Fréttablaðið - 01.06.2007, Blaðsíða 74
„Við viljum ekkert tjá okkur um
málið að svo stöddu. Þetta er allt á
mjög viðkvæmu stigi,” segir Þórir
Snær Sigurjónsson, framleiðandi
hjá Zik Zak. Á vefsíðunni imdb.com
er bandaríski leikarinn Ryan Gosl-
ing kominn út af leikaralistanum
hjá nýjustu mynd Dags Kára, Good
Heart. Þórir vildi ekkert segja
hvort þetta yrði raun-
in eða ekki
en imdb.
com hefur
hingað til
þótt nokkuð
áræðanleg í kvikmyndaheiminum.
Framleiðsla á myndinni hefur taf-
ist nokkuð enda hefur Gosling
verið önnum kafinn eftir að hafa
verið tilnefndur til Óskarsverð-
launa fyrir leik sinn í Half Nelson.
Hann er talinn vera ein helsta von-
arstjarna Hollywood og sló í gegn
í klútamyndinni Notebook. Til að
mynda þurfti að fresta tökum eftir
að Gosling fékk hlutverkið í Fract-
ure á móti Anthony Hopkins sem nú
er sýnd í kvikmyndahúsum borgar-
innar. Söngvarinn Tom Waits hafði
einnig verið ráðinn í annað aðal-
hlutverkanna og er nafn hans enn á
lista. Þetta verður þriðja kvikmynd
Dags Kára í fullri lengd en bæði
Nói Albínói og Voksne Mennesker
hafa vakið mikla athygli út fyrir
landssteinana.
Gosling yfirgefur Dag Kára
Bjórum Ölgerðarinnar Egils
Skallagrímssonar hlotnuðust
þrenn gullverðlaun á nýafstað-
inni Monde selection bjórkeppni
í Belgíu. Sem bruggmeistari Öl-
gerðarinnar er það Guðmundur
Mar Magnússon sem á heiðurinn
af stórsókninni í bjórbruggi.
Á tveimur árum hafa bjórar Öl-
gerðarinnar hlotið níu verðlaun í
alþjóðlegum keppnum, sem hlýtur
að teljast ansi góður árangur. „Ja,
það þykir mér að minnsta kosti,“
sagði Guðmundur hæversklega.
Bjórarnir sem verðlaunaðir voru
eru Gull, Lite og Premium, en
þeir tveir síðastnefndu eru sköp-
unarverk Guðmundar. „Gullið er
hins vegar frá forverum mínum
komið,“ sagði Guðmundur. Gull-
bjórnum vinsæla var þó breytt dá-
lítið fyrir um ári síðan, þegar Guð-
mundur prófaði að nota íslenskt
bygg til bruggsins, en það er jafn-
framt notað í Premium.
„Við erum náttúrlega alltaf að
fínstilla þetta hjá okkur og alltaf
að reyna að bæta okkur. Miðað við
þetta virðumst við vera að þokast í
rétta átt,“ sagði hann. Guðmundur
vildi ekki kannast við að eiga allan
heiður af verðlaununum og sagði
bruggið mikið samspil. „Ég á minn
part af þessu, en það þarf allt að
smella saman til að þetta gangi
upp. Við þurfum að vera með réttu
uppskriftirnar og passa að þetta
sé gert á réttan hátt, þar kem ég
inn. Svo verðum við að velja hrá-
efni af kostgæfni og tækjabúnað-
urinn og starfsmennirnir skipta
öllu máli. Þetta er mikið og flókið
ferli,“ sagði hann.
Íslenskur bruggari í stórsókn
Michael Jackson, fyrrver-
andi konungur poppsins,
hefur tryggt sér útgáfurétt-
inn að lögum Bjarkar Guð-
mundsdóttir. Ekki er ljóst
um hvaða lög er að ræða.
Popparinn Michael Jackson hefur
tryggt sér útgáfuréttinn að lögum
eftir Björk Guðmundsdóttur. Í
samtali við Fréttablaðið sagðist
Ásmundur Jónsson, útgáfustjóri
Smekkleysu sem gefur út plöt-
ur Bjarkar hér á landi, ekki hafa
fengið fregnir af því um hvaða lög
væri að ræða.
Útgáfufyrirtækið Sony/ATV
Music Publishing, sem Jackson
er aðili að, hefur keypt fyrirtækið
Famous Music LLC af Viacom. Þar
með eignast það réttinn að lögum
Bjarkar. „Þetta er stórviðburður
fyrir Sony/ATV Music-útgáfufyr-
irtækið. Hið fjölbreytta safn laga
sem þarna er að finna hefur að
geyma allt frá tímalausum meist-
arastykkjum til nýrra slagara. Ég
er mjög ánægður með að koma Fa-
mous Music í hóp með Sony/ATV,“
sagði Jackson í yfirlýsingu sinni.
Jackson hafði áður eignast út-
gáfuréttinn
að lögum
Bítlanna
sem hann
keypti án
þess að
Paul McCartney fengi rönd við
reist.
Alls hefur Famous Music LLC yfir
að ráða 125 þúsund lögum, þar á
meðal The Real Slim Shady og
Without Me eftir Eminem. Gerði
rapparinn einmitt grín að Jackson
í myndbandi sínu við síðarnefnda
lagið árið 2002. Einnig á fyrir-
tækið réttinn að lögum á borð við
Footloose, Beautiful sem Christ-
ina Aguilera gerði frægt og Hips
Don´t Lie með Shakira, auk laga
eftir Beck og djassarann Duke
Ellington.
„The Famous Music-lagerinn er
uppfullur af heimsklassalögum
sem fólk þekkir og þykir vænt
um,“ sagði Martin N. Bandier, for-
maður hjá Sony. „Fjöldi laganna
sem fyrirtækið á er það sem gerir
þennan samning svo merkilegan
og ég hef fulla trú á því að með
því að eignast þau höfum við tekið
stórt skref í rétta átt.“