Fréttablaðið - 01.06.2007, Page 12
„Við höfum veru-
legar áhyggjur af þessari stöðu,“
segir Salóme Þórisdóttir, formaður
Þroskaþjálfafélags Íslands, um
biðlistana sem hafa myndast hjá
Greiningar- og ráðgjafarstöð
ríkisins en þar bíða 270 börn eftir
greiningu.
Stefán J. Hreiðarsson, barna-
læknir og forstöðumaður stöðvar-
innar, greindi frá því við Frétta-
blaðið í gær að reynt væri að
forgangsraða börnum eftir bestu
getu þannig að yngstu börnin sem
grunur leikur á að búi við alvar-
lega fötlun komist sem fyrst að.
Biðin væri þó orðin þannig að barn
á leikskólaaldri gæti átt von á að
bíða í meira en tvö ár og barn á
grunnskólaaldri í um þrjú ár.
Þetta segir Salóme mjög slæma
stöðu þar sem oft sé ekki hægt að
hefja inngrip áður en greining
fæst jafnvel þótt vandinn þyki
nokkuð ljós. Meðal yngstu barn-
anna sé hver mánuður stór hluti
lífaldurs þeirra og biðin geti
bitnað illa á framtíðarhorfum
barnanna.
„Þegar upp kemur grunur um
að barnið manns sé með alvarlega
fötlun er mjög erfitt að bíða með
að fá staðfestingu á stigi fötlunar-
innar. Fljótt lærðum við að
snemmtæk íhlutun er grundvallar-
atriði og þá skapar það mikla van-
líðan og togstreitu að hafa ekki öll
spilin á borðinu svo hægt sé að
setja allt í fullan gang og fá þá
þjónustu sem í
boði er,“ segir
Hildur Friðriks-
dóttir, móðir
Kára Hrafns,
þriggja ára
drengs með ein-
hverfu. Hún
þurfti að bíða í
um átta mánuði
eftir að sonur
hennar, sem þá
var tveggja ára, kæmist í grein-
ingu þótt hann væri í forgangi.
Hildur segir að á meðan á bið-
inni stóð hafi hún leitað upplýs-
inga um einhverfu, meðal annars
farið á námskeið hjá Greiningar-
stöðinni. Auk þess hafi fjölskyldan
fengið ráðgjöf frá Þjónustu-
miðstöð Reykjavíkur og Sjónar-
hóli, og einhver vinna hafist.
„Markviss vinna með drenginn
takmarkaðist þó mjög til að mynda
vegna aðstöðuleysis í leikskóla og
manneklu,“ segir Hildur. Hún
segir tilfinninguna um að málin
séu komin í farveg grundvallar-
atriði til að foreldrar geti farið að
nýta orku sína í aðalatriðið, það er
barnið sjálft.
„Allar rannsóknir benda til þess
að því fyrr sem gripið er inn í
málin, þeim mun betur vegni
börnunum síðar meir. Þetta er
verkefni sem verður að taka á því
sú staða sem nú er bitnar mest á
börnunum,“ segir Salóme.
Óttast áhrif
biðlistanna
Hildur Friðriksdóttir, móðir þriggja ára einhverfs
drengs, segir biðina eftir greiningu erfiða því vitað
sé hve snemmtæk íhlutun er mikilvæg. Formaður
Þroskaþjálfafélagsins hefur áhyggjur af stöðunni.
George W. Bush
Bandaríkjaforseti lagði í gær til
að fimmtán af stærstu iðnríkjum
heims settu sér á næsta ári
sameiginlegt markmið um að
draga úr útblæstri gróðurhúsa-
lofttegunda.
Meðal ríkjanna fimmtán eru
Bandaríkin, Indland, Kína og
stærstu Evrópuríkin.
Með þessu vill Bush draga úr
gagnrýni á Bandaríkin vegna
afstöðu þeirra til loftslagsmála.
Bandaríkin höfðu hafnað tillögum,
sem ræða átti á fundi G8-ríkjanna í
Þýskalandi í næstu viku. Nú verður
þessi tillaga frá Bush framlag
Bandaríkjanna á þeim fundi.
Stærstu ríkin semji
„Íslensk blóm
eru harðgerð,
kröftug og fersk.“
Björn Sigurbjörnsson, garðyrkjumaður.
Í áratugi hafa íslenskir garðyrkjubændur unnið að því að byggja upp
og rækta úrval af garðplöntum fyrir íslenska veðráttu.
Nýttu þér dýrmæta þekkingu og reynslu íslenskra garðyrkjubænda.
VELDU ÍSLENSK SUMARBLÓM, SÉRMERKT ÞÉR.