Fréttablaðið - 01.06.2007, Síða 25
Yfirtökutilboð til hluthafa
í Actavis Group hf.
Novator eignarhaldsfélag ehf. („tilboðsgjafi”) gerir hér með tilboð í allt hlutafé
Actavis Group hf. í A-flokki sem er ekki þegar í eigu félaga tengdum tilboðsgjafa
eða í eigu Actavis Group hf. Félög tengd tilboðsgjafa eiga alls 1.296.379.823 hluti
í A-flokki hlutafjár Actavis Group hf., sem nemur um 38,5% af útgefnu hlutafé í
A-flokki og af atkvæðisrétti í Actavis Group hf.
Tilboðsverð
Samþykki og greiðsla
Gildistími
Umsjón
Morgunblaðið
hefur haldið áfram
umfjöllun sinni um
málefni Tónlist.
is og hagsmuna-
samtaka tónlistar-
hreyfingarinnar
nú í vikunni. Í yfirlýsingu minni
sem birt var á sunnudag klippti
Morgunblaðið út kafla sem varpað
gat ljósi á gagnrýni Morgunblaðs-
ins. Ég ítreka að ég mun ekki ræða
málefni einstakra listamanna eða
útgefenda opinberlega enda er um
að ræða aðila sem annaðhvort eru
samstarfsaðilar Tónlist.is eða um-
bjóðendur samstarfsaðila okkar.
Þau mál verða til lykta leidd á
öðrum og eðlilegri vettvangi.
Uppruni umfjöllunar Morgun-
blaðsins er sagður gagnrýni tón-
listarmanna á Tónlist.is þar sem
menn áttu að hafa verið svikn-
ir um greiðslur. Tónlist.is hefur
verið hreinsað af þessum róg-
burði og Morgunblaðið kemst að
þeirri niðurstöðu að það séu aðrir
en Tónlist.is sem hafa ekki stað-
ið sig sem skyldi í vandaðri grein
sem birtist á sunnudag. Í grein-
inni kemur einnig fram gagnrýni
Morgunblaðsins á starfsemi Tón-
list.is. Gagnrýni er af hinu góða
en þar kemur fram misskilningur
sem mér er ljúft og skylt að leið-
rétta.
1. Því er haldið fram að Tón-
list.is greiði fasta greiðslu fyrir
streymi og lög sem spiluð eru í
Ríkisútvarpinu og ráði því hvernig
sé greitt fyrir spilun á vefnum.
Þetta er ekki rétt en greiðslur
tóku þó mið af heildarspilun hvers
útgefenda í útvarpi í fyrstu samn-
ingum sem voru gerðir enda voru
menn að læra á nýjan miðil sem
minnti um margt á útvarp. Þessar
greiðslur voru greiddar frá upp-
hafi starfseminnar en aðeins ef
hún náði ákveðnum hundraðs-
hluta með fullu samþykki útgef-
enda. Hér var um lágar fjárhæðir
að ræða en þó fengu langflestir út-
gefendur greitt fyrir þennan hluta
þar sem streymi náði því lágmarki
sem til þurfi. Þessum samning-
um var fljótlega breytt þannig að
þessar fjárhæðir söfnuðust saman
næðu þær ekki lágmarkinu og allir
rétthafar fá greitt fyrir streymi
í dag. Í farvatninu er einnig að
breyta öllum samningum sem
gerðir voru í upphafi þannig að
allar greiðslur skili sér afturvirkt.
Tölvukerfið býr yfir upplýsingum
um streymi frá upphafi og við það
geta rétthafar stuðst til að greiða
sínum umbjóðendum.
2. Þess misskilnings virðist
gæta í umfjöllun Morgunblaðsins
að Tónlist.is telji sig hafa samning
við samtök rétthafa um sölu á tón-
list útgefenda. Heildarsamningar
eru aðeins gerðir við samtök flytj-
enda og STEF en síðan eru gerð-
ir samningar við hvern útgefenda.
Það er ekki um það að ræða að tón-
list sé seld án heimildar enda þess
gætt vandlega að um alla tónlist
séu viðhlítandi samningar. Það er
alfarið ákvörðun hvers útgefenda
hvaða tónlist fer í sölu enda eru
þeir eigendur efnisins.
3. Morgunblaðið gagnrýnir að
skráning á höfundarétti sé ekki
í lagi. Því er hafnað enda byggir
sú skráning á því að rétthafar fái
greitt. Hins vegar bendir blaða-
maður Morgunblaðsins á að í
ID3-tag á MP3 skrám standi (c)
MúsikNet. Undirritaður kann
blaðamanni þakkir fyrir þessa
ábendingu en þetta hafði verið lag-
fært áður en gagnrýni hans birt-
ist. Um var að ræða mannleg mis-
tök við útfærslu á einni gerð skráa
þegar vefurinn var endurbættur.
Hér var því aðeins um vikutíma-
bil að ræða á einni skráartegund
og eru útgefendur beðnir velvirð-
ingar á þessum mistökum.
Mbl.is hefur verið að færa sig yfir
í miðlun tónlistar og þannig hafa
allir gestir möguleika á að setja
inn tónlist á bloggvefi sem vistað-
ir eru á netþjónum mbl.is og aðrir
gestir geta síðan streymt án end-
urgjalds. Í ljós hefur komið að um
verulegt magn af höfundavörðu
efni er að ræða og þar er að finna
tónlist með Bubba, Baggalúti,
Björgvini Halldórssyni, Þey, Spil-
verki Þjóðanna, Mika, Bob Dylan,
Beatles og fjölda annara tónlist-
armanna. Notendur mbl.is eru
að jafnaði um 250.000 vikulega
meðan aðeins um 5.000 manns eru
skráðir í áskriftarþjónustu Tón-
list.is. Munurinn er sá að Tónlist.is
greiðir öllum rétthöfum en mbl.is
engum samkvæmt mínum heim-
ildum. Morgunblaðið birtir heldur
ekki upplýsingar um höfundarétt.
Þessi þjónusta er því í anda þeirr-
ar þjónustu sem hin svokölluðu
sjóræningjanet veita nema hér er
aðeins um streymi að ræða.
Eins og Morgunblaðið hefur
bent á er um frumskóg réttinda-
mála að ræða en sem betur fer
eru tónlistarmenn upp til hópa
þeim gáfum gæddir að skilja þetta
ágætlega. Greinaflokkur Morgun-
blaðsins er ágætur og hefur komið
af stað umræðu um þessi málefni.
Ég vona sannarlega hún verði til
þess að menn einbeiti sér að því
sem skiptir mestu máli í staf-
rænni framtíð. Að koma böndum á
ólöglega dreifingu tónlistar öllum
til heilla.
Höfundur er framkvæmdastjóri
Tónlist.is.
Hvað gengur Morgunblaðinu til?
Notendur mbl.is eru að jafnaði
um 250.000 vikulega meðan
aðeins um 5.000 manns eru
skráðir í áskriftarþjónustu Tón-
list.is. Munurinn er sá að Tón-
list.is greiðir öllum rétthöfum
en mbl.is engum samkvæmt
mínum heimildum.
550 5000
AUGLÝSINGASÍMI