Fréttablaðið - 01.06.2007, Blaðsíða 18

Fréttablaðið - 01.06.2007, Blaðsíða 18
fréttir og fróðleikur Ýmsir hafa orðið til að gagnrýna gildandi kosn- ingakerfi vegna þess til hve skringilegra niðurstaðna það komst í nokkrum tilvik- um við útdeilingu jöfnunar- þingsæta í alþingiskosning- unum. Þorkell Helgason, stærðfræðingur og ráðgjafi landskjörstjórnar, hefur gert gæðamat á útdeilingu þingsæta í kosningunum og sagði blaðamanni Frétta- blaðsins allt af létta um það. Þorkell hefur haft afskipti af útfærslu íslenzka kosningakerfis- ins og útreikningi á úrslitum kosn- inga allt frá því hann var sem for- stöðumaður Reiknistofnunar Háskóla Íslands á sínum tíma beð- inn að gera vissa útreikninga þegar flokkarnir sem þá áttu sæti á Alþingi hófu endurskoðun á kosningalögunum árið 1982. Þor- kell segist hafa lent í vissu mála- miðlarahlutverki við smíði kosn- ingalaganna sem tóku gildi árið 1987. Að hans sögn eru þó aðalhöf- undar núgildandi kosningalaga, sem tóku gildi árið 2000, þing- nefndin sem vann frumvarpið að þeim og Friðrik Sophusson veitti forstöðu til að byrja með en síðan Geir H. Haarde. Gagnrýnendum kosningakerfisins segir Þorkell að miðað við þau flóknu skilyrði sem kerfinu séu lögð til grundvallar standi það sig ágætlega. Það sé engin galdra- lausn til. „Menn eru sammála um það, að landinu eigi að vera skipt upp í kjördæmi og hvert kjördæmi eigi að fá sinn skerf af þingsæt- um. ... Hin njörfunin er sú að flokkarnir eigi að fá þingsæti í samræmi við landsfylgi,“ bendir Þorkell á. „Þegar búið er að binda þetta svona í báða skó – flokkarnir skuli fá þetta og kjördæmin hitt – þá er hægt að sýna fram á það stærðfræðilega að það er ekki til nein lausn sem úthlutar þingsæt- um þannig að allar eðlilegar gæða- kröfur séu uppfylltar,“ segir hann. Slíkar gæðakröfur snúa að atrið- um eins og að hámarksfjöldi atkvæða sé að baki hverju þing- sæti, að flokkarnir fái þingsæti í samræmi við landsfylgi, að flokk- ur geti ekki tapað þingsæti á því að bæta við fylgi sitt í þessu eða hinu kjördæminu og öfugt. Auk þess er samkvæmt núgildandi kosningalögum bundið hve mörg þingsæti skuli koma í hlut hvers kjördæmis. Þorkell segir þessar forsendur allar gera úthlutun þingsæta að mjög erfiðu stærðfræðilegu úrlausnarefni. Þetta falli undir viðfangsefni í stærðfræði af býsna hárri erfiðleikagráðu og snúist um svonefnd pörunar- eða úthlutunar- vandamál. Til að uppfylla allar gæðakröfur varðandi úthlutun þingsæta segir Þorkell að aðeins ein lausn sé til. Hún skili flokkun- um því sem þeir eiga að fá á lands- vísu og kjördæmunum sínum sætum. En hvers vegna er hún þá ekki notuð? „Það er vegna þess að slíka lausn er aldrei hægt að finna sem lög- fræðingar væru tilbúnir að kyngja, þótt hún sé vel framkvæmanleg stærðfræðilega.“ Þessa „beztu“ aðferð kallar Þorkell hámörkunar- aðferðina, en hún skilar niðurstöðu sem úthlutar þingsætum þannig að margfeldi atkvæða að baki hverju þingsæti sé eins hátt og hugsazt getur. Gallinn væri bara sá að þess- ari aðferð væri ekki hægt að lýsa með skýrum hætti í lagatexta, „af því að hún byggir í raun á tilrauna- úthlutunum“. Að meðaltali þurfi kannski að gera um tíu tilrauna- úthlutanir, sem tölvan geri auðvit- að á augabragði. En það væri ekki hægt að lýsa þessu í lögum öðru vísi en að segja: „Úthlutun þing- sæta skal vera þannig að heildar- margfeldi atkvæða að baki þing- sætum sé í hámarki. Punktur,“ segir Þorkell. „Þá yrðu þingmenn og allir að reiða sig á að þeir tryðu þeirri stærðfræði, að það sé ekki til nema ein bezta lausn á þessu og að tölvan myndi alltaf finna hana.“ Þorkell segist vita að það þýði ekki að bjóða mönnum upp á slíka lausn en hún sé aftur á móti viðmið – því hún er „bezta“ lausnin og allar aðrar aðferðir hljóti að miðast við hana. „Nýju kosningalögin stóðu sig býsna vel í kosningunum 2003, þá munaði aðeins einu tilviki að þau römbuðu á að gefa beztu lausn- ina,“ bendir Þorkell á. „Núna stóðu lögin sig mun verr. Frávikið frá beztu lausn var í þetta sinn þannig að fimm frambjóðendur sem nú fengu þingsæti hefðu átt að vera úti og aðrir fimm inni. Þetta er mun stærra frávik en síðast.“ Þorkell segir slík „beztunar- vandamál“ vera klassísk í stærð- fræði (optimering á erlendum málum) og það gerist úti um allt í alls konar kerfum í kring um okkur, svo sem í tölvukerfum bíla. En stundum sé ekki hægt að finna albeztu lausnina, einfaldlega vegna þess að það þyrfti óendan- lega margar tilraunir til að nálg- ast hana. Í þessu beztunarvanda- máli við úthlutun þingsæta sé það reyndar svo, að með hámörkunar- aðferðinni komist maður að niður- stöðu sem ótvírætt er bezta lausnin. En það gerist ekki nema með þessum tölvu-tilraunaúthlut- unum sem vart sé hægt að gera ráð fyrir að þingheimur myndi samþykkja. En það sé hægt að nálgast þá lausn. Hægt sé að búa til einfaldari aðferðir sem geri næstum því sama gagn. „Ég hef um tuttugu ára skeið hamp- að aðferð sem hefur rambað á beztu lausn miðað við öll úrslit kosninga síðan árið 1987,“ segir Þorkell. Aðeins hægt að nálgast beztu lausn Heilagur dagur Samstarfsvettvangur hinna voldugu
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.