Fréttablaðið - 01.06.2007, Blaðsíða 38

Fréttablaðið - 01.06.2007, Blaðsíða 38
BLS. 6 | sirkus | 1. JÚNÍ 2007 Á vespu „Gallabuxurnar eru úr Nonnabúð en peysan er Henson-peysa sem ég hannaði.“ SIRKUSMYND/RÓSA É g hef mikinn áhuga á fötum og tísku og get tekið ástfóstri við ákveðin föt ef mér líkar vel við þau,“ segir Guðlaug Halldórsdóttir, textílhönnuður og einn eigandi verslunarinnar 3 hæðir. Gulla segir ákveðin föt gefa frá sér góða orku og þannig fötum geti hún gengið í aftur og aftur. „Þótt fötin eldist hættir manni ekki að líða vel í þeim og það skiptir mig miklu máli. Svo sýna fötin líka svolítið hver maður er,“ segir Gulla og bætir við að það borgi sig oft að fjárfesta í vönduðum flík- um. Gulla hefur haft áhuga á fötum og tísku frá því hún man eftir sér. „Ég hef ofsalega gaman af góðri hönnun og flottum sniðum og sauma mér stundum föt. Oftast tek ég samt bara og breyti gömlum fötum því gömul snið eru oft barn síns tíma,“ segir Gulla sem hannaði föt fyrir Hanson- íþróttamerkið sem eru til sölu í 3 hæðum. Um þægileg frístundaföt er að ræða sem Gulla hannaði út frá sjálfri sér og sniðum sem henni þykja þægileg. „Efnið í Henson-fötunum er alveg frábært, maður svitnar ekki í þeim og efnið kemur alltaf eins úr þvottavélinni,“ segir hún og bætir við að hönnun hennar sé með púfferm- um og aðeins meiri smáatriðum en þessir venjulegu íþróttagallar. Þegar Gulla er beðin um að lýsa sínum stíl segist hún líklega hallast að einhvers konar götustíl. „Minn stíll er líklega fágaður götustíll. Ég er mikið í buxum en reyni líka að vera kvenleg. Konur á Íslandi klæðast buxum of mikið en það er kannski bara út af veðrinu,“ segir hún. Aðspurð hvernig konur eigi að klæða sig næsta vetur segir hún tískuna spennandi fram- undan. „Tískan hefur verið mjög fjöl- breytt en nú er pönkið að koma inn. Svartur og gylltur og leður og grófari efni eru líka að koma og smárósóttir ömmukjólar. Þetta verður flott, kven- leg og sexí tíska.“ indiana@frettabladid.is GUÐLAUG HALLDÓRSDÓTTIR TEXTÍLHÖNNUÐUR VEKUR ATHYGLI FYRIR SÉRSTAKAN STÍL HVAR SEM HÚN FER. AÐHYLLIST FÁGAÐAN GÖTUSTÍL Flott „Hér er ég í rauðum toppi og gallabuxum úr 3 hæðum. Skórnir eru úr Miu Miu eins og flestir skórnir mínir.“ Mittislindi um miðjuna „Pilsið er úr hermannaefni, klippt úr mörgum flíkum, og mótmælir stríði. Ég er með mittislinda um miðjuna en þeir eru að koma mikið í tísku. Skórnir eru þeir þægilegustu í heimi en þeir heita Anatomica og fást aðeins í einni lítilli verslun í París.“ Uppáhaldsgallabux- urnar „Buxurnar og bolurinn eru hönnuð af Junya Watanabe sem er uppáhalds- hönnuðurinn minn. Svo er ég í Miu Miu skóm við.“ Blá frístundaföt „Þessi föt hannaði ég í samvinnu við Henson og er að selja í versluninni minni.“
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.