Fréttablaðið - 01.06.2007, Qupperneq 68
Heimóttaskapur hefur
sjaldnast þótt mönnum til
framdráttar en í hverju
felst hann þegar á hólminn
er komið? Á morgun
verður opnuð sýning þar
sem umfjöllunarefnið er
„útkjálkamennska“ auk
þess sem málþing er skipu-
lagt af sama tilefni.
Sýning listahóps sem kennir sig
við „The Provincialists“ verður
opnuð í Gerðarsafni kl. 15 á morg-
un en þar er á ferðinni hópur nor-
rænna listamanna sem hittist fyrst
í skandínavíska listamannabú-
staðnum í Róm árið 2004. Sýningin
ferðast hingað frá Færeyjum, með
ýmsum viðbótum, og geymir verk
eftir fjóra listamenn frá Íslandi,
Færeyjum, Svíþjóð og Noregi.
Þórdís Alda Sigurðardóttir
myndlistarmaður segir að þó hún
hafi ekki oft leitt hugann að út-
kjálkamennsku áður en hún komst
í kynni við kollega sína suður í
Róm, hafi sú hugmynd samt skotið
sér niður við ýmis tækifæri. Hún
segir að það sem sameini hópinn
nú sé sú staðreynd að þau komi öll
frá stöðum sem liggja utan hring-
iðunnar myndlistinni. „Við búum
ekki á stöðum þar sem straum-
ar og stefnur eru ákvarðaðar. Við
erum öll á jaðrinum - við Norður-
landaþjóðirnar og einnig þeir sem
búa fyrir utan stærstu menning-
arborgir heimsins.“ Þórdís Alda
nefnir að ólík tækifæri bjóðist
listafólki utan heimsborga mynd-
listarinnar og að í rótunum búi
ákveðinn kraftur. Þrátt fyrir stór-
kostlegar framfarir í samskiptum
og meiri hreyfanleika er útkjálk-
amennskan enn þá til en ein for-
senda sýningarinnar er að norð-
ursvæðin í heild ásamt okkar litlu
höfuðborgum séu hluti af hinni
hnattrænu „útkjálkalist“.
„Það er ekki eins og við séum
að gera eitthvað sérstaklega út
frá þessari hugmynd, við gerum
að sem við verðum að gera,“ út-
skýrir Þórdís Alda. „Hugsanlega
munu aðrir koma auga á tengsl
verkanna fremur en við sjálf –
það verður spennandi að sjá hvort
gestir sýningarinnar komi auga á
einhvers konar samnefnara í túlk-
un eða myndheimi verkanna.“
Í augum þátttakendanna snýst
sýningin ekki um einangrunar-
stefnu heldur fyrst og fremst sátt
við uppruna sinn. „Okkur finnst já-
kvætt að vera einfaldlega það sem
maður er – og fara ekkert í graf-
götur með það. Þetta snýst ekki
um staðfræði heldur um það sem
við getum gert – það sem stendur
okkur næst og líka það sem hefur
áhrif á okkur, hvort sem það kemur
úr okkar nánasta umhverfi eða við
þurfum líka að teygja okkur þang-
að sem straumarnir eru - það er jú
partur af nútímanum.“
Verk Þórdísar Öldu, innsetning-
in „Út í bláinn“, vísar til ferðalag-
anna – þarfar mannsins til að skoða
sig um í heiminum og öllu sem því
fylgir, bæði jákvætt og neikvætt.
„Það er afstætt hvað vekur undr-
un og furðu – okkur finnst margt
skrýtið þegar við erum erlendis
og við erum skrýtin í augum ann-
arra,“ áréttar Þórdís Alda.
Náttúran er einnig mikilvægur
þáttur í verki hennar líkt og í verk-
um færeysku listakonunnar Astri
Luihn sem sýnir málverk og prent
á sýningunni en þau vinnur hún
mikið til út frá gömlum goðsögn-
um. Þriðji listamaðurinn, Norð-
maðurinn Ane Lahn, sýnir vídeó-
verk í Gerðarsafni en verk hans
þrjú bera yfirskriftir heimsálf-
anna Ameríku, Afríku og Evrópu.
Sænska listakonan Madeleine
Park vinnur einnig með vídeó en
innsetning hennar Disco Molec-
ule hverfist um þær efnafræði-
legu breytingar sem verða innra
með manninum þegar hann upp-
lifir tilfinningalegt áreiti. Park
hefur herbergi á neðri hæð safns-
ins til umráða en þar sendir hún
einnig út hljóð er byggja þessum
líffræðilegu umskiptum í bland
við dúndrandi diskótóna lagins „I
Feel Love“ með Donnu Summer.
Málþing tengt sýningunni hefst
í fyrramálið kl. 10 og fer fram í
húsakynnum ReykjavíkurAka-
demíunnar við Hringbraut. Mark-
mið málþingsins er að skapa vett-
vang fyrir gagnrýnar og áhuga-
verðar umræður um hugtakið
„provincialism“, sem gæti útlagst
sem sveitamennska á íslensku.
Frummælendur þar koma víða en
lengst ferðast Theaster Gates Jr.,
listamaður og kennari við lista-
deildina í Chicago-háskóla sem
einnig mun fremja gjörning á opn-
uninni ásamt hljóðfæraleikurum.
Þá munu Arna Mathiesen, arki-
tekt sem búsett er í Osló, Guð-
mundur Oddur Magnússon,próf-
essor við Listaháskóla Íslands,
Viðar Hreinsson bókmenntafræð-
ingur og Hulda Rós Guðnadóttir,
fræði- og listamaður einnig ræða
hugtakið frá mismunandi sjónar-
hornum og beita því á samtímalist
sem og samfélagið almennt. Mál-
þingið verður haldið á ensku og er
opið öllum.
Sýningin stendur til 24. júní,
en hún verður sett upp í Hamar í
Noregi nóvember og í framhald-
inu í Chicago í Bandaríkjunum.
Nánari upplýsingar um verkefnið
má sjá á heimasíðunni www.prov-
incialists.com