Fréttablaðið - 01.06.2007, Blaðsíða 10
550 5000
AUGLÝSINGASÍMI
„Ég útiloka ekki að
gerðar verði einhverjar breytingar
á rekstrarforminu en fullyrði ekk-
ert um það á þessu stigi,“ segir
Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson borgar-
stjóri spurður um hugsanleg slit á
Strætó bs.
Byggðasamlagið Strætó er sam-
eiginlegt fyrirtæki sjö sveitar-
félaga á höfuðborgarsvæðinu.
Bæjarstjórar Seltjarnarness og
Kópavogs hafa gagnrýnt rekstur
fyrirtækisins. Vilhjálmur tekur
undir þetta. Hann segir að hallinn
hafi verið 550 milljónir króna á
síðasta ári þrátt fyrir að ný stjórn
fyrirtækisins sem tók við eftir
sveitarstjórnarkosningarnar í
fyrravor hafi tekið til hend-
inni og náð að minnka hall-
ann um fleiri hundruð
milljóna.
„Við getum ekki unað við
það að þetta fyrirtæki sé
rekið með svona gríðar-
legum halla. Okkur ber
skylda til að fara rækilega
í saumana á því og það er
nýr forstjóri og stjórn að
gera. Stjórnin hefur verið
að vinna ágætis verk en
það þarf bara að gera betur,“ segir
Vilhjálmur.
Varðandi hugsanlega uppskipti
hjá Strætó neitar borgarstjóri að
slíkt sé í undirbúningi af hálfu
Reykjavíkurborgar þótt
hann útloki ekkert eins og
áður segi.
„Fyrst og fremst ber
okkur sveitarstjórnar-
mönnum á höfuðborgar-
svæðinu að tryggja að
alltaf sé til staðar gott
leiðarkerfi. Breytingin á
leiðarkerfinu tókst á
ýmsan hátt ekki nægilega
vel. Menn hafa rætt eitt og
annað en ennþá erum við í
byggðasamlagi og vonandi verður
það sameiginleg ákvörðun ef ein-
hver breyting verður gerð en ekki
að einhver einn og einn sé að fara
út úr þessu.“
Shinzo Abe, forsætisráðherra Japans,
reynir nú hvað hann getur til að bjarga stjórn
sinni fyrir horn áður en þingi verður slitið hinn
23. júní. Vinsældir stjórnarinnar hafa hríðminnk-
að undanfarið vegna hneykslismála, sem gætu
orðið henni að falli í þingkosningunum 22. júlí.
Í gær vann stjórnarmeirihlutinn áfangasigur
þegar vantrauststillaga á Hakuo Yanagisawa
heilbrigðisráðherra var felld á þingi. Stjórnar-
andstaðan hafði látið verða af hótunum sínum
um að leggja fram vantrauststillöguna ef
stjórnin reyndi að hraða frumvarpi um
lífeyrismál í gegnum þingið.
Frumvarpið er lagt fram vegna þess að
opinber gögn um fimmtíu milljón lífeyrisþega
hafa týnst. Með frumvarpinu, sem stjórnin
hyggst fá samþykkt fyrir þinglok, verður
lífeyrisþegum gert kleift að fá bætur sínar
greiddar jafnvel þótt opinber gögn vanti.
Ýmis hneykslismál hafa skotið upp kollinum
nýverið og hafa stjórnarliðar meðal annars
verið sakaðir um að misnota almannafé og eiga
hlut að samráði verktaka í útboðum.
Vandræði stjórnarinnar náðu líklega hámarki
núna í vikunni þegar Toshikatsu Matsuoka
heilbrigðisráðherra framdi sjálfsvíg rétt áður
en hann átti að sitja fyrir svörum á þinginu.
Matsuoka var sakaður um að hafa þegið fé frá
verktökum sem höfðu fengið verkefni fyrir
ríkisfyrirtæki.
Abe tók við forsætisráðherraembættinu í
haust og naut mikilla vinsælda framan af, en
þær hafa dalað mjög upp á síðkastið. Sam-
kvæmt skoðanakönnun, sem dagblaðið Asahi
birti á þriðjudag, eru aðeins 36 prósent lands-
manna ánægð með frammistöðu hans í embætt-
inu. Hann hefur ekki mælst með minni vin-
sældir frá því hann tók við embættinu í
september.
Samkvæmt sömu skoðanakönnun eru það
lífeyrismálin sem valda flestum Japönum
mestum áhyggjum um þessar mundir. Auk
frumvarpsins, sem á að bæta fyrir týndu
gögnin, hyggst stjórnin leggja niður almanna-
tryggingastofnun Japans og færa þess í stað
yfirstjórn lífeyrismála til annarrar stofnunar.
Þessi mál varða gríðarlega marga íbúa
landsins og miklir fjármunir eru í húfi.
Forsætisráðherra stendur tæpt í Japan
Klæddu þig velwww.66north .is
Ef maður sefur úti á hverjum degi
lærir maður að klæða sig vel.
Ungbarnagalli kr. 4900. Nýir litir.
Rúmlega tvítugur
maður, Edward Apeadu Koran-
teng, hefur verið dæmdur í
Hæstarétti í þriggja ára
fangelsi fyrir að hafa þröngvað
stúlku með ofbeldi til samræðis.
Hann var jafnframt dæmdur til
að greiða henni eina milljón
króna í miskabætur, auk ríflega
400 þúsund króna í málsvarnar-
laun.
Móðir stúlkunnar kærði
atburðinn fyrir hönd dóttur
sinnar, sem þá var fjórtán ára.
Í dómsskjölum kom fram að
brotið gegn stúlkunni hefði sótt
mjög á hana og truflað daglegt
líf hennar.
Þrjú ár inni
fyrir nauðgun