanum og sagði
stjórnina leggja áherslu á að raun-
verulegt jafnrétti yrði leiðarljós í
allri stefnumótun.
Sagði hann kraftmikið efnahags-
líf forsendu áframhaldandi upp-
byggingu í menntamálum, sam-
göngumálum og heilbrigðis- og
félagsmálum og að eitt brýnasta
verkefnið væri að tryggja stöðug-
leika. Stefnt væri að frekari lækkun
skatta á einstaklinga og fyrirtæki,
endurskoðun á skattkerfi og
almannatryggingum til að bæta hag
lág- og millitekjufólks og endur-
skoðun vörugjalda og virðisauka-
skatts.
Geir vék einnig að áformum í
málefnum yngstu og elstu kynslóð-
anna og sagði stefnt að úrbótum á
þeim sviðum.
Í niðurlagi ræðu sinnar sagði Geir
markmiðið að skapa íslenskt sam-
félag „sem verður áfram í fremstu
röð þjóða heims á hvaða lífskjara-
mælikvarða sem litið er“.
Ísland verði áfram í
fremstu röð þjóða
Forsætisráðherra segir meginverkefni stjórnmálanna að skapa hagstæð skilyrði.
Tekur þú strætó oftar en einu
sinni í viku?
Tekur þú reykingabanninu
fagnandi?
Parið sem réðst á
karlmann á sjötugsaldri í húsa-
sundi á Laugaveginum aðfaranótt
sunnudags er laust úr haldi. Parið
játaði verknaðinn og segir
Sigurbjörn Víðir Eggertsson
aðstoðaryfirlögregluþjónn að
málið sé upplýst þó að enn sé
verið að afla gagna. Maðurinn nef-
og rifbreinsbrotnaði við árásina.
Enn er leitað að tveimur mönnum
sem gengu í skrokk á karlmanni í
Breiðholti þessa sömu nótt. Bifreið
mannanna er fundinn en ekkert
hefur spurst til þeirra. Maðurinn
sem þeir réðust á var fluttur
meðvitundarlaus á sjúkrahús en er
á batavegi.
Parið játaði
verknaðinn