Fréttablaðið - 01.06.2007, Blaðsíða 62
Jón Jósep Snæbjörnsson, söngvari
og flugþjónn, er þrítugur í dag. Hann
segir ekkert skipulagt í tilefni dags-
ins, þar sem honum finnst fátt eins erf-
itt og að halda upp á eigin afmæli, en
skemmti sér því betur í afmælisveisl-
um annarra.
„Í sannleika sagt er ég mjög lítið af-
mælisbarn og finnst eiginlega hálf
skrítið og hégómlegt að skipuleggja
eigin afmæliveislu,“ segir Jón, eða
Jónsi eins og hann er kallaður. „Það
er svo óþægilegt að athyglin eigi öll
að beinast að mér á þessum degi. Þar
að auki er ég að fara í flug á afmælis-
deginum og er því ekki búinn að plana
neitt.“
Jónsi bætir því við að honum þyki
líka heldur óspennandi tilhugsunin um
að þurfa kannski að hlusta á ræðuhöld
í veislunni, þar sem skopast sé á hans
kostnað. „Ég hef yfirleitt mikið skop-
skyn fyrir sjálfum mér, en er eitthvað
stressaður fyrir því. Ég var nú bara í
afmæli um daginn þar skemmtikraftur-
inn gerði óspart grín að mér og fannst
það heldur undarleg lífsreynsla.“
Jónsi viðurkennir að konan hans
Rósa Björgvinsdóttir eigi yfirleitt
frumkvæði í því að skipuleggja af-
mælisveislur fyrir bóndann og bjóði
þá fólki í köku eftir kúnstarinnar regl-
um. „Þetta er náttúrulega ósanngjarnt
gagnvart henni, en ætli ástæðan felist
ekki í því að ég eigi erfiðara með að
gefa en þiggja,“ segir hann.
Spurður hvort hann telji að Rósa hafi
skipulagt eitthvað óvænt í tilefni dags-
ins, segist Jónsi helst ekki vilja svara
spurningunni, af ótta við að setja óþarfa
pressu á eiginkonuna. „Það yrði tilætl-
unarsemi á hvor veginn sem ég svaraði
þessu. Enda verð ég bara hæstánægður
með það sem hún tekur sér fyrir hend-
ur, hvað svo sem það kann að vera.“
Þótt Jónsi sé lítið fyrir að vera í sviðs-
ljósinu á afmælisdaginn sinn, skemmtir
hann sér manna best í afmælum ann-
arra og finnst upplagt að koma konunni
sinni á óvart þegar hún á afmæli. „Ég
lýg yfirleitt statt og stöðugt að Rósu
að ég hafi gleymt afmælisdeginum
hennar og þá sérstaklega gjöfinni, sem
ég er þá auðvitað fyrir löngu búinn að
kaupa handa henni,“ segir hann og hlær
stríðnislega.
„Einhvern tímann tókst mér að telja
Rósu trú um að afrafmögnunarsprey,
sem ég hafði keypt á bensínstöð rétt
fyrir hádegi á aðfangadag og kost-
aði einhvern 320 kall, væri jólagjöf-
in hennar,“ heldur hann áfram. „En þá
hafði ég hugsað þetta sem ratleik og
komið miða með vísbendingu um raun-
verulega pakkann fyrir í lokinu á brús-
anum. Ekki þarf að fjölyrða um það að
Rósa varð rosalega ánægð þegar mið-
inn kom í ljós.“
„Leikkonur eru ekki vélar.
Engu að síður er komið
fram við þær eins og mask-
ínur. Peningamaskínur.“
Action Comics lítur dagsins ljós
AFMÆLI
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð
og hlýhug við andlát og útför ástkærrar
eiginkonu, móður, dóttur, tengdadóttur,
tengdamóður og ömmu,
Guðrúnar Ásbjörnsdóttur
tónlistarkennara, Holtsbúð 4, Garðabæ.
Sérstakar þakkir til starfsfólks 11-G, Landspítala við
Hringbraut.
Páll Hannesson
Björn Rúnar Lúðvíksson Rósa Karlsdóttir
Jóhann Rúnar Pálsson Huld Aðalbjarnardóttir
Ásbjörn Pálsson Ingibjörg S. Ármannsdóttir
Margrét Valgerður Pálsdóttir Þórarinn Hauksson
Guðrún Sigurðardóttir Ásbjörn Guðmundsson
Steinþóra Margrét Níelsdóttir
og barnabörn.
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð
og hlýhug við andlát og útför elskulegs
eiginmanns míns, föður, tengdaföður, afa
og langafa,
Þórmundar Hjálmtýssonar
Sérstakar þakkir fær heimahjúkrunin Karitas og líknar-
deildin, Kópavogi.
Hólmfríður Jóna Arndal Jónsdóttir
Óskar Herbert Þórmundsson Helga Ragnarsdóttir
Sigurjón Þórmundsson Ragnheiður Lilja Georgsdóttir
Þórður Rúnar Þórmundsson Ingibjörg Harðardóttir
Jóhanna S. Hannesdóttir
Sjöfn Sóley Þórmundsdóttir Gunnar Þór Magnússon
Fanney Þórmundsdóttir Hilmar Jóhannesson
Sigurbjörn Jakob Þórmundsson Anna Guðný Friðleifsdóttir
Bjarni Gaukur Þórmundsson Sóley Ægisdóttir
barnabörn, barnabarnabörn og aðrir aðstandendur.
Elskuleg eiginkona mín, móðir,
tengdamóðir og amma,
Þórhildur Marta
Gunnarsdóttir
fyrrum framkvæmdastjóri, Mánatúni 4 í
Reykjavík,
lést að heimili sínu á hvítasunnudag 27. maí.
Útförin fer fram fimmtudaginn 7. júní kl. 13.00 í
Grafarvogskirkju. Blóm og kransar eru vinsamlegast
afþakkaðir en þeim sem vilja minnast hennar
er bent á Ljósið - endurhæfing fyrir krabbameinsgreinda.
Magnús Jónsson
Valgeir Magnússon Silja Ósvaldsdóttir
Valgerður Magnúsdóttir Óli Rafn Jónsson
Hildur Eva Valgeirsdóttir
Gunnar Ingi Valgeirsson
Eiginmaður minn, faðir okkar,
tengdafaðir og afi,
Kristján Pétursson
húsasmíðameistari og formaður Félags
nýrnasjúkra, Dverghömrum 18, Reykjavík,
andaðist þann 30. maí. Útförin verður auglýst síðar.
Auður Thorarensen
Sólrún Lísa Kristjánsdóttir Olaf Möller
Garðar Kristjánsson Kristín Snore
Magnús Arnar Sveinbjörnsson Jófríður Ósk Hilmarsdóttir
Axel Örn Kristjánsson
Kristján Örn Kristjánsson Steinunn Ýr Hjaltadóttir
og barnabörn.
Elskulegur faðir minn, tengdafaðir, afi,
langafi og langalangafi,
Egill Kristinn Egilsson
vélvirki, Furugrund 75, Kópavogi,
lést að heimili sínu föstudaginn 25. maí 2007.
Útför auglýst síðar.
Elín Egilsdóttir Phifer og fjölskylda
Jón Andrésson og fjölskylda
Anna Þóra Sigurþórsdóttir og fjölskylda
og aðrir aðstandendur.